Lyklavöldin

PODCAST · society

Lyklavöldin

Þættir um pólitík og samfélagsmál.

  1. 31

    “Þetta er mjög stórt mál fyrir okkur…!”

    Þingmennirnir Pawel Bartoszek og Guðlaugur Þór Þórðarson takast á um ESB í eldheitum rökræðum. Hvort fólk skipti um skoðun á þessum málum eftir þáttinn er erfitt að segja en báðir færa sterk rök fyrir skoðun sinni.

  2. 30

    “Aðeins 3 vikur í kosningar og spennan magnast”

    Fréttahaukarnir Aðalsteinn Kjartansson á Heimildinni og Stígur Helgason á RÚV fara yfir stöðuna þegar stutt er til sveitastjórnarkosninga. Þeir velta vöngum yfir helstu átakamálunum í landspólitíkinni og kosningum um aðildarviðræður við ESB.  Hvað gerist ef þjóðin segir nei?

  3. 29

    “Reykjavíkurborg ber mestu sökina á hárri verðbólgu”

    Ari Edwald oddviti Miðflokksins og Kristinn Jón oddviti Pírata mætast í stórskemmtilegum rökræðum.  Þeir takast á um húsnæðismál, Borgarlínu, rekstur borgarinnar, lausnir í leikskólamálum og þjónustu við borgarbúa.  Þeir ræða líka væntingar sínar um hverjum þeir vilja starfa með að loknum kosningum.

  4. 28

    Lyklavöldin. Páskaþáttur nr. 3. um þróun merkra svæða í Reykjavík.

    Í páskaþætti nr. 3 um þróun merkra svæða í Reykjavík fer Dr. Páll Jakob Líndal yfir sögu Slippsvæðisns eða Vesturbugtar. Páll hefur sterkar skoðanir á þróun svæðisins og er gagnrýnin á fyrirhugaða uppbyggingu þess.Hægt er að horfa og hlusta á þættina á Spotify og klakinnstudio.is

  5. 27

    Lyklavöldin. Páskaþáttur nr. 2. um þróun merkra svæða í Reykjavík.

    Í þessum þætti segir Dr. Páll Jakob Líndal okkur frá sögu hafnarsvæðisins og þróun skipulagsins á Hafnartorgi og Austurbakka.

  6. 26

    Lyklavöldin - Þrír sérstakir páskaþættir

    Dr. Páll Jakob Líndal segir okkur frá þróun merkra svæða í Reykjavík.Í fyrsta þætti tökum við fyrir Ingólfstorg. Páll Jakob rekur sögu svæðisins og leggur líka mat á hvað hafi heppnast eða farið miður í hönnun Ingólfstorgs.Í þætti tvö ræðum við þróun svæðisins við Hafnartorg og í þriðja þætti verður Vesturbugt (slippsvæðið) til umfjöllunar.

  7. 25

    “Viltu ekki draga andann svo ég komist að…”

    Þingmennirnir Diljá Mist Einarsdóttir og Sigmar Guðmundsson voru í miklu stuði þegar þau mættu í Lyklavöldin.Við ræddum stöðu ríkisstjórnarinnar, lausnir í núverandi efnahagsástandi, ESB atkvæðagreiðsluna og borgarmálin þar sem þau spá fyrir um gengi flokkana.

  8. 24

    “Þráðurinn er stuttur núna…!

    Erla Björg Gunnarsdóttir fyrrverandi ritstjóri fréttastofu Sýnar og Baldvin Þór Bergsson ritstjóri fréttatengdra þátta RÚV eru gestir þáttarins.  Við veltum upp hvort ríkisstjórnin sé búin að missa tökin og traustið.  Ræðum líka sterk viðbrögð fulltrúa verkalýðs og atvinnulífs um stöðu mála, tölum um ESB, já eða nei kosninguna og borgarmálin.  Þau Erla Björg og Baldvin spá líka fyrir um hverjir mynda nýjan meirihluta í borginni í vor.

  9. 23

    “Eins og stjórnsamur meðvirknisjúklingur”

    Björg Magnúsdóttir oddviti Viðreisnar og Pétur Marteinsson oddviti Samfylkingar segja að vond þjónusta og flækjustig í borgarkerfinu hafi rekið þau inn í borgarpólitíkina. Þau ætla að bregðast hratt við komist þau í meirihluta í Reykjavík. Þau vilja stöðva flótta ungs fólks úr borginni og endurskoða mörg uppbyggingarverkefni sem eru komin í gang. Þau takast á um lausnir í húsnæðismálum, leikskólum, samgöngumálin, uppbyggingu á þjóðarleikvangi og ræða mögulega samstarfsflokka nái þau góðri kosningu.

  10. 22

    “Kemur ekki til greina að starfa með Samfylkingunni”

    Einar Þorsteinsson og Sanna Magdalena Mörtudóttir takast á um húsnæðismál, Borgarlínu, skólamál, einkarekstur og svara hreinskilnislega hverjum þau vilji starfa með eftir kosningar.

  11. 21

    “Bíddu, hvað eru ráðamenn að hugsa..!”

    Jóhann Bjarni Kolbeinsson fréttamaður Kveiks og Berghildur Erla Bernharðsdóttir fréttamaður á Sýn ræða Bakkakotsmálið og setja í samhengi við sambærileg mál þar sem börn og unglingar í umsjá ríkis og sveitarfélaga hafa sætt ofbeldi af öllu tagi.Jóhann Bjarni hefur leitt Bakkakotsmálið í Kveik og Berghildur Erla afhjúpaði  fyrir fáum árum skelfilegar aðstæður barna á Hjalteyri og á vistheimilum hins opinbera.

  12. 20

    “Sjálfskaparvíti Samfylkingar”

    Frosti Logason og Valur Grettisson eru þrautreyndir blaðamenn og ræða pólitíkina frá öllum hliðum.Ríkisstjórnin að missa tiltrú?  Hver er innistæðan hjá Miðflokki? Lilja Alfreðs sterkur leikur hjá Framsókn?Nær “hægrið” Borginni? Ólga í Samfylkingu og tilvistarkreppa X-D? Millitekjufólk mergsogið og lóðabrask Borgarinnar?

  13. 19

    “Í hljómsveit með Kristrúnu Frostadóttur.”

    Hildur Björnsdótti vill vaða í leikskólamálin, fækka starfsmönnum borgarinnar, endurskoða Borgarlínu, leggja göng fyrir stofnvegi, selja borgarfyrirtæki og koma grunnskólum borgarinnar á topp 10 í Evrópu.

  14. 18

    Samfylking og Sjálfstæðisflokkur í eina sæng í borginni?

    Andrés Jónsson ráðgjafi og almannatengill spáir því að Samfylking og Sjálfstæðisflokkur vilji mynda meirihluta saman í borginni í vor. Framsókn eða Viðreisn gæti verið hluti af þessu meirihlutasamstarfi. Við Andrés ræðum um fólkið í flokkunum og pólitíkina frá öllum hliðum.

  15. 17

    “Hugmyndafræði Samfylkingar komin í þrot”

    .Páll Jakob Líndal doktor í umhverfissálfræði ræðir skipulagsmál í Reykjavík.  Segir peninga skipta öllu og arkitekta hrædda um sitt lífsviðurværi. Borgin, verktakar og arkitektar vísa ábyrgðinni hvert á annað.Hugmyndafræði Samfylkingar hefur skapað átök og óánægju íbúa.  Páll Jakob ræðir um ólík hverfi borgarinnar, þéttingu byggðar og Borgarlínuverkefnið sem margir vilja en fáir skilja.

  16. 16

    Kolbrún Bergþórsdóttir blaðamaður “Ég skal spá… með hjartanu.”

    Kolbrún Bergþórsdóttir blaðamaður spáir í leiðtogaslag flokkanna og helstu persónur og leikendur í íslenskri pólitík. Hvað hefur virkað, hvað hefur klikkað og hvar liggja dauðafærin? Kolla liggur ekki á skoðunum sínum.

  17. 15

    Halldór Armand „Ég er bara að reyna að hafa gaman.“

    Halldór Armand, maðurinn með greifanafnið er ótrúlegur náungi.Hann er fantagóður rithöfundur, skoðanaríkur samfélagsrýnir og starfar núna í varnarmálum utanríkisráðuneytisins.Halldór ræðir listamannalaunin, fræga fótboltamenn og íslensku þjóðarsálina. Hann segir okkur frá kvíðanum sem heltók hann og útskýrir hvers vegna Íslendingar eru alltaf að reyna að hafa gaman… en tekst það illa.

  18. 14

    Andri Ívars gítarsnillingur og grínisti.

    Andri Ívarsson er frábær grínisti og gítarleikari.  Uppistand með Andra er mikil upplifun þegar hann grípur gítarinn á hárréttum augnablikum í gríninu.   Ég græt úr hlátri þegar ég fer á uppistand með með honum og það breyttist ekki þegar Andri mætti í Bókakjallarann.Í þessu viðtali notar Andri gítarinn óspart, spilar og syngur lög af öllu tagi.  Við ræðum líka allt milli himins og jarðar en náum að vera alvarlegir á köflum.Það varir sjaldan lengi því Andri Ívars er bara svo fjandi fyndinn og skemmtilegur.Náðum að stofna stjórnmálaflokk, Söngfylkingin sem býður fram í vor.Góða skemmtun.

  19. 13

    Ætlar að verða framkvæmdastjóri Inter Miami.

    Tanja Tómasdóttir er framkvæmdastjóri Breiðabliks, stundar nám við Harvard og er fyrsta konan sem gerist umboðsmaður knattspyrnumanna.Tanja ræðir um spillinguna í FIFA, tækifæri íslenska fótboltans, pólitíkina í íþróttum, stjörnurnar í kvennaboltanum og uppvextinum í Vestmannaeyjum.  Þá deilir hún með okkur draumi sínum að verða framkvæmdastjóri Inter Miami sem er í eigu David Beckham.

  20. 12

    Besti glæpasagnahöfundur Íslands?

    Eva Björg Ægisdóttir er að mínu mati búin að hirða titilinn, besti glæpasagnahöfundur Íslands.Hún hefur gefið út átta skáldsögur á sjö árum og hlotið viðurkenningar víða um heim.Eva Björg talar um þennan skrýtna en skemmtilega bókmenntaheim og áhuga sinn á glæpum og samfélagslegum áskorunum.  Hún vill sögupersónur sem eru breyskar og svolítið gallaðar eins og við erum flest. Eva Björg segir okkur nýju sjónvarpsþáttunum um söguhetjuna Elmu og ljóstrar upp söguefninu í næstu bók sem hún ætlar að skrifa.

  21. 11

    “Hvernig gerði ég þetta… hvað var ég að pæla…”? Una Schram

    Una Schram er ein áhugaverðasta tónlistarkona landsins.  Una segir frá dramatísku lífi í London, skuggalegum meðleigjendum, borgarbarninu á Hólmavík, konum í tónlist,  nýju hljómsveitinni Marsibil og framtíðarplönum.

  22. 10

    Þú ert þingmaður, það er vandamál… komdu með lausn! Alda Hrönn

    Alda Hrönn Jóhannsdóttir hefur starfað í lögreglunni í 26 ár.  Hún hefur undanfarin 16 ár rannsakað skipulagða glæpastarfssemi, mansal og heimilisofbeldi.  Alda talar hreint út um stöðu mála en ræðir einnig þann erfiða tíma í lífi hennar þegar hún sætti sjálf rannsókn.  Alda Hönn hefur lagt stund á nám í jákvæðri sálfræði og bendir á frábærar bækur sem nánast breyttu lífi hennar.

  23. 9

    “Maður getur bitið frá sér…” Ragnhildur Sveinsdóttir

    Ragnhildi Sveinsdóttur þekkja flestir sem móður þriggja landsliðmanna í fótbolta.  Hún hefur haldið sér að mestu utan sviðsljóss en í þessu samtali ræðir Ragnhildur af einlægni æsku sína, börnin sín, flökkulíf fótboltans og framtíðarplönin.   Kötturinn Klaki ætlaði að stela senunni í viðtalinu þegar hann ruddist inn í miðja upptöku.  Hann hefur nú beðið Ragnhildi fomlega afsökunar.

  24. 8

    Með Eric Cantona á eftir sér...Hallgrímur Ólafsson

    Hallgrímur Ólafsson er klárlega einn besti leikari landsins og minn uppáhalds.  Persónur hans eru oftar en ekki breyskar manneskjur og svolítið úr takti við heiminn en alltaf tekst Halla að vekja með þeim samúð þótt maður hlægi að þeim á sama tíma.Halli er ekki dæmigerður listamaður og hefur lítið álit á spekingum eins og Stanislavsky.  Hann vill bara leika og ekkert kjaftæði.Hann væri líklega sjómaður á Akranesi ef hann hefði ekki tekið þá örlagaríku ákvörðun að fara í leiklistarnám.Hlustið á skemmtilegt viðtal við Halla Melló, leikarann sem bjó til persónuna Magnús Magnús Magnússon, sem gat ekki lært Víkingaklappið og dró Eric Cantona með sér á djammið á Íslandi.

  25. 7

    Verðandi spjallþáttardrottning. Eva Ruza

    Eva Ruza er kona með gríðarlegt sjálfstraust nema kannski á einu sviði… sem kemur í ljós í spjalli okkar.  Ég spái því að hún verði næsta spjallaþáttadrottning íslensks sjónvarps…. og þá rætist langþráður draumur hennar.Eva ræðir á mjög opinskáan hátt uppeldi sitt, systur sínar og foreldra, hvernig hún lætur drauma rætast og hvernig hún beislar þessa einstöku orku og lífsgleði.Ég hló mikið í spjalli okkar enda er Eva með eindæmum skemmtileg.

  26. 6

    Lætur allt vaða. Þórarinn Hjartarson í Ein pæling

    Þættir með glöðu fólki sem getur sagt ótal sögur af bókum, áhrifum þeirra og hverju þær breyttu í lífi þeirra.Stundum verður bók upphaf samtals sem leiðir út í allt önnur málefni. Eina skilyrðið er að gestirnir hafi lesið a.m.k. eina bók um ævina.Þetta er létt spjall um lífið - og bækur koma alltaf við sögu.

  27. 5

    “Vá… ég vissi ekki hvað þetta er einfalt.” Kristín Hildur Ragnarsdóttir meðstofnandi Fortuna Invest.

    Þættir með glöðu fólki sem getur sagt ótal sögur af bókum, áhrifum þeirra og hverju þær breyttu í lífi þeirra.Stundum verður bók upphaf samtals sem leiðir út í allt önnur málefni. Eina skilyrðið er að gestirnir hafi lesið a.m.k. eina bók um ævina.Þetta er létt spjall um lífið - og bækur koma alltaf við sögu.

  28. 4

    “Heiðarlega löggan sem varð sakamaður.” Sigurður Árni Reynisson kennari og fyrrverandi lögreglumaður.

    Sigurður Árni Reynisson var í mörg ár lögreglumaður og í sérsveit Ríkislögreglustjóra. Í dag er hann kennari 12 ára drengja við Lágafellsskóla.Árið 2016 missti hann starfið í lögreglunni þegar hann beitti fanga ofbeldi.  Sigurður var dæmur í skilorðsbundið fangelsi en átta árum eftir þetta atvik felldi Landsréttur málið niður.Sigurður segir frá því hvernig sjálfsmyndin gaf eftir og ferlið sem hann fór í gegnum til að byggja sig upp andlegaHann fór í nám og er í dag kennari ungra drengja.  Sigurður nýtir þekkingu sína og reynslu að miðla til strákanna.Hann er minnugur þess tíma þegar hann var sjálfur strákur, lesblindur, hrökklaðist úr skóla og fór í neyslu á unglingsárum.  Sigurður Árni er einstaklega góður viðmælandi og það er mjög lærdómsríkt að hlusta á hann.

  29. 3

    “Örlög, ástir, óréttlæti, hefnd” Tanya Zharov aðstoðarforstjóri Alvotech.

    Þættir með glöðu fólki sem getur sagt ótal sögur af bókum, áhrifum þeirra og hverju þær breyttu í lífi þeirra.Stundum verður bók upphaf samtals sem leiðir út í allt önnur málefni. Eina skilyrðið er að gestirnir hafi lesið a.m.k. eina bók um ævina.Þetta er létt spjall um lífið - og bækur koma alltaf við sögu.

  30. 2

    “Og inn kemur Jón Jónsson í einhverjum svaka ham....” Arnfinnur Sigmundsson.

    Þættir með glöðu fólki sem getur sagt ótal sögur af bókum, áhrifum þeirra og hverju þær breyttu í lífi þeirra.Stundum verður bók upphaf samtals sem leiðir út í allt önnur málefni. Eina skilyrðið er að gestirnir hafi lesið a.m.k. eina bók um ævina.Þetta er létt spjall um lífið - og bækur koma alltaf við sögu.

  31. 1

    “Ég er 19. aldar kona föst í líkama plötusnúðs.” Dj. Sóley Kristjánsdóttir.

    Þættir með glöðu fólki sem getur sagt ótal sögur af bókum, áhrifum þeirra og hverju þær breyttu í lífi þeirra.Stundum verður bók upphaf samtals sem leiðir út í allt önnur málefni. Eina skilyrðið er að gestirnir hafi lesið a.m.k. eina bók um ævina.Þetta er létt spjall um lífið - og bækur koma alltaf við sögu.

Type above to search every episode's transcript for a word or phrase. Matches are scoped to this podcast.

Searching…

No matches for "" in this podcast's transcripts.

Showing of matches

No topics indexed yet for this podcast.

Loading reviews...

ABOUT THIS SHOW

Þættir um pólitík og samfélagsmál.

HOSTED BY

Þórhallur Gunnarsson

CATEGORIES

URL copied to clipboard!