019. ANDLÁT: 20 ára afmæli plötunnar Mors Longa (2004) episode artwork

EPISODE · Apr 8, 2024 · 2H 4M

019. ANDLÁT: 20 ára afmæli plötunnar Mors Longa (2004)

from Þungarokksþátturinn - Stokkið í eldinn · host Snæfugl

Það var eitthvað við Andlát. Þetta tiltölulega stutta tímabil þar sem hróður þeirra óx og óx og ekkert gat þá stöðvað. Hvernig tónlist bunaði úr þeim var síðan það sem fólkið hengdi sig fyrst og fremst á. Upp úr þessu spruttu vináttur og vinahópar hvaðanæva af Stór-Höfuðborgarsvæðinu og Mosfellsbæ bundust skapandi böndum.Hver fílar ekki risastór og grípandi riff sem grúva eins og djöfullinn? Erindi sem dauðarokka líkt og við einhverja blóðtjörn á Náströnd? Svo er það haltu-kjafti-ekkert-helvítis-rugl trommuleikur og bassi sem gætir þess að það sé malbikað þétt og vandlega yfir lifendur og liðna. Samlíkingar? Það er alveg hægt að fara þangað líka. Cannibal Corpse að sprengja fyrir jarðgöngum ásamt þýsku geðsjúllunum í Acme. Já, já. Aftershock inn í brennandi vöruskemmu á meðan þeir spila allra hörðustu riff Pantera. Því ekki það?!?Hvað sem því líður þá eru hjólför Andlát enn greinileg eftir öll þessi ár.Andlát skipuðu (meðal annarra):Bjarki Fannar Atlason (Finnegan)Valur Árni Guðmundsson  (Ask The Slave, Squirt)Haukur Valdimar Pálsson (Myra, Squirt)Sigurður Trausti TraustasonMagnús Örn Magnússon (Gyllinæð, Stegla) Tónlist í þættinum:What Was Intended - ANDLÁT (Mors Verum, 2004)Threatened - LIVING SACRIFICE (Reborn, 1997)Broken - MARTYR A.D. (The Human Condition in Twelve Fractions, 2000)The Martyr's Blood - HEAVEN SHALL BURN (Whatever It May Take, 2002) Stokkið í eldinn er kirfilega stutt af Luxor: tækjaleigu og sölu. Ljós // Hljóð // Mynd // Svið. Tæki og þekking. Luxor eiga ljós, myndavélar, hljóðkerfi, svið og skjávarpa til sölu og leigu svo fátt eitt sé nefnt.Luxor er þekkingarhús viðburða. Smellið á www.luxor.is og rannsakið. Sláið á þráðinn og fáið ráðgjöf. 

NOW PLAYING

019. ANDLÁT: 20 ára afmæli plötunnar Mors Longa (2004)

0:00 2:04:00

No transcript for this episode yet

We transcribe on demand. Request one and we'll notify you when it's ready — usually under 10 minutes.

Frequently Asked Questions

How long is this episode of Þungarokksþátturinn - Stokkið í eldinn?

This episode is 2 hours and 4 minutes long.

When was this Þungarokksþátturinn - Stokkið í eldinn episode published?

This episode was published on April 8, 2024.

What is this episode about?

Það var eitthvað við Andlát. Þetta tiltölulega stutta tímabil þar sem hróður þeirra óx og óx og ekkert gat þá stöðvað. Hvernig tónlist bunaði úr þeim var síðan það sem fólkið hengdi sig fyrst og fremst á. Upp úr þessu spruttu vináttur og vinahópar...

Can I download this Þungarokksþátturinn - Stokkið í eldinn episode?

Yes, you can download this episode by clicking the download button on the episode player, or subscribe to the podcast in your preferred podcast app for automatic downloads.
URL copied to clipboard!