051: CONVERGE - Love Is Not Enough (2026) *Neyðarþáttur* + GRJÓT episode artwork

EPISODE · Mar 10, 2026 · 1H 24M

051: CONVERGE - Love Is Not Enough (2026) *Neyðarþáttur* + GRJÓT

from Þungarokksþátturinn - Stokkið í eldinn · host Birkir Fjalar Viðarsson, Hörður Ólafsson, Birkir Fjalar, Grjót

Moonstone Tattoo Reykjavík kynnir:MEGADETH og CONVERGE eiga það m.a. sameiginlegt að teljast til brautryðjenda, burðar- og máttarstólpa þungarokksins og báðar þessar sveitir uppfylla, augljóslega, þær kröfur sem við eiga þegar nýjar útgáfur fá sinn sérstaka neyðarþátt. Stokkið í eldinn bregst hér við, Love Is Not Enough, nýjustu og elleftu hljóðversskífu (í fullri lengd) þessara fræknu Massachusetts hljómsveitar sem hlóð í sína fyrstu hljómsveitaræfingu árið 1990. Síðan þá hefur mikið blóð runnið til sjávar og nánast skilda að við tækjum Love Is Not Enough til gagnsins.GRJÓT GENGNIR Í LEYNIFÉLAG STOKKIÐ Í ELDINN Það er okkur sönn ánægja að fá að frumflytja lag frá Íslenska hnullungnum sem í daglegu tali er nefnt GRJÓT. Lagið "Blóðrauður" er nýjasta útspil GRJÓTS; hart, nístandi og furðulega-óþægilega dáleiðandi. Á annan bóginn eimreið en hinn eins og pláneta sem er að falla saman.  Hljómsveitina skipa fyrrverandi og núverandi meðlimum hljómsveitanna Ophidian I, Cult of Lilith, Vögel og Helfró.  Arnar Ástvaldsson - Söngur Þórður Hermannsson - Gítar  Ásgeir Helgi Þrastarsson - Gítar  Samúel Örn Böðvarsson - Bassi  Kjartan Harðarson - Trommur  Tónlist í þættinum:GRJÓT með lagið "Blóðrauður" (2026)Við minnum fólk á að fylgja Stokkið í eldinn á Instagram og Facebook! Ef þið getið verið svo elskuleg að fylgja þættinum í þeim hlaðvarpsforritum sem þið notið, gefið okkur einkun og mælið með við vini ykkar. Stokkið í eldinn styður SÁTUNA; þungarokkshátíðina í Stykkishólmi. Skoðið 2026 dagskránna hér. Stokkið í eldinn styður STÍGAMÓT (sjálfshjálparmiðstöð fyrir karla og konur sem beitt hafa verið kynferðisofbeldi og vilja öðlast bætt lífsgæði). Hvetjum hlustendur til að styrkja Stígamót með því að gerast mánaðarlegur styrktaraðilar. Þessi þáttur er í boði Moonstone Tattoo Reykjavik hvar Stokkið í eldinn fær húðflúrin sín. Gæði út í gegn, topp fólk (Emii, Mery, Sædís, Gunnar, Skarpi, Isa og Nika) fjölbreyttar nálganir og stílar; flash tattoo eða flúr gerð alveg sérstaklega handa þér og eftir þínu höfði. Við lofum bestu húðflúrupplifuninni í bænum.Moonstone Tattoo Reykjavik er í Vegmúli 2, Reykjavík. Sláið á þráðinn 779 4547 eða sendið skilaboð á Facebook eða Instagram.   Stokkið í eldinn er kirfilega studdur af Luxor: tækjaleigu og sölu.   Ljós // Hljóð // Mynd // Svið.   Tæki og þekking. Luxor eiga ljós, myndavélar, hljóðkerfi, svið og skjávarpa til sölu og leigu svo fátt eitt sé nefnt. Luxor er þekkingarhús viðburða.   Smellið á www.luxor.is og rannsakið. Sláið á þráðinn og fáið ráðgjöfSNÆFUGL hlaðvörp

NOW PLAYING

051: CONVERGE - Love Is Not Enough (2026) *Neyðarþáttur* + GRJÓT

0:00 1:24:17

No transcript for this episode yet

We transcribe on demand. Request one and we'll notify you when it's ready — usually under 10 minutes.

Frequently Asked Questions

How long is this episode of Þungarokksþátturinn - Stokkið í eldinn?

This episode is 1 hour and 24 minutes long.

When was this Þungarokksþátturinn - Stokkið í eldinn episode published?

This episode was published on March 10, 2026.

What is this episode about?

Moonstone Tattoo Reykjavík kynnir:MEGADETH og CONVERGE eiga það m.a. sameiginlegt að teljast til brautryðjenda, burðar- og máttarstólpa þungarokksins og báðar þessar sveitir uppfylla, augljóslega, þær kröfur sem við eiga þegar nýjar útgáfur fá sinn...

Can I download this Þungarokksþátturinn - Stokkið í eldinn episode?

Yes, you can download this episode by clicking the download button on the episode player, or subscribe to the podcast in your preferred podcast app for automatic downloads.
URL copied to clipboard!