PODCAST · leisure
Leikjavarpið - Hlaðvarp Nörd Norðursins
by nordnordursins
Hlaðvarp þar sem fjallað er um það helsta úr heimi tölvuleikja. Umsjónarmenn þáttar eru þeir Bjarki Þór Jónsson, Daníel Rósinkrans og Sveinn Aðalsteinn.
-
71
Leikjavarpið #69 - Fyrstu hughrif á Crimson Desert, DLSS 5 umræða og Pokopia
Daníel Rósinkrans og Sveinn Aðalsteinn ræða um allt það helsta úr heimi tölvuleikja. Þeir ræða tölvuleikinn Crimson Desert og segja frá fyrstu hughrifum á leiknum, taka góða og nauðsynlega umræðu um DLSS 5, tæknina frá Nvidia, og síðast en ekki síst fjalla um Pokopia - nýja Pokémon leikinn sem hefur notið mikilla vinsælda á Switch 2 leikjatölvunni. Allt þetta og fleira til í nýjasta þætti Leikjavarpsins!
-
70
Leikjavarpið #68 - God of War Sons of Sparta og Phil Spencer kveður Xbox
Daníel Rósinkrans og Bjarki Þór fara yfir það helsta úr heimi tölvuleikja. Daníel segir okkur frá God of War Sons of Sparta sem er heldur óhefðbundinn God of War leikur í platformer-stíl. Einnig er rætt um stórar fréttir úr heimi Microsoft Xbox og Sony PlayStation; Phil Spencer kveður Microsoft og Sony lokar Bluepoint Games leikjastúdíóinu. Ýmislegt fleira er til umræðu, þar á meðal byrjendaráð fyrir nýjan Switch 2 eiganda, Pokémon fréttir, leikir í spilun, nýr leikur væntanlegur frá nýju íslensku leikjafyrirtæki, upphitun fyrir gjafaleik og margt fleira.
-
69
Leikjavarpið #67 - State of Play og Nioh 3
Daníel Rósinkrans, Steinar, Bjarki og Sveinn fara yfir allt það helsta úr heimi tölvuleikja í þætti 67 af Leikjavarpinu. Okkar helsti Nintendo sérfræðingur fer yfir það helsta frá Nintendo Direct: Partner Showcase þar sem væntalegir Switch og Switch 2 leikir voru kynntir. Steinar og Sveinn rýna í Nioh 3 og fjalla um nýjunga, helstu kosti og galla leiksins ásamt því að segja frá sínu áliti. Að lokum rennum við yfir leiki sem voru kynntir á State of Play kynningu Sony, þar sem við fengum meðal annars nýjar God of War fréttir! Einnig förum við yfir það helsta sem við erum að spila þessa dagana, ræðum Cairn stuttlega, minnumst á nýja Diablo II viðbót og margt fleira.
-
68
Leikjavarpið #66 - Xbox Developer Direct og Ólafur Darri í God of War
Sveinn, Rósinkrans og Bjarki fara yfir það helsta og heitasta úr heimi tölvuleikjanna í 66. þætti Leikjavarpsins. Stóra viðfangsefni þáttarins er Xbox Developer Direct leikjakynningin sem fór í loftið 22. janúar síðasliðinn þar sem fjórir væntanlegir leikir fengu ítarlega kynningu, þar á meðal leikurinn sem strákarnir bíða spenntir eftir - FABLE! Rætt er um nýlega og væntanlega sjónvarpsþætti sem byggja á tölvuleikjum í kjölfar þess að tilkynnt var að Ólafur Darri mun fara með hlutverk Þórs í God of War sjónvarpsþáttum! Það gleymdist að nefna nokkra áhugaverða leikjatitla í seinasta þætti þegar farið var yfir væntanlega tölvuleiki á árinu 2026, þau mistök eru plástruð í lok þáttar <3 Ást, friður og tölvuleikir.
-
67
Leikjavarpið #65 - Væntanlegir leikir 2026
Daníel Rósinkrans, Sveinn Aðalsteinn og Bjarki Þór fara yfir það sem er væntanlegt á árinu sem var að hefjast. Þar á meðal má nefna leiki á borð við GTA VI og nýjan James Bond leik. Strákarnir ræða einnig hvað stóð upp úr á árinu sem var að líða og hvaða leikir voru spilaðir yfir jólahátíðina. Þetta og margt fleira í þætti #65 af Leikjavarpinu!
-
66
Leikjavarpið #64 - Allt það helsta frá The Game Awards 2025
Við förum yfir allt það helsta frá einni stærstu tölvuleikjaverðlaunahátíð heims - The Game Awards! Rennum yfir hvaða leikir unnu í stærstu verðlaunaflokkunum en hlutverkaleikurinn Clair Obscur: Expedition 33 vann flest verðlaun þetta árið. Hvað stóð upp úr og hvað vantaði? Einnig segjum við frá helstu leikjakynningum kvöldsins þar sem nýir leikir voru kynntir til sögunnar, þar á meðal nýr væntanlegur leikur frá Larian Studios, leikjafyrirtækinu sem gerði Baldur's Gate 3. Þetta og margt margt fleira.
-
65
Leikjavarpið #63 - Icelandic Game Fest og The Game Awards
Bjarki og Sveinn mættu á Icelandic Game Fest tölvuleikjaveisluna í Arena og segja frá því sem stóð upp úr en þar voru fjölmargir leikir frá íslenskum leikjastúdíóum til sýnis. Búið er að tilkynna hvaða leikir eru tilefndir til The Game Awards og er farið yfir valda verðlaunaflokka en Clair Obscur: Expedition 33 er tilnefndur til flestra verðlauna. Fleira er til umræðu eins og leikir í spilun, Golden Joystick Awards og margt fleira.
-
64
Leikjavarpið #62 - Steam Machine og GTA VI seinkað
Leikjavarpið vaknar aftur til lífsins eftir ljúfan (og aðeins of langan) sumardvala. Þeir Daníel Rósinkrans, Sveinn Aðalsteinn og Bjarki Þór ræða um það helsta úr heimi tölvuleikja í 62. þætti Leikjavarpsins. Helsta umræðuefni þáttarins er nýr vélbúnaður sem Valve kynnti til sögunnar fyrir skemmstu - Steam Machine, Steam Controller og Steam Frame. Mun Valve breyta leikjatölvumarkaðnum eins og við þekkjum hann? Hvaða áhrif mun nýja tölvan hafa á til dæmis Xbox leikjatölvuna frá Microsoft? Fleira efna er tekið fyrir í þættinum og má þar helst nefna seinkunina á Grand Theft Auto VI, Icelandic Game Fest sem fram fer á Arena og Steam og Master Lemon: The Quest for Iceland svo eitthvað sé nefnt. Mynd: Steam Machine frá Valve https://store.steampowered.com/sale/steammachine
-
63
Leikjavarpið #61 - Switch 2 útgáfa, Elden Ring Nightreign og Clair Obscur: Expedition 33
Bjarki, Steinar og Sveinn þurrka rykið af hljóðnemunum og ræða allt það helsta úr heimi tölvuleikja. Meðal annars er rætt um útgáfu nýjustu leikjatölvu Nintendo, Switch 2, og ákveðinn fídus sem virðist ekki virka hér á Íslandi í þeirri tölvu. Bjarki og Sveinn heimsóttu íslenska leikjafyrirtækið Myrkur Games á dögunum og segja frá leiknum Echoes of the End sem er nýr hasar- og ævintýraleikur sem er væntanlegur í sumar. Strákarnir rýna svo í leikina Elden Ring Nightreign, sem er frábrugðinn hinum hefðbundna Elden Ring, og Clair Obscur: Expedition 33 sem er „turn-based“ hlutverkaleikur frá franska leikjafyrirtækinu Sandfall Interactive. Tónlist: "Overworld" Kevin MacLeod (incompetech.com) Licensed under Creative Commons: By Attribution 4.0 License http://creativecommons.org/licenses/by/4.0/
-
62
Leikjavarpið #60 - Nintendo Switch 2
Sextugi þáttur Leikjavarpsins er helgaður Nintendo Switch 2. Á dögunum hélt Nintendo nokkuð ítarlega kynningu á Switch 2 þar sem farið var yfir öll helstu atriði. Daníel, Sveinn og Bjarki fara yfir það helsta og ræða tæknileg atriði, leikjaúrval, nýja möguleika, verð, tollastríð og margt fleira. Tónlist: "Overworld" Kevin MacLeod (incompetech.com) Licensed under Creative Commons: By Attribution 4.0 License http://creativecommons.org/licenses/by/4.0/
-
61
Leikjavarpið #59 - Assassin’s Creed Shadows og næsta Xbox leikjatölvan
Í nýjasta þætti Leikjavarpsins fjalla þeir Sveinn, Rósinkrans og Bjarki um allt það helsta úr heimi tölvuleikja. Við fjöllum ítarlega um Assassin's Creed Shadows sem er nýjasti leikurinn í hinni frægu AC-seríu og Sveinn hefur verið að spila undanfarna daga. Þátturinn inniheldur enga spilla! Einnig ræðum við um Lost Records: Bloom & Rage sem Rósinkrans byrjaði nýlega spila að spila og Unnur Sól gagnrýndi á vef Nörd Norðursins. Nýr Death Stranding 2 stikla leit dagsins ljós á dögunum og var hvorki meira né minna en heilar 10 mínútur að lengd! Rýnum í þá stiklu og ræðum um næstu Xbox leikjatölvu og stöðu Xbox á leikjatölvumarkaðnum. Allt þetta og fleira til í nýjasta þætti Leikjavarpsins. Tónlist: "Overworld" Kevin MacLeod (incompetech.com) Licensed under Creative Commons: By Attribution 4.0 License http://creativecommons.org/licenses/by/4.0/
-
60
Leikjavarpið #58 - Avowed og State of Play
Í þættinum segir Sveinn okkur frá hlutverkaleiknum Avowed sem kom út fyrr í þessum mánuði en hann hefur verið að spila leikinn og deilir sinni skoðun á honum. Einnig förum við yfir allt það helsta frá State of Play kynningunni sem haldin var þann 12. febrúar. Þar voru væntanlegir leikir á PlayStation kynntir, þar á meðal er nýr leikur frá Housemarque (þeim sömu og gerðu Returnal) og endurbætt útgáfa af zombí-leiknum Days Gone. Auk þess ræðum við um Mario Con sem haldið verður í Next Level Gaming í Egilshöll í mars og fleira skemmtilegt.
-
59
Leikjavarpið #57 - Kingdom Come: Deliverance II og PSN aftengist
Bjarki, Sveinn og Daníel fara yfir það helsta sem stóð upp úr í leikjaheiminum síðastliðnar tvær vikur. Helstu viðfangsefni þáttarins eru fyrstu hughrif á miðaldar-hlutverkaleiknum Kingdom Come: Deliverance II, frestun á næsta Football Manager og PSN vesenið mikla sem varð til þess að fjöldi spilara gat ekki spilað netleiki á PlayStation leikjatölvunni sinni. Auk þess er fjallað um endurútgáfu The Sims og The Sims 2 í tilefni 25 ára afmæli leikjaseríunnar og Civilization VII sem er væntanlegur síðar í þessum mánuði. Takk fyrir að hlusta! <3
-
58
Leikjavarpið #56 - Væntanlegir leikir 2025
Leikjvarpið fer yfir allt það helsta sem er væntanlegt á leikjaárinu 2025 - nýr GTA leikur! Mafia! Doom! Hobbita-kósíleikur! og margt margt fleira. Einnig er fjallað um nýjustu fréttir sem tengjast útgáfu næstu leikjatölvu Nintendo: Switch 2.
-
57
Leikjavarpið #55 - Leikir ársins 2024 og Switch 2 orðrómar
Leikjavarpið hefur göngu sína aftur eftir jólafrí. Í þessum fyrsta þætti ársins fara þeir Daníel Rósinkrans, Bjarki Þór, Sveinn Aðalsteinn og Steinar Logi yfir þá leiki sem stóðu upp úr á árinu. Þar má nefna leiki á borð við Astro Bot, Balatro, Like a Dragon: Infinite Wealth og Silent Hill II. Leikjalistann í heild sinni má finna á heimasíðunni okkar. CES tæknisýningunni í Bandaríkjunum lauk fyrir nokkrum dögum en þar fóru af stað orðrómar um útgáfu Switch 2. Rætt er um þessa orðróma í þættinum og við hverju má búast frá Nintendo. Þetta og fleira í nýjasta þætti Leikjavarpsins!
-
56
Leikjavarpið #54 – Hápunktar frá Game Awards og Indiana Jones and the Great Circle
Sveinn Aðalsteinn, Daníel Rósinkrans og Bjarki Þór fara yfir allt það helsta úr heimi tölvuleikja í 54. þætti Leikjavarpsins. Rætt er um hápunkta frá The Game Awards 2024 þar sem farið er yfir hvaða leikir unnu í stóru verðlaunaflokkunum og síðast en ekki síst hvaða nýju leikir voru kynntir á verðlaunahátíðinni, þar má meðal annars nefna nýjan The Witcher leik! Sveinn rýnir í Indiana Jones and the Great Circle sem er nýr Indiana Jones hasar- og ævintýraleikur þar sem þú spilar sem Indiana Jones í fyrstu persónu, hvernig ætli það sé að virka? Bjarki segir frá Balatro, indíleiknum sem hefur náð gríðarlegum vinsældum. Hvað gerir þennan spilaleik annars svona sérstakan? Þetta og margt fleira í nýjasta þætti Leikjavarpsins.
-
55
Leikjavarpið #53 - The Game Awards og S.T.A.L.K.E.R. 2
Daníel, Sveinn og Bjarki ræða það heitasta úr heimi tölvuleikja í þessum þætti Leikjavarpsins. Við förum yfir þá leiki sem tilnefndir eru til verðlauna á The Game Awards 2024, þar má nefna leiki á borð við Astro Bot, Hellblade II og Final Fantasy VII: Rebirth. Sveinn segir okkur frá því hvernig PlayStation Portal virkar eftir nýja uppfærslu sem opnar fyrir þann möguleika að streyma tölvuleikjum beint í gegnum skýið í stað PlayStation 5. Við ræðum einnig um leikina Flight Simulator 2024 þar sem hægt er að ganga um Skólavörðustíginn, S.T.A.L.K.E.R. 2 frá úkraínska leikjafyrirtækinu GSC Game World og kósí-leikinn Petit Island (sem endaði á því að vera pirru-leikur).
-
54
Leikjavarpið #52 - PlayStation 5 Pro og umdeild Xbox auglýsing
Bjarki Þór, Daníel Rósinkrans og Sveinn Aðalsteinn ræða allt það helsta úr heimi tölvuleikja. Stutt er síðan að PlayStation 5 Pro leikjatölvan kom á markað og í þættinum er ítarleg umfjöllun á tölvunni. Við þökkum Sony og Senu fyrir aðgang að tölvunni til rýnis. Nördarnir segja sínar skoðanir á tölvunni eftir prófanir og fara yfir helstu kosti og galla. Strákarnir ræða einnig nýja auglýsingu frá Xbox þar sem lögð er áhersla á að Xbox er ekki bara Xbox, heldur getur Xbox verið nánast hvaða tæki sem er. Að lokum er minnst á uppfærða útgáfu af Half-Life 2 og væntanlega leiki.
-
53
Leikjavarpið #51 - Black Ops 6 og Dragon Age: The Veilguard
Sveinn Aðalsteinn, Daníel Rósinkrans og Bjarki Þór fara yfir það helsta úr heimi tölvuleikja. Í þættinum er m.a. fjallað um Call of Duty: Black Ops 6 og Dragon Age: The Veilguard. Auk þess er fjallað um tölvuleikina Landnámu, Horizon Zero Dawn Remastered og minnst á tvær nýjar heimildarmyndir sem tengjast tölvuleikjum.
-
52
Leikjavarpið #50 - The Legend of Zelda: Echoes of Wisdom og Xbox Partner Preview
Daníel Rósinkrans, Sveinn Aðalsteinn, Bjarki Þór og Unnur Sól fara yfir það helsta úr heimi tölvuleikja í fimmtugasta þætti Leikjavarpsins! Í þættinum er kafað í The Legend of Zelda: Echoes of Wisdom og skipst á skoðunum - athugið að umræðan er laus við alla spilla! Einnig er farið yfir valin atriði úr Xbox Partner Preview þar sem Xbox og þeirra samstarfsaðilar kynna væntanlega leiki á Xbox leikjatölvurnar - þar má m.a. nefna Subnautica 2. Tónlist: "Overworld" Kevin MacLeod (incompetech.com) Licensed under Creative Commons: By Attribution 4.0 License http://creativecommons.org/licenses/by/4.0/
-
51
Leikjavarpið #49 - The Plucky Squire og State of Play
Sveinn Aðalsteinn, Bjarki Þór og Daníel nokkur Rósinkrans ræða um það helsta úr heimi tölvuleikja. Daníel gagnrýnir The Plucky Squire þar sem söguhetjan hoppar úr ævintýrabók og lendir í allskyns ævintýrum. Strákarnir skoða hvað var fjallað um á State of Play þar sem Sony kynnir væntanlega leiki fyrir PlayStation leikjatölvurnar - Þar má meðal annars nefna samúræ-leikinn Ghost of Yōtei. Tónlist: "Overworld" Kevin MacLeod (incompetech.com) Licensed under Creative Commons: By Attribution 4.0 License http://creativecommons.org/licenses/by/4.0/
-
50
Leikjavarpið #48 - Astro Bot og PlayStation 5 Pro
Daníel Rósinskrans, Sveinn Aðalsteinn og Bjarki Þór fjalla um PlayStation 5 Pro sem er væntanleg í verslanir næstkomandi nóvember. Við hverju má búast og hvernig er Pro útgáfan öflugri en hefðbundna PlayStation 5? Tríóið ræðir einnig um einn af betri leikjum ársins, Astro Bot, sem er fyrsti leikurinn fær fimm stjörnur af fimm mögulegum hjá okkur nördunum.
-
49
Leikjavarpið #47 - Summer Game Fest, Xbox Games Showcase og Nintendo Direct
Daníel Rósinskrans og Bjarki Þór fjalla um þrjár stórar leikjakynningar - Summer Game Fest, Xbox Games Showcase og Nintendo Direct. Til umfjöllunar eru leikir á borð við Starfield, Super Mario Bros. Wonder, Mortal Kombat 1 og fjöldi annara leikja sem margir hverjir eru væntanlegir á komandi mánuðum. Upptaka frá 4. júlí 2023. Tónlist: "Overworld" Kevin MacLeod (incompetech.com) Licensed under Creative Commons: By Attribution 4.0 License http://creativecommons.org/licenses/by/4.0/
-
48
Leikjavarpið #46 - PlayStation Showcase 2023 og The Legend of Zelda: Tears of the Kingdom
Sveinn, Daníel og Bjarki fara yfir helstu leikina sem kynntir voru á PlayStation Showcase 2023 sýningunni. Undanfarna daga hafa strákarnir svo verið að spila The Legend of Zelda: Tears of the Kingdom og í síðari hluta þáttar segja þeir frá sínum fyrstu hughrifum á leiknum (umræður án söguspilla). Tónlist: "Overworld" Kevin MacLeod (incompetech.com) Licensed under Creative Commons: By Attribution 4.0 License http://creativecommons.org/licenses/by/4.0/
-
47
Leikjavarpið #45 - Týndi þátturinn
Ofurdúóið Daníel Rósinkrans og Sveinn Aðalsteinn tækla allt það helsta úr heimi tölvuleikja! Þar á meðal Xbox Developer_Direct, Hi-Fi Rush, FM 2023 fyrir PS5, DualSense Edge, Live Service leikina og síðast en ekki síst Forspoken. Athugið. Þátturinn var tekinn upp snemma í febrúar en upptakan fór á flakk og týndist. Upptakan fannst loks. Afleiðingar fylgdu í kjölfarið. Tæknimaður okkar var rekinn, ráðinn aftur, faðmaður og honum fyrirgefið. Mynd: Midjourney Tónlist: "Overworld" Kevin MacLeod (incompetech.com) Licensed under Creative Commons: By Attribution 4.0 License http://creativecommons.org/licenses/by/4.0/
-
46
Leikjavarpið #44 - Best of 2022 í tölvuleikjum
Þeir eru mættir aftur til leiks eftir vetrardvala! Daníel Rósinkrans, Sveinn og Bjarki fara saman yfir það sem stóð upp úr af nýliðnu leikjaári og gefa hlustendum smjörþefinn af leikjaárinu 2023. Strákarnir velja topp 3 bestu leiki ársins 2022 af sínu mati, ræða God of War: Ragnarök og fleira og fleira. Tónlist: "Overworld" Kevin MacLeod (incompetech.com) Licensed under Creative Commons: By Attribution 4.0 License http://creativecommons.org/licenses/by/4.0/
-
45
Leikjavarpið #43 - Stray, PowerWash Simulator og hinsegin í tölvuleikjum
Í þættinum er ofurkrúttlegi kisuleikurinn Stray tekinn fyrir en leikurinn hefur náð að heilla marga spilara upp úr skónum og hefur auk þess verið nokkuð áberandi á netinu og samfélagsmiðlum. Fyrst þarf þó að klæða sig í gulu gúmmíhanskana þar sem háþrýstiþvottur í PowerWash Simulator verður tekinn fyrir og enginn skítur skilinn eftir! Farið er yfir reynslusögur af því að steyma leikjum beint í gegnum PlayStation-leikjatölvuna og rætt um fréttir sem tengjast PlayStation 5, PSVR2 og Quest 2 sýndarveruleikagleraugunum. Í lok þáttar er fjallað um bílaleikinn Hot Wheels Unleashed sem býður spilurum meðal annars upp á það að búa til sínar eigin brautir. Allt þetta og fleira í fertugasta og þriðja þætti af Leikjavarpinu, hlaðvarpsþætti Nörd Norðursins! Efni þáttar: Hvað er verið að spila? Háþrýstiþvottur í PowerWash Simulator Kisuleikurinn Stray Hvernig virkar að streyma PS-leikjum? PS5 með stuðning við 1440p skjái PSVR2 upplýsingar og Quest 2 hækkar í verði Hot Wheels Unleashed Myndir úr Stray og PowerWash Simulator, Pride fáninn ásamt digital töfrum Bjarka Tónlist: "Overworld" Kevin MacLeod (incompetech.com) Licensed under Creative Commons: By Attribution 4.0 License http://creativecommons.org/licenses/by/4.0/
-
44
Leikjavarpið #42 - Elden Ring, Grow og Ísland í tölvuleikjum
Bjarki, Daníel og Sveinn spjalla um sjóðheitar tölvuleikjafréttir ásamt að taka fyrir Grow: Song of the Evertree og stórleikinn Elden Ring. Yfirlit þáttar: Í spilun Ísland í tölvuleikjum Útgáfudagur God of War Skull and Bones kynning og útgáfudagur Forspoken seinkað Ekkert RDR eða GTA 4 Remake Gollum stiklan Grow: Song of the Evertree leikjarýni Eldheitar Elden Ring umræður Myndir úr Elden Ring (4) og Grow: Song of the Evertree (2) Tónlist: "Overworld" Kevin MacLeod (incompetech.com) Licensed under Creative Commons: By Attribution 4.0 License http://creativecommons.org/licenses/by/4.0/
-
43
Leikjavarpið #41 - TMNT: Shredder’s Revenge, Nintendo Direct og Kirby
Sveinn, Daníel og Bjarki fjalla um allt það helsta úr heimi tölvuleikja! Farið er yfir hvað kom fram á nýjustu Nintendo Direct Mini kynningunni, spjalla um leikina Teenage Mutant Ninja Turtles: Shredder's Revenge, Horizon: Forbidden West og Kirby and the Forgotten Land, ræða kosti og galla nýjustu PlayStation áskriftarleiðanna og fleira. Tónlist: "Overworld" Kevin MacLeod (incompetech.com) Licensed under Creative Commons: By Attribution 4.0 License http://creativecommons.org/licenses/by/4.0/
-
42
Leikjavarpið #40 - E3-farinn Bjössi mætir í spjall
Bjössi úr Gamestöðinni mætir í Leikjavarpið og ræðir E3 ferðina sína árið 2018. Einnig segir Sveinn frá ferðalagi sínu þegar hann heimsótti Gamescom í Köln árið 2012. Mynd: Myndblanda - Bjössi, Sveinn og Daníel og Wikimedia Commons (Dronepicr) Tónlist: "Overworld" Kevin MacLeod (incompetech.com) Licensed under Creative Commons: By Attribution 4.0 License http://creativecommons.org/licenses/by/4.0/
-
41
Leikjavarpið #39 - Summer Game Fest og Xbox & Bethesda Games Showcase
Sveinn Aðalsteinn og Daníel Rósinkrans fjalla um Summer Game Fest og Xbox & Bethesda Games Showcase leikjakynningarnar sem fóru fram fyrir stuttu. Á kynningunum var sýnt úr og fjallað um væntanlega leiki sem flestir eru væntanlegir á þessu eða næsta ári. Þar á meðal eru leikirnir Redfall, The Callisto Protocol, High on Life og fjöldi annara leikja. Ef þú vilt vita hvað er framundan í leikjaheiminum er þessi þáttur algjört möst! Tónlist: "Overworld" Kevin MacLeod (incompetech.com) Licensed under Creative Commons: By Attribution 3.0 License creativecommons.org/licenses/by/3.0/
-
40
Leikjavarpið #38 - State of Play, Diablo Immortal og Sonic Frontiers
Tölvuleikjasérfræðingarnir Daníel Rósinkrans og Sveinn Aðalsteinn hjá Nörd Norðursins fjalla um það allt það helsta úr heimi tölvuleikja. Aðalefni þáttarins er State of Play leikjakynningin hjá Sony en einnig er fjallað um ýmislegt fleira eins og Diablo Immortal, Star Wars Jedi: Survivor, Sonic Frontiers og hvað er framundan í sumar. Tónlist: "Overworld" Kevin MacLeod (incompetech.com) Licensed under Creative Commons: By Attribution 3.0 License creativecommons.org/licenses/by/3.0/
-
39
Leikjavarpið #37 - Væntanlegt árið 2022, PSVR 2 og Inscryption
Daníel Rósinkrans, Bjarki, Sveinn og hinn Daníel ræða allt það helsta úr heimi tölvuleikja í þrítugasta og sjöunda þætti Leikjavarpsins, sem er jafnframt fyrsti Leikjavarpsþáttur ársins 2022. Stóra umræðuefni þáttarins eru væntanlegir leikir á komandi ári en auk þess er fjallað um PSVR 2, E3 2022 og tölvuleikina Inscryption, Death's Door og Halo Infinite. Efni þáttar: Hvað er verið að spila? Daníel og Sveinn leggja lokadóm á Halo Infinite Inscryption, fyrstu hughrif Sony kynnir PSVR 2 Death's Door leikjarýni E3 2022 verður á netinu Væntanlegir tölvuleikir árið 2022 Leikjaklúbburinn Tónlist: "Overworld" Kevin MacLeod (incompetech.com) Licensed under Creative Commons: By Attribution 3.0 License creativecommons.org/licenses/by/3.0/ Neon Laser Horizon by Kevin MacLeod Link: https://incompetech.filmmusic.io/song/7015-neon-laser-horizon License: https://filmmusic.io/standard-license
-
38
Leikjavarpið #36 - Leikir ársins 2021
Daníel Rósinkrans, Sveinn Aðalsteinn og Bjarki Þór fjalla um það helsta úr heimi tölvuleikja og gera upp tölvuleikjaárið 2021. Farið er yfir hvaða leikir unnu til verðlauna á The Game Award og fjallað um ný sýnishorn úr leikjum sem sýnd voru á hátíðinni. Strákarnir fara yfir þá fimm leiki sem stóðu upp úr á árinu að þeirra mati og svo er Tölvuleikjaklúbburinn á sínum stað. Allt þetta og fleira til í þrítugasta og sjötta þætti Leikjvarpsins! Efni þáttar: Í spilun Chorus leikjaumfjöllun Halo Infinite Allt það helsta frá The Game Awards Hellblade 2 sýnishornið The Matrix Awakens: An Unreal Engine 5 Experience Sony með GamePass kerfi í bígerði Leikaklúbburinn (NUTS) Leikir ársins að mati Nörd Norðursins Tónlist: "Overworld" Kevin MacLeod (incompetech.com) Licensed under Creative Commons: By Attribution 3.0 License creativecommons.org/licenses/by/3.0/ Neon Laser Horizon by Kevin MacLeod Link: https://incompetech.filmmusic.io/song/7015-neon-laser-horizon License: https://filmmusic.io/standard-license Mynd: Frá vinstri: Deathloop (2021), It Takes Two (2021), The Game Awards (2021), Returnal (2021), Ratchet & Clank: Rift Apart (2021)
-
37
Leikjavarpið #35 - Viðtal við Ara Þór hjá Epic Games
Í þrítugasta og fimmta þætti Leikjavarpsins spjalla þeir Bjarki Þór og Daníel Rósinkrans við Ara Þór sem starfar sem boðberi (evangelist) hjá Epic Games. Í þættinum fer Ari yfir feril sinn í leikjaiðnaðinum en hann hefur meðal annars komið að gerð Angry Birds tölvuleiks og Returnal sem var gefin út fyrir PlayStation 5 leikjatölvuna. Í þættinum er einnig fjallað um Unreal leikjavélina, upphaf HRingsins, PS5 prótótýpuna, íslenska tölvuleikjafyrirtækið Gogogic (sem gaf meðal annars út leikinn Vikings of Thule) tölvuleikjabransann og margt fleira. Tónlist (intro): Voxel Revolution by Kevin MacLeod Link: https://incompetech.filmmusic.io/song/7017-voxel-revolution License: https://filmmusic.io/standard-license
-
36
Leikjavarpið #34 - Cyberpunk 2077, Just Dance 2022 og The Game Awards tilnefningar
Efni þáttar: Leikir í spilun - Hvað hafa strákarnir verið að spila frá því seinast? The Game Awards tilnefningar - Daníel Rósinkrans leiðir umræðuna og skoðar hvaða leikir eru tilefndir í ár. Cyberpunk 2077 - Ár er liðið frá útgáfu, hefur eitthvað breyst? Steinar Logi segir frá því hvernig leikurinn er að keyra á PS5 í dag. Hvaða leikir voru keyptir á Black Friday? - Eru veskin nokkuð orðin tóm?! Kena: Bridge of Spirits - Daníel Rósinkrans heldur áfram að gagnrýna þennan fallega leik. Just Dance 2022 - Bjarki fer í dansskóna og rýnir í nýjast Just Dance leikinn. Battlefield 2042 - Sveinn fer yfir stöðuna á Battlefield 2042 sem hefur verið að glíma við ýmiskonar vandamál. Halo Infinite - Fyrstu hughrif. Leikjaklúbburinn - Donut County og NUTS - Daníel Páll leiðir okkur áfram í gegnum Kleinuhringjasýslu og næsti leikur er kynntur til sögunnar; NUTS! Tónlist: "Overworld" Kevin MacLeod (incompetech.com) Licensed under Creative Commons: By Attribution 3.0 License creativecommons.org/licenses/by/3.0/ Neon Laser Horizon by Kevin MacLeod Link: https://incompetech.filmmusic.io/song/7015-neon-laser-horizon License: https://filmmusic.io/standard-license Mynd: Cyberpunk 2077 (CD Projekt), Kena: Bridge of Spirits (Ember Lab) og Just Dance 2022 (Ubisoft)
-
35
Leikjavarpið #33 - Staðan á PS5 og Xbox Series X ári eftir útgáfu
Strákarnir í Leikjavarpinu fjalla um allt það helsta úr heimi tölvuleikja, þar á meðal nýju Halo Infinite og Elden Ring leikjakynningarnar. Þrír tölvuleikir eru teknir fyrir í þættinum; adrenelínleikurinn Riders Republic, þægilega rólegi indíleikurinn Unpacking og ævintýraleikurinn Kena: Bridge of Spirits. Ár er liðið frá útgáfu PlayStation 5 og Xbox Series X leikjatölvunum og strákarnir yfir hvað hefur staðið upp úr á liðnu ári, farið yfir helstu kosti og galla leikjatölvanna. Fjallað er um notendaviðmót, kælingu, hvort tölvurnar séu hljóðlátar eða háværar, hraða, geymslupláss, gæði, leikjaúrval, persónulega upplifun og fjarstýringar svo eitthvað sé nefnt. Leikjaklúbburinn er á sínum stað þar sem fjallað er um leikinn Papers, Please og nýr leikur settur á leikjalistann. Strákarnir í Leikjavarpinu fjalla um allt það helsta úr heimi tölvuleikja, þar á meðal nýju Halo Infinite og Elden Ring leikjakynningarnar. Þrír tölvuleikir eru teknir fyrir í þættinum; adrenelínleikurinn Riders Republic, þægilega rólegi indíleikurinn Unpacking og ævintýraleikurinn Kena: Bridge of Spirits. Ár er liðið frá útgáfu PlayStation 5 og Xbox Series X leikjatölvunum og strákarnir yfir hvað hefur staðið upp úr á liðnu ári, farið yfir helstu kosti og galla leikjatölvanna. Fjallað er um notendaviðmót, kælingu, hvort tölvurnar séu hljóðlátar eða háværar, hraða, geymslupláss, gæði, leikjaúrval, persónulega upplifun og fjarstýringar svo eitthvað sé nefnt. Leikjaklúbburinn er á sínum stað þar sem fjallað er um leikinn Papers, Please og nýr leikur settur á leikjalistann. Efni þáttar: Leikir í spilun Halo Infinite kynningin Staða Xbox Series S/X einu ári eftir útgáfu Elden Ring kynning Sveinn ræðir Riders Republic Fleiri seinkannir á vélum vegna íhlutaskorts Bjarki og Daníel spila Unpacked á Switch Nintendo fréttir Daníel fjallar um Kena: Bridge of Spirits, Staða PlayStation 5 einu ári eftir útgáfu Leikjaklúbburinn (Paper, Please) Tónlist: Neon Laser Horizon by Kevin MacLeod Link: https://incompetech.filmmusic.io/song/7015-neon-laser-horizon License: https://filmmusic.io/standard-license "Overworld" Kevin MacLeod (incompetech.com) Licensed under Creative Commons: By Attribution 3.0 License creativecommons.org/licenses/by/3.0/ Mynd: PlayStation 5 og Xbox Series X
-
34
Leikjavarpið #32 - Guardians of the Galaxy, State of Play og Nintendo Expansion Pack
Þrítugasti og annar þátturinn af Leikjavarpinu, hlaðvarpi Nörd Norðursins, er nú kominn á allar helstu hlaðvarpsveitur! Að þessu sinni eru það Sveinn Aðalsteinn, Daníel Rósinkrans og Bjarki Þór sem eru mættir til leiks til að ræða allt það helst úr heimi tölvuleikja. Það er úr ýmsu að taka og má þar meðal annars nefna nýjar fréttir varðandi útgáfu Cyberpunk 2077 og The Witcher, ný stikla úr Uncharted kvikmyndinni, Nintendo Expansion Pack-ið skoðað og Sveinn rýnir í Guardians of the Galaxy. Allt þetta og margt fleira í nýjasta þætti Leikjavarpsins! Efni þáttar: Cyberpunk og Witcher uppfærslurrnar seinkað Fyrsta stiklan fyrir Uncharted kvikmyndina skoðuð God of War væntanlegur á PC GTA þríleikurinn væntanlegur á þessu ári Nintendo Expansion Pack nú fáanlegt Sveinn gagnrýnir Guardians of the Galaxy State of Play yfirferð - væntanlegir leikir á PlayStation (Leikjaklúbburinn geymir umfjöllun og spilar áfram Paper, Please fyrir næsta þátt) Mynd: Guardians of the Galaxy (2021)
-
33
Leikjavarpið #31 - Nintendo fréttir, Metroid Dread og SSD diskar í PS5
Daníel Rósinkrans, Sveinn og Bjössi hjá Gamestöðinni eru mættir til að fjalla um allt það helsta úr heimi tölvuleikja. Í þættinum er ákveðið Nintendo þema þar sem fjallað er um væntanlega Animal Crossing viðbót, Nintendo Online viðbótaráskrift sem gerir áskrifendum kleift að spila gamla N64 og Sega Genesis leiki á Switch og að lokum rýnir Rósinkrans í Metroid Dread sem margir Nintendo-spilarar hafa beðið spenntir eftir. Auk þess fjalla þremenningarnir um Gotham Knights, Suicide Squad og Back 4 Blood sem kom út í seinustu viku. Tölvuleiknum var streymt á Twitch-rás Nörd Norðursins fyrir nokkrum dögum þar sem nördarnir börðust hetjulega gegn óðum zombískrímslum. Tæknimál koma einnig við sögu þar sem Sveinn upplýsir hlustendur um hvað ber að hafa í huga þegar verið er að uppfæra geymsluplássið á PS5 leikjatölvunni. Umræðuefnið tengist grein sem var nýlega birt á heimasíðu Nörd Norðursins þar sem verð og framboð á SSD diskum fyrir PS5 hér á landi var sérstaklega skoðað. Samhliða þeirri umfjöllun hefur Nörd Norðursins birta leiðbeiningar um hvernig er hægt að bæta við SSD diski við PS5 tölvuna. Allt þetta og meira til í nýjasta þætti Leikjavarpsins! Efni þáttar: *Back 4 Blood *Animal Crossing viðbót *SSD ævintýri Sveins *Nintendo Online viðbótar áskrift *Gotham Knights og Suicide Squad á DC Fandome *Metroid Dread Mynd af Metroid í Metroid Dread (Nintendo)
-
32
Leikjavarpið #30 - Far Cry 6, FIFA 22 og Battlefield 2042 Beta
Tölvuleikjanördarnir Bjarki Þór, Steinar Logi, Sveinn Aðalsteinn og Daníel Páll fara um víðan völl í þrítugasta þætti Leikjavarpsins. Steinar segir frá Alan Wake Remastered sem var gefinn út í byrjun mánaðar, Sveinn gagnrýnir Far Cry 6 en hann hefur spilað allar Far Cry leikina og þekkir seríuna því mjög vel, Bjarki skellir sér í takkaskóna og tæklar FIFA 22 og Hypermotion-tæknina sem EA notaði við gerð leiksins, Daníel heldur áfram með Leikjaklúbbinn og kynnir næsta leik sem klúbburinn ætlar að spila. Allt þetta og margt fleira í nýjasta þætti Leikjavarpsins! Efni þáttar: Hvað er verið að spila? Alan Wake Remastered Windows 11 Verðið á Nintendo Switch OLED á Íslandi Battlefield 2042 Beta Auka SSD diskar fyrir PS5 Far Cry 6 FIFA 22 Leikjaklúbburinn GTA Definitive Edition safnið Streymi planað: Back 4 Blood Tónlist: Neon Laser Horizon by Kevin MacLeod Link: https://incompetech.filmmusic.io/song/7015-neon-laser-horizon License: https://filmmusic.io/standard-license "Overworld" Kevin MacLeod (incompetech.com) Licensed under Creative Commons: By Attribution 3.0 License creativecommons.org/licenses/by/3.0/ Mynd: Haninn Chicharrón úr Far Cry 6
-
31
Leikjavarpið #29 - Deathloop, Nintendo Direct og NBA2K22
Tölvuleikjanördarnir Sveinn Aðalsteinn, Steinar Logi, Bjarki Þór og Daníel Páll fara yfir allt það helsta úr heimi tölvuleikja í nýjasta þætti Leikjavarpsins, hlaðvarpsþætti Nörd Norðursins. Í þættinum rýnir Sveinn í fyrstu persónu skotleikinn Deathloop sem kom í verslanir fyrr í þessum mánuði. Leikurinn hefur hlotið lof gagnrýnenda og gefa leikjasíðurnar IGN og Gamespot leiknum 10 af 10 mögulegum í einkunn. Nýjasta Nintendo Direct kynningin er krufin þar sem Nintendo kynnti nýtt efni úr væntanlegri Mario kvikmynd, sýndi úr Bayonetta 3 og margt fleira. Steinar fræðir hlustendur um körfuboltaleikinn NBA2K22 þar sem spilarar þurfa ekki eingöngu að hugsa um troðslur og varnarleikinn heldur þurfa einnig að huga að tískumálum, pósum og töffara stigum. Nýr dagskrárliður er kynntur til sögunnar sem kallast Leikjaklúbburinn. Þar eru hlustendur hvattir til að spila valda smelli með strákunum í Leikjavarpinu, fyrsti leikur Leikjaklúbbsins er Day of the Tentacle Remastered frá árinu 2016. Hlustendur geta svo fylgst með gang mála, tekið þátt í umræðum og komið með hugmyndir að leik til að spila í Leikjaklúbbnum á Instagrammi Nörd Norðursins. Þetta er aðeins brot af því sem fjallað er um í þættinum en einnig eru teknar fyrir ferskar tölvuleikjafréttir, rýnt í Diablo II: Resurrected og Death Stranding Director's Cut á PlayStation 5. Hægt er að hlusta á þáttinn á heimasíðu Nörd Norðursins og öllum helstu hlaðvarpsveitum. Tónlist: Neon Laser Horizon by Kevin MacLeod Link: https://incompetech.filmmusic.io/song/7015-neon-laser-horizon License: https://filmmusic.io/standard-license "Overworld" Kevin MacLeod (incompetech.com) Licensed under Creative Commons: By Attribution 3.0 License creativecommons.org/licenses/by/3.0/ Mynd: Breytt mynd úr Deathloop og NBA2K22
-
30
Leikjavarpið #28 - PlayStation Showcase 2021, Twelve Minutes og Daði Freyr
Daníel Rósinkrans, Sveinn Aðalsteinn, Steinar Logi og Bjarki Þór fjalla um allt það helsta úr heimi tölvuleikjanna í nýjasta þætti Leikjvarpsins. Áhersla er lögð á PlayStation Showcase 2021 í þættinum en auk þess gagnrýnir Bjarki Twelve Minutes, fjallað er um Xbox Game Pass tónleikana með Daða Frey og nýjustu fréttirnar. Efni þáttar: Í spilun Epic Games vs Apple Twelve Minutes Horizon Forbidden West útgáfur Daði Freyr með Xbox Game Pass tónleika Heimsmeistaramótið í League of Legends haldið á Íslandi PlayStation Showcase 2021 Byrjunar- og endastef: "Overworld" Kevin MacLeod (incompetech.com) Licensed under Creative Commons: By Attribution 3.0 License creativecommons.org/licenses/by/3.0/ Mynd: Thor úr God of War: Ragnarok og PlayStation Showcase 2021 lógóið
-
29
Leikjavarpið #27 - Gamescom, Baldo og Arena heimsókn
Bjarki Þór, Sveinn Aðalsteinn, Daníel Rósinkrans og Daníel Páll ræða um allt það helsta úr heimi tölvuleikja í þessum tuttagasta og sjöunda þætti Leikjavarpsins, sem er sérstaklega tileinkaður Gamescom 2021! Auk Gamescom er fjallað um heimsókn Nörd Norðursins til Arena, þjóðarleikvangs rafíþrótta á Íslandi, Ghost of Tsushima Director's Cut, Baldo, gamla góða Quake og fleira. Efni þáttar: Leikir í spilun Xbox kynningin á Gamescom Arena sneak peak Gamescom (Saints Row, Halo Infinite, CoD Vanguard o.fl.) Psychonauts 2 Baldo: The Guardian Owls Ghost of Tsushima Director's Cut Twelve Minutes Quake uppfærður Byrjunar- og endastef: "Overworld" Kevin MacLeod (incompetech.com) Licensed under Creative Commons: By Attribution 3.0 License creativecommons.org/licenses/by/3.0/
-
28
Leikjavarpið #26 - Ratchet & Clank, Steam Deck og Activision Blizzard kæran
Tölvuleikjasérfræðingarnir Steinar, Daníel, Sveinn og Bjarki ræða um allt það helsta úr heimi tölvuleikja í þessum 26. þætti Leikjavarpsins. Efni þáttar: Hvað er verið að spila? Ratchet & Clank: Rift Apart gagnrýni The Witcher: Monster Slayer Valve kynnir Steam Deck Nintendo kynnir Switch OLED Sveinn kláraði Demon's Souls á PS5! The Legend Of Zelda: Skyward Sword HD umfjöllun Activision Blizzard sakað um kynbundið ofbeldi, kynbundna áreitni og kynferðislega áreitni Hvað er spennandi framundan árið 2021? Byrjunar- og endastef: "Overworld" Kevin MacLeod (incompetech.com) Licensed under Creative Commons: By Attribution 3.0 License creativecommons.org/licenses/by/3.0/ Forsíðumynd: Ratchet & Clank: Rift Apart
-
27
Leikjavarpið #25 - Allt það helsta frá E3 2021
Daníel, Sveinn og Bjarki fara yfir allt það helsta frá E3 tölvuleikjaráðstefnunni sem haldin var á netinu fyrr í júnímánuði. Efni þáttar: Resident Evil Village Returnal Ratchet & Clank: Rift Apart Sony skrópar á E3, aftur! Ubisoft E3 kynningin Samstarf Myrkur Games og Prime Matter (Koch Media Group) Nintendo E3 kynningin Microsoft og Bethesda með sameiginlega kynningu Byrjunar- og endastef: "Overworld" Kevin MacLeod (incompetech.com) Licensed under Creative Commons: By Attribution 3.0 License creativecommons.org/licenses/by/3.0/
-
26
Leikjavarpið #24 - Afmæli, martraðir og pöddusnakk
Þríeykið, Sveinn, Daníel og Bjarki, halda upp á 10 ára afmæli Nörd Norðursins og spjalla um leikjaárið 2011 og hvernig tölvuleikir og leikjamenningin hefur þróast síðan þá. Efni þáttar: Sony fréttir (Last of Us og Days Gone 2) Little Nightmares II Outriders Nörd Norðursins 10 ára! Leikjaárið 2011 Bugnax Maquette Oddworld Byrjunarstef: "Overworld" Kevin MacLeod (incompetech.com) Licensed under Creative Commons: By Attribution 3.0 License creativecommons.org/licenses/by/3.0/
-
25
Leikjavarpið #23 - State of Play, Nintendo Direct og PSVR 2
Bjarki lávarður, Sveinn og Daníel fara yfir það helsta úr heimi tölvuleikja. Nintendo hélt Nintendo Direct kynningu þann 17. febrúar þar sem fyrirtækið fór yfir það sem framundan er fyrir Nintendo Switch. Sveinn fjallar um nýtt System Shock sýnishorn sem var birt á dögunum. Sony héldu State of Play kynningu þar sem farið var yfir það sem væntanlegt er á PlayStation 4 og 5. Fyrirtækið hefur einnig tilkynnt að önnur útgáfa af PSVR sýndarveruleikagræjum er væntanleg fyrir PS5. Um þetta og margt fleira er fjallað um í 23. þætti Leikjavarpsins! Efni þáttar: Nintendo Direct System Shock sýnisorn PSVR-2 væntanlegt fyrir PS5 BlizzcOnline EA hætta við Anthem 2.0 Pokémon Presents State of Play Byrjunarstef: "Overworld" Kevin MacLeod (incompetech.com) Licensed under Creative Commons: By Attribution 3.0 License creativecommons.org/licenses/by/3.0/
-
24
Leikjavarpið #22 - Hitman 3, Super Mario 3D World og TOHU
Sveinn, Bjarki og Daníel fjalla um allt það helsta úr heimi tölvuleikja í 22. þætti Leikjavarpsins! EFNI ÞÁTTAR: Resident Evil 8 Xbox Game Pass Vs. Xbox Gold Mass Effect Legendary Edition PS+ áskriftir TOHU Hitman 3 PS5 selst vel Ratchet & Clank: Rift Apart útgáfudagur The Medium Ring Fit Adventure #RingFitFebrúar Super Mario 3D World á Switch The Last of Us HBO leikaraval Byrjunarstef: "Overworld" Kevin MacLeod (incompetech.com) Licensed under Creative Commons: By Attribution 3.0 License creativecommons.org/licenses/by/3.0/
-
23
Leikjavarpið #21 – The Legend of Zelda 35 ára
Oddur Bauer og Gylfi Már eru gestir Daníels Rósinkrans í þessum sérstaka The Legend of Zelda þætti Leikjavarpsins. Liðin eru 35 ár frá útgáfu fyrsta Zelda tölvuleiksins en leikurinn var gefinn út í Japan árið 1986 samhliða Famicom leikjatölvunni. Í þættinum fara þeir Daníel, Oddur og Gylfi yfir sögu The Legend of Zelda leikjanna, ræða um tónlistina, framtíð seríunnar og margt fleira. Efni þáttarins: Saga The Legend of Zelda leikjanna, Majora’s Mask Vs. Ocarina of Time, Tónlist úr Zelda, 2D Zelda Vs. 3D Zelda, Uppáhalds Nintendo leikjatölvan, Framtíð Zelda leikjanna. Tónlist (intro og outro): Voxel Revolution by Kevin MacLeod Link: https://incompetech.filmmusic.io/song/7017-voxel-revolution License: https://filmmusic.io/standard-license
-
22
Leikjavarpið #20 - Væntanlegir tölvuleikir 2021
Daníel, Sveinn og Bjarki fara yfir það helsta sem leikjaárið 2021 hefur upp á að bjóða. Má þar nefna titla á borð við Ratchet and Clank: Rift Apart, nýjan Resident Evil leik, The Medium, Far Cry 6, Little Nightmares II, Halo Infinite, Returnal og fleiri leiki. Ætli mörgum leikjum verði frestað til ársins 2022 vegna Covid? Ræðum þetta og fleira í nýjasta þætti Leikjavarpsins! Mynd: Halo Infinite, Returnal og Far Cry 6. Byrjunarstef: "Overworld" Kevin MacLeod (incompetech.com) Licensed under Creative Commons: By Attribution 3.0 License creativecommons.org/licenses/by/3.0/
We're indexing this podcast's transcripts for the first time — this can take a minute or two. We'll show results as soon as they're ready.
No matches for "" in this podcast's transcripts.
No topics indexed yet for this podcast.
Loading reviews...
ABOUT THIS SHOW
Hlaðvarp þar sem fjallað er um það helsta úr heimi tölvuleikja. Umsjónarmenn þáttar eru þeir Bjarki Þór Jónsson, Daníel Rósinkrans og Sveinn Aðalsteinn.
HOSTED BY
nordnordursins
CATEGORIES
Loading similar podcasts...