MS-kastið

PODCAST · education

MS-kastið

MS-kastið er hlaðvarp um MS-sjúkdóminn og starfsemi MS-félagsins á Íslandi. Í hverjum þætti ræðum við við sérfræðinga, fagaðila, fólk með MS og hverja aðra sem geta veitt innsýn í viðfangsefni tengt sjúkdómnum, nýjustu rannsóknir, meðferðir, stuðning og hvað annað gagnlegt fyrir hlustendur.Ég hvet ykkur til að vera hluti af þessu samfélagi og deila þáttunum með þeim sem þið teljið að geti haft gagn og gaman að.

  1. 3

    #3 Að gangast við stöðunni og finna nýjan farveg: Ella Björt taugasálfræðingur

    Hversdagsleikinn getur oft verið yfirþyrmandi fyrir okkur með MS. Skipulag út í eitt, fundir fyrir og jafnvel eftir hádegi, afmæli í dag, ferming á morgun, ábyrgðarhlutverk gagnvert fjölskyldu, vinasambönd sem þarf að rækta og á sama tíma að reyna að öðlast innri ró. Að ná utan um allt þetta og vinna með er m.a. það sem felst í starfi taugasálfræðinga.Ella Björt taugasálfræðingur hjá taugasviði Reykjalundar fræðir okkur um hvernig taugasálfræðin snertir okkur með MS og hvað við getum gert til að spara orku fyrir önnur krefjandi verkefni.Takk fyrir að hlusta og deila!Endilega sendið mér ábendingar eða tillögur að efnistökum eða viðmælendum: Þorsteinn Á. Sürmeli (Steini) – ⁠⁠[email protected]⁠⁠⁠www.msfelag.is⁠⁠Sérstakar þakkir:– Smári Guðmundsson hjá Smástirni fyrir hljóðvinnslu– Fríða Dís Guðmundsdóttir fyrir seiðandi stef (The Spell af plötunni Lipstick on)– Samfélagssjóður Landsbankans fyrir styrk (2025)– Elko fyrir upptökubúnað (2024)

  2. 2

    #2 Eftir höfðinu dansa limirnir: Ólafur Árni Sveinsson, taugalæknir við LHS.

    Sólin hátt á himni skein þennan síðasta dag aprílmánaðar. Ég sat fyrir utan MS-félagið og baðaði mig í sólargeislunum þegar Ólafur Árni kom gangandi frá Landspítalanum Fossvogi þar sem skrifstofa hans er. Þótt veðrið hafi verið gott fengum við okkur sæti inni í hljóðveri félagsins og spjölluðum um leið hans inn í taugalækningar, MS-sjúkdóminn almennt, nýjustu rannsóknir, meðferðarúrræði, kænsku, D-vítamín og fleira. Njótið vel.Þorsteinn Á. Sürmeli – [email protected] sendið mér ábendingar eða tillögur að efnistökum eða viðmælendumwww.msfelag.isSérstakar þakkir:– Samfélagssjóður Landsbankans– Elko– Smári Guðmundsson hjá SmástirniStef – Fríða Dís Guðmundsdóttir (The Spell af plötunni Lipstick on)

  3. 1

    #1 Hjördís Ýrr Skúladóttir, formaður MS-félagsins

    Ég settist niður með Hjördísi Ýrr formanni MS-félagsins og ræddi við hana um starf félagsins, stuðninginn sem boðið er upp á, ráðgjöf, fræðslu, vinnu þess í þágu félagsmenn gagnvart stjórnvöldum og yfirvöldum almennt og fleira.Við töluðum einnig um mikilvægi þess að efla MS-samfélagið hér á landi og hverju hægt er að áorka í krafti fjöldans.Endilega sendið mér ábendingar eða tillögur að efnistökum eða viðmælendum á [email protected]érstakar þakkir:– Samfélagssjóður Landsbankans– Elko– Smári GuðmundssonStef – Fríða Dís Guðmundsdóttir (The Spell af plötunni Lipstick on)

Type above to search every episode's transcript for a word or phrase. Matches are scoped to this podcast.

Searching…

We're indexing this podcast's transcripts for the first time — this can take a minute or two. We'll show results as soon as they're ready.

No matches for "" in this podcast's transcripts.

Showing of matches

No topics indexed yet for this podcast.

Loading reviews...

ABOUT THIS SHOW

MS-kastið er hlaðvarp um MS-sjúkdóminn og starfsemi MS-félagsins á Íslandi. Í hverjum þætti ræðum við við sérfræðinga, fagaðila, fólk með MS og hverja aðra sem geta veitt innsýn í viðfangsefni tengt sjúkdómnum, nýjustu rannsóknir, meðferðir, stuðning og hvað annað gagnlegt fyrir hlustendur.Ég hvet ykkur til að vera hluti af þessu samfélagi og deila þáttunum með þeim sem þið teljið að geti haft gagn og gaman að.

HOSTED BY

Þorsteinn Polat Árnason Sürmeli

URL copied to clipboard!