Korter í kosningar

PODCAST · news

Korter í kosningar

Korter í kosningar er hlaðvarp um kosningarnar framundan og er sniðið fyrir fólk sem vill fylgjast vel með þegar það er korter í kosningar. Þáttastjórnendur eru Magnús Sigurbjörnsson og Pétur Ólafsson. Fyrirspurnir: [email protected]

  1. 16

    Kosningaspámenn Íslands

    Bogi Ágústsson og Ólafur Þ. Harðarson - frægasta tvíeyki landsins síðan Halli og Laddi mættu í stúdíóið. Hver verður næsti borgarstjóri? Hvaða flokkar ná inn og hver græðir á því? Hversvegna má ekki telja atkvæði á meðan kjörstaðir eru ennþá opnir og af hverju geta þingmenn ekki bara breytt kosningalögum?  Korter í kosningar verða í beinni 14. maí á Ölver. Miðasala á stubb.is.Enor endurskoðun, Tryggingar og ráðgjöf og Jómfrúin eru samstarfsaðilar Korter í kosningar.

  2. 15

    15 dagar í kosningar

    Svo margar spurningar í helgarþættinum. Halda Sósíalistar áfram að vinna oddvitakeppnina? Hver er stefna flokkana og fer hún saman við veruleikann? Hvaða flokkur er með besta slagorðið? Er að sjóða uppúr í Kópavogi? Vinnur Viðreisn til hægri í Reykjavík og vinstri í Kópavogi? Munu hálmstrá Framsóknar breyta einhverju? Hvað er þetta tígrisdýr sem allir eru að tala um? Er hægt að gervigreinda sig í gegnum kosningabaráttu og vinna?Enor endurskoðun, Tryggingar og ráðgjöf og Jómfrúin eru samstarfsaðilar Korter í kosningar.

  3. 14

    Besta starf í heimi

    Það þurfti ekki að toga yfirlýsingarnar upp úr Gísla Marteini Baldurssyni og Svandísi Svavars í nýjasta þættinum en þau eru bæði fyrrverandi borgarfulltrúar. Um hvað snérist leynisamkomulagið í Moskvu? Er Gísli Marteinn með innirödd? Hvers vegna er Svandís ekki í Samfylkingunni og eiga kosningarnar að snúast um mannlíf og mannréttindi?Enor, Tryggingar og ráðgjöf og Jómfrúin styrkja Korter í kosningar.

  4. 13

    Ríða, drepa, giftast?

    Fyrrverandi borgarfulltrúinn Katrín Atladóttir, Katrín.is og Sorpuprinsinn Gunnar Dofri Ólafsson ræddu um regnboga, Guðmund Sæland, næsta borgarstjóra og hvort það verði tveir slíkir á næsta kjörtímabili. Enor, Tryggingar og ráðgjöf og Jómfrúin styðja við bakið á Korter í kosningar.

  5. 12

    Baráttan um Kópavog

    Ásdís Kristjánsdóttir, bæjarstjóri Kópavogs og oddviti Sjálfstæðisflokksins í Kópavogi og Jónas Már Torfason, oddviti Samfylkingarinnar í Kópavogi mættu í Korterið. Þau hittust í fyrsta sinn við upptökur á þættinum. Fram að því höfðu þau forðast hvort annað á þorrablótum. Þau lofuðu að vera skemmtileg sem tókst að einhverju leyti, eða hvað? Hvort er veltufjárhlutfallið hjá Kópavogsbæ gott eða slæmt? Hvort er betra að lækka leikskólagjöld eða fasteignagjöld og hvað er Gunnar Birgisson að gera í rúminu mínu?

  6. 11

    Gerðum það sem var rétt fyrir Reykjavík

    Hanna Birna Kristjánsdóttir, fyrrverandi borgarstjóri og Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir, fyrrverandi borgarfulltrúi kíktu í Korterið. Kjörtímabilið 2006-2010 snerist í minningunni bara um marga borgarstjóra, dramatík og efnahagshrun. Það mikilvægasta á því kjörtímabili var það sem gerðist á bakvið tjöldin í skipulagsmálum þegar unga kynslóðin í borgarstjórn þvert á flokka sammæltist um að gera það sem væri rétt fyrir Reykjavík. Þökkum Enor, Tryggingum og ráðgjöf og Jómfrúnni fyrir samstarfið.

  7. 10

    Tekst flokkunum að skila inn framboðum í vikunni?

    Korter vikunnar er tileinkað kosningastjórum um land allt. Diljá Ragnarsdóttir kosningastjóri Samfylkingarinnar og Helga Lára Haarde kosningastjóri Sjálfstæðisflokksins kíktu til okkar í spjall um starf kosningastjórans og hvernig þeim líður með að vinna á bakvið tjöldin, hvort þeim takist að skila inn löglegum framboðslistum með öllum 46 frambjóðendum, því það má ekki klikka og hvort það sé búið að finna kosningaskrifstofu.  Þökkum Enor, Tryggingum og ráðgjöf og Jómfrúnni fyrir samstarfið.

  8. 9

    Hvað er Borgarlína?

    Byrjendanámskeið í Borgarlínu með Davíð Þorlákssyni nýjum framkvæmdastjóra Almenningssamgangna höfuðborgarsvæðisins. Hvernig lítur planið út? Er samgöngusáttmáli rofinn ef Borgarlína er sleginn af borðinu? Hvað er meira í samgöngusáttmála? Enor, Tryggingar og ráðgjöf og Jómfrúin eru samstarfsaðilar Korter í kosningar 

  9. 8

    Var Ari stunginn af Pírata?

    FM Belfast söngvarinn Bjössi “Borko” Kristjánsson og kosningagreinandinn Silja Rán Arnarsdóttir fara yfir stöðuna. Sameiningar sveitarfélaga, besti oddvitinn, Reykjavík, Hafnarfjörður, Drangsnes og Lars Løkke Rasmussen. Þökkum Enor endurskoðun, Tryggingum og ráðgjöf og Jómfrúnni fyrir samstarfið.

  10. 7

    Fyrsta kosningaspáin

    Fyrsta kosningaspá Korter í kosningar er kynnt í upphafi þáttar. Gestir eru Margrét Bjarnadóttir forseti bæjarstjórnar í Garðbæ fyrir Sjálfstæðisflokkinn og Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir frambjóðandi í 3. sæti Samfylkingarinnar í Reykjavík. Líflegar og skemmtilegar umræður um Garðabæ og Reykjavík og allt þar á milli.

  11. 6

    Verður hægt að endurtaka ævintýri Besta flokksins?

    Sálirnar í Besta flokknum Jón Gnarr fyrrverandi borgarstjóri og S. Björn Blöndal fyrrverandi aðstoðarmaður borgarstjóra útskýrðu fyrir okkur hvernig flokkur sem bauð einu sinni fram og aldrei aftur - gjörsigruðu kosningarnar árið 2010. Ásamt því að líta um öxl spáðu þeir í spilin fyrir komandi kosningar þann 16. maí nk. Enor endurskoðun og Jómfrúin eru styrktaraðilar Korter í kosningar.

  12. 5

    Kosningahismið

    Hlaðvarpskempurnar og goðsagnirnar Árni og Grétar úr Hisminu komu til okkar í stöðugreiningu. Mun stemningin ein vinna kosningarnar í vor? Hvernig var hlaðvarpsleikurinn fyrir 13 árum? Má taka úr Góða hirðis gámnum í Sorpu eins og Þór bæjarstjóri? Samstarfsaðilar Korter í kosningar eru Enor endurskoðun og Jómfrúin.

  13. 4

    Eru Píratar búnir að vera í Reykjavík?

    Magnús Már Guðmundsson fyrrverandi borgarfulltrúi og Áslaug María Friðriksdóttir fyrrverandi borgarfulltrúi spjalla við þáttastjórnendur Magnús Sigurbjörnsson fyrrverandi framkvæmdastjóra borgarstjórnarflokks Sjálfstæðisflokksins og Pétur Krogh Ólafsson fyrrverandi aðstoðarmann borgarstjóra um borgarstjórnarkosningarnar. Fullt af fyrrverandi í fyrsta þætti af Korter í kosningar.

Type above to search every episode's transcript for a word or phrase. Matches are scoped to this podcast.

Searching…

We're indexing this podcast's transcripts for the first time — this can take a minute or two. We'll show results as soon as they're ready.

No matches for "" in this podcast's transcripts.

Showing of matches

No topics indexed yet for this podcast.

Loading reviews...

ABOUT THIS SHOW

Korter í kosningar er hlaðvarp um kosningarnar framundan og er sniðið fyrir fólk sem vill fylgjast vel með þegar það er korter í kosningar. Þáttastjórnendur eru Magnús Sigurbjörnsson og Pétur Ólafsson. Fyrirspurnir: [email protected]

HOSTED BY

Magnús Sigurbjörnsson og Pétur Ólafsson

CATEGORIES

URL copied to clipboard!