007. DEATH - Human (Magnús Halldór Pálsson) episode artwork

EPISODE · Jun 3, 2023 · 2H 15M

007. DEATH - Human (Magnús Halldór Pálsson)

from Þungarokksþátturinn - Stokkið í eldinn · host magnús pálsson, Birkir Fjalar, smári tarfur

Þungarokksbræðurnir standa oft á gati þegar Human plata Flórídarisanna í Death ber á góma. Ástæðan er einföld; þegar um tímamótaverk er að ræða - sem tíminn fær ekki bitið á - þá verður lotningin slík að hún breytist nánst yfir í óttablandna virðingu. Það er svo ægilega mikið sem loðir við foringja sveitarinnar, frumkvöðulinn Chuck Schuldiner, og hans áhrif á þungarokkið æ síðan hann gaf út sína fyrstu plötu. En það er meira. Hann var ólíkindatól og vandræðapési, en þó ekki í hefðbundnum þungarokksskilningi þessara orða. Hann er engin Philip Anselmo eða Tommy Lee. Hann er eitthvað annað. Miskilið nörd? Sérhlífinn fýlupúki? Yfirgaf hann hljómsveit sína á miðju tónleikaferðalagi og þeir þurfti að spila án hans, söngvaralausir? Já. Hnakkreifst hann við umboðsmann sinn og sagði honum upp og réði eins og um jójó væri að ræða? Já. Skipti hann meðlimum út og inn án þess að láta þá vita? Ó já. Er hann einn af allra bestu lagasmiðum og útsetjurum þungarokksins? Jahá!Blessuð sé minning meistarans!Og já, Birkir mismælti sig þegar hann sagði "Flight of Icarus" í stað "Where Eagles Dare"! Gerist á bestu...En, er Human merkasta dauðarokksplata allra tíma? Það getur bara vel verið. Er Human besta plata Death? Eigum við ekki að komast að því í sameiningu?Sérstakur gestur þáttarins er okkar eigið undrabarn og snillingur, Magnús Halldór Pálsson (Forgarður Helvítis, Changer, Dark Harvest, Vetur, Beneath o.s.frv.).Tónlistin í þættinum:-  BLOODLETTER "Blood Is Life" af netskífu (2023)- GADDAVÍR " Heimabæjarhetja" af Haltu kjafti ég hef það fínt (2022)Við minnum fólk á að fylgja okkur, Stokkið í eldinn, á Instagram og Facebook! Stokkið í eldinn er kirfilega stutt af Luxor: tækjaleigu og sölu. Ljós // Hljóð // Mynd // Svið. Tæki og þekking. Luxor eiga ljós, myndavélar, hljóðkerfi, svið og skjávarpa til sölu og leigu svo fátt eitt sé nefnt.Luxor er þekkingarhús viðburða. Smellið á www.luxor.is og rannsakið. Sláið á þráðinn og fáið ráðgjöf. 

NOW PLAYING

007. DEATH - Human (Magnús Halldór Pálsson)

0:00 2:15:56

No transcript for this episode yet

We transcribe on demand. Request one and we'll notify you when it's ready — usually under 10 minutes.

Frequently Asked Questions

How long is this episode of Þungarokksþátturinn - Stokkið í eldinn?

This episode is 2 hours and 15 minutes long.

When was this Þungarokksþátturinn - Stokkið í eldinn episode published?

This episode was published on June 3, 2023.

What is this episode about?

Þungarokksbræðurnir standa oft á gati þegar Human plata Flórídarisanna í Death ber á góma. Ástæðan er einföld; þegar um tímamótaverk er að ræða - sem tíminn fær ekki bitið á - þá verður lotningin slík að hún breytist nánst yfir í óttablandna...

Can I download this Þungarokksþátturinn - Stokkið í eldinn episode?

Yes, you can download this episode by clicking the download button on the episode player, or subscribe to the podcast in your preferred podcast app for automatic downloads.
URL copied to clipboard!