Lífið á meðan

PODCAST · health

Lífið á meðan

Lífið á meðan er hlaðvarp um aðstandendur krabbameinssjúklinga. Í þáttunum ræði ég við aðstandendur og fólk sem situr með þeim á einn eða annan hátt um lífið sem heldur áfram á meðan allt er í gangi. Samtöl um reynslu sem margir þekkja en fá sjaldan tækifæri til að tala um.

  1. 6

    5. Margrét Rósa

    Í þessum þætti af Lífið á meðan fæ ég til mín Margréti.Hún er ung kona sem er að ganga í gegnum það að mamma hennar er með ólæknandi krabbamein. Við tölum um það sem gerist þegar lífið breytist svona skyndilega – óvissuna, tilfinningarnar og það að þurfa samt einhvern veginn að halda áfram. Þetta er samtal um að vera aðstandandi, um sorg á meðan…en líka um tengsl, ást og von.

  2. 5

    4. Guðlaug Ingibjörg

    Í nýjasta þætti af Lífið á meðan fæ ég til mín Guðlaugu.Á einni nóttu breyttist allt. Barn verður langveikt, foreldrar fara út af vinnumarkaði og lífið sem þau þekktu hverfur.Í þættinum ræðum við hvernig það er að standa í svona aðstæðum, þegar þú veist ekkert hvert lífið stefnir, þegar þú þarft að verða sérfræðingur barnsins þíns og halda áfram á sama tíma.Guðlaug hefur ótrúlega nálgun á lífið, mikla kómík og finnur þakklæti á stöðum þar sem maður myndi kannski ekki búast við því.Við ræðum líka:– álagið sem fylgir því að verða allt í einu “hjúkrunarforeldri”– hvað situr eftir þegar fólk er ekki nærgætið– hvernig tengsl og félagslíf breytast– og af hverju setningin „lífið er núna“ fær allt aðra merkingu

  3. 4

    3. Tómas Þór

    Í þættinum sest ég niður með Tómasi Þór, og ræði við hann um að vera aðstandandi þegar lífið breytist á einu augnabliki.Þau voru stödd í ferli hjá Livio að reyna að eignast barn þegar maki hans greindist með mergæxli. Framtíðin breyttist og með henni allt sem þau höfðu séð fyrir sér. Í þættinum förum við yfir hvað er ómetanlegt að hafa góðan stuðning, hvernig tengslin geta bæði styrkst og stundum breyst og hvernig það er að lifa með þeirri vitneskju að krabbameinið muni koma aftur.

  4. 3

    2. Arna Katrín

    Í þættinum sest ég niður með Örnu Katrínu, sem segir frá sinni reynslu af því að verða aðstandandi þegar maki hennar greindist með krabbamein.Við ræðum augnablikið þegar lífið breytist, tilfinningarnar sem fylgja og það sem gerist á bak við tjöldin.Hvernig hlutverkin í sambandinu geta breyst og hvernig það er að halda lífinu gangandi þegar allt er í óvissu.Við tölum líka um hvernig það er þegar lítil börn eru í kringum mann á svona tíma og hvernig maður reynir einhvern veginn að halda utan um daglegt líf á meðan allt er að breytast.Ég er Örnu ótrúlega þakklát fyrir að hafa komið í fyrsta viðtalsþáttinn og hjálpað mér að rífa plásturinn af.

  5. 2

    1. kynningarþáttur

    Í fyrsta þætti af „Lífið á meðan“ deili ég stuttlega minni eigin sögu sem aðstandandi krabbameinssjúklings síðustu tvö ár. Ég tala um hvernig lífið breyttist við greininguna, hvernig daglegt líf heldur áfram þrátt fyrir óvissuna.Þessi þáttur er fyrir þig sem ert að lifa lífinu „á meðan“ eitthvað stórt og oft sársaukafullt er í gangi og fyrir þá sem vilja skilja aðstandendur betur.

Type above to search every episode's transcript for a word or phrase. Matches are scoped to this podcast.

Searching…

No matches for "" in this podcast's transcripts.

Showing of matches

No topics indexed yet for this podcast.

Loading reviews...

ABOUT THIS SHOW

Lífið á meðan er hlaðvarp um aðstandendur krabbameinssjúklinga. Í þáttunum ræði ég við aðstandendur og fólk sem situr með þeim á einn eða annan hátt um lífið sem heldur áfram á meðan allt er í gangi. Samtöl um reynslu sem margir þekkja en fá sjaldan tækifæri til að tala um.

HOSTED BY

Lífið á meðan

CATEGORIES

URL copied to clipboard!