042: Smári Tarfur kveður; Hörður Ólafs heilsar og nýjar PATRONIAN upptökur episode artwork

EPISODE · Nov 4, 2025 · 1H 12M

042: Smári Tarfur kveður; Hörður Ólafs heilsar og nýjar PATRONIAN upptökur

from Þungarokksþátturinn - Stokkið í eldinn · host Hörður Ólafsson, Birkir Fjalar, Smári Tarfur

Moonstone Tattoo Reykjavík kynnir:Þá er komið af því. Smári Tarfur Jóspesson er komin á sína stoppistöð á leið Stokkið í eldinn sporvagnsins. Aldarvinur Birkis, Hörður Ólafsson mynd- og tónlistarmaður (MOMENTUM) stígur um borð. Þið megið gjarnan bjóða hann velkominn!Betra gat það ekki verið því Tarfurinn hefur miklar mætur á Herði og svo hef ég (Birkir) átt í djúpu og löngu (Type O Negative skírskotun) vina- og nördasambandi við manninn sem teygir sig langt aftur í fortíðina. Ég hef líka aldrei komið að tómum kofanum hjá Herði og gildir einu hvort við erum sammála um tónlist og lífið; þá er alltaf gaman að fara ofan í kjölin á málunum. Og ég veit að þið, hlustendur Stokkið í eldinn, munið njóta góðs af þessum ráðhag. Framtíðin er björt, áfram gakk og áfram þungarokk líkt og Breytarinn segir gjarnan.Í þessum þætti talar Hörður um sín fyrstu skref í þungarokkinu, MOMENTUM koma við sögu svo eitthvað sé nefnt. Smári Tarfur er síðan í einhversskonar PATRONIAN viðtali og við græðum hressilega er hann laumar að okkur nýjum upptökum frá vestfirsku dauðarokkssveitinni knáu sem lék einmitt nýverið, á sínum fyrstu tónleikum, á Grundafirði.Leikar æsast síðan þegar MEGADETH og Múrsteininn ber á góma.Við minnum fólk á að fylgja Stokkið í eldinn á Instagram og Facebook! Ef þið getið verið svo elskuleg að fylgja þættinum í þeim hlaðvarpsforritum sem þið notið, gefið okkur einkun og mælið með við vini ykkar. Tónlist í þættinum;PATRONIAN - The Great Western Friendkill  (Óútgefið, tónleikar í Grundarfirði 2025)PATRONIAN - Stabbed With Steel (Óútgefið, tónleikar í Grundarfirði 2025)Þessi þáttur er í boði Moonstone Tattoo Reykjavik hvar Stokkið í eldinn fær húðflúrin sín. Gæði út í gegn, topp fólk (Emii, Mery, Sædís, Gunnar, Skarpi, Isa og Nika) fjölbreyttar nálganir og stílar; flash tattoo eða flúr gerð alveg sérstaklega handa þér og eftir þínu höfði. Við lofum bestu húðflúr upplifuninni í bænum.Moonstone Tattoo Reykjavik er í Vegmúli 2, Reykjavík. Sláið á þráðinn 779 4547 eða sendið skilaboð á Facebook eða Instagram. Stokkið í eldinn er kirfilega studdur af Luxor: tækjaleigu og sölu.  Ljós // Hljóð // Mynd // Svið.  Tæki og þekking. Luxor eiga ljós, myndavélar, hljóðkerfi, svið og skjávarpa til sölu og leigu svo fátt eitt sé nefnt.Luxor er þekkingarhús viðburða.  Smellið á www.luxor.is og rannsakið. Sláið á þráðinn og fáið ráðgjöf  

Episode metadata supplied by the publisher feed · Published Nov 4, 2025

Embed this episode

NOW PLAYING

042: Smári Tarfur kveður; Hörður Ólafs heilsar og nýjar PATRONIAN upptökur

0:00 1:12:25

No transcript for this episode yet

We transcribe on demand. Request one and we'll notify you when it's ready — usually under 10 minutes.

No similar episodes found.

Frequently Asked Questions

How long is this episode of Þungarokksþátturinn - Stokkið í eldinn?

This episode is 1 hour and 12 minutes long.

When was this Þungarokksþátturinn - Stokkið í eldinn episode published?

This episode was published on November 4, 2025.

Can I download this Þungarokksþátturinn - Stokkið í eldinn episode?

Yes. Use the download control on the episode player to save the publisher-provided media file.
URL copied to clipboard!