Þjóðmál

PODCAST · society

Þjóðmál

Hér er rætt hispurslaust um stjórnmál, efnahagsmál, menningu og annað tengt þjóðmálum.

  1. 421

    #420 – Kosningakaffi með Ingva Þór og Konráði Guðjóns – Svo heldur lífið áfram í næstu viku

    Ingvi Þór Georgsson og Konráð S. Guðjónsson kryfja lokasprettinn fyrir sveitarstjórnarkosningarnar. Rætt er um óvænta þróun í fylgismælingum þar sem Sjálfstæðisflokkurinn sækir í sig veðrið í stóru sveitarfélögunum en Samfylkingin virðist í vörn. Rætt er um það hvort afskipti forsætisráðherra af baráttunni séu að hjálpa eða skaða, nýja stuðla veðbanka, seinagang í uppbyggingu samgönguinnviða og hvernig það tengist skipulagi sveitarfélaga auk annarra þátta. Við ræðum líka málflutning formanns utanríkismálanefndar sem vill ódýrari álegg á matinn sinn en auk þess er einnig horft til komandi stýrivaxtaákvörðunar Seðlabankans og hvaða áhrif hún muni hafa á íslenskt efnahagslíf í miðri kosningahríð.

  2. 420

    #419 – Helgarvaktin með Stefáni Einari og Gunnari Örlygs – Sjómaður hitting postulínsdreng

    Stefán Einar Stefánsson og Gunnar Örlygsson rýna í hitamál líðandi stundar. Farið er yfir sviðið fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar þar sem staða meirihlutans í Reykjavík er sögð erfið á meðan Sjálfstæðisflokkurinn sækir í sig veðrið í Kópavogi og Reykjanesbæ. ESB-umræðan er krufin, allt frá gjaldmiðlamálum til gagnrýni á þöggunartilburði og villandi upplýsingagjöf yfirvalda, óþarfa vinnu ríkisins vegna almyrkvans í ágúst og margt fleira. Þá er hrós vikunnar, bókameðmæli og hraðaspurningar á sinum stað.

  3. 419

    #418 – Kaffispjall – María Björk Einarsdóttir, forstjóri Símans

    María Björk Einarsdóttir, forstjóri Símans, ræðir um umbreytingu félagsins og framtíðarsýn á stafrænum markaði, hvernig Síminn hefur þróast á liðnum árum og hvort fyrirtækið skilgreini sig í dag sem tækni-, þjónustu- eða afþreyingarfélag. Rætt er um samkeppnina við erlendar streymisveitur, framtíð innlendrar dagskrárgerðar og ávinninginn af mögulegum kaupum á miðlum Sýnar. María Björk varpar einnig ljósi á tækniþróunina, allt frá 5G til Starlink, auk vaxtarins í fjártækni í gegnum Síminn Pay og Billboard. Að lokum deilir hún innsýn í eigin stjórnunarstíl og áskoranir þess að leiða eitt stærsta fyrirtæki landsins í gegnum flókið efnahagsumhverfi og örar tæknibreytingar.

  4. 418

    #417 – Helgarvaktin með Birni Brynjúlfi og Andreu Sig – Fram þjáðir menn í þúsund löndum

    Björn Brynjúlfur Björnsson, framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs, og Andrea Sigurðardóttir, blaðamaður á Morgunblaðinu mæta á helgarvaktina á baráttudegi verkalýðsins. Tilefni dagsins kallar á umræðu um verkalýðshreyfinguna, rimmu formanns VR við aðra verkalýðsleiðtoga og það hvort stéttarfélög séu hreinlega orðin tímaskekkja. Þá er rætt um efnahagsmál, verðstýringarhneigð ríkisins, komandi sveitarstjórnarkosningar, rekstrarhalla Reykjavíkurborgar, samgöngusáttmálann sem virðist breytast í hverjum kosningum, stöðu efnahagsmála á Austurlandi sem fá kaldar kveðjur frá ráðamönnum. Hrós vikunnar, hraðaspurningar og bókameðmælin eru einnig á sínum stað ásamt öðrum málum.

  5. 417

    #416 – Afmæliskaffi með Andrési – Er utanríkisráðherra að leggja pólitískt líf sitt að veði?

    Andrés Magnússon, fulltrúi ritstjóra á Morgunblaðinu, rýnir í kraumandi pólitíska landslagið og fer yfir stöðuna á stjórnarheimilinu, nýjustu vendingar í ESB-umsóknarferlinu, þar á meðal nýafstaðna fundi utanríkismálanefndar með utanríkis- og forsætisráðherra, berskjaldaðan utanríkisráðherra sem virðist standa ein í þeim slag og leggur pólitískt líf sitt að veði og fleira til. Þá ræðum við einnig um komandi sveitarstjórnarkosningar og annað sem nú ber á góma.

Type above to search every episode's transcript for a word or phrase. Matches are scoped to this podcast.

Searching…

No matches for "" in this podcast's transcripts.

Showing of matches

No topics indexed yet for this podcast.

Loading reviews...

ABOUT THIS SHOW

Hér er rætt hispurslaust um stjórnmál, efnahagsmál, menningu og annað tengt þjóðmálum.

HOSTED BY

Þjóðmál

CATEGORIES

URL copied to clipboard!