052: CROWBAR sendinefnd Íslands í Englandi & nýtt Sepultura episode artwork

EPISODE · Mar 15, 2026 · 1H 30M

052: CROWBAR sendinefnd Íslands í Englandi & nýtt Sepultura

from Þungarokksþátturinn - Stokkið í eldinn · host Birkir Fjalar, Hörður Ólafsson, Kristján B. Heiðarsson, sigurður sölvi davíðsson, Ævar Örn

Moonstone Tattoo ReykjavíkCROWBAR er hjartahljómsveit Birkis og fleiri Reyðfirðinga og sömuleiðis er það hjartahljómsveit Sigvalda dordinguls Ástríðarsonar góðavinar þáttarins, aldavinar Birkis. Það spurðist svo út að CROWBAR væru á leið í túnfót Íslands, einnig þekktur sem Bretlandseyjar, þá hófst Birkir handa við að róta saman fólki sem farið gæti með honum út til að sjá hetjurnar. Alltént mátti þetta tækifæri til að sjá sína uppáhalds í fyrsta og jafnvel eina skiptið ekki renna honum úr greipum. Hvernig valdist í hópin getur almættið eitt útskýrt en góður var hann. Á augabragði varð til fimm manna föruneyti elskandi vina sem sá CROWBAR í Portsmouth einn daginn og London þann næsta. Afraksturinn er skríkjandi tættur þáttur hvar gleði, galsi, gauragangur, karlakímni og einkahúmur ríður við einteyming ásamt "dýnamískum" hljóðheim út af sottlu. Alveg óvænt; krúttleg upphaf-vináttu-saga Valla og Birkis. Áður en við dembum okkur saman í CROWBAR af fullum þunga þá kölluðum við Kristján B. Heiðarsson til verka enda er útkomið splunkunýtt lag með krökkunum í SEPULTURA. Það yrðum við allir að tækla. Við minnum fólk á að fylgja Stokkið í eldinn á Instagram og Facebook! Ef þið getið verið svo elskuleg að fylgja þættinum í þeim hlaðvarpsforritum sem þið notið, gefið okkur einkun og mælið með við vini ykkar. Stokkið í eldinn styður SÁTUNA; þungarokkshátíðina í Stykkishólmi. Skoðið 2026 dagskránna hér. Stokkið í eldinn styður STÍGAMÓT (sjálfshjálparmiðstöð fyrir karla og konur sem beitt hafa verið kynferðisofbeldi og vilja öðlast bætt lífsgæði). Hvetjum hlustendur til að styrkja Stígamót með því að gerast mánaðarlegur styrktaraðilar. Þessi þáttur er í boði Moonstone Tattoo Reykjavik hvar Stokkið í eldinn fær húðflúrin sín. Gæði út í gegn, topp fólk (Emii, Mery, Sædís, Gunnar, Skarpi, Isa og Nika) fjölbreyttar nálganir og stílar; flash tattoo eða flúr gerð alveg sérstaklega handa þér og eftir þínu höfði. Við lofum bestu húðflúrupplifuninni í bænum.Moonstone Tattoo Reykjavik er í Vegmúli 2, Reykjavík. Sláið á þráðinn 779 4547 eða sendið skilaboð á Facebook eða Instagram.   Stokkið í eldinn er kirfilega studdur af Luxor: tækjaleigu og sölu.   Ljós // Hljóð // Mynd // Svið.   Tæki og þekking. Luxor eiga ljós, myndavélar, hljóðkerfi, svið og skjávarpa til sölu og leigu svo fátt eitt sé nefnt. Luxor er þekkingarhús viðburða.   Smellið á www.luxor.is og rannsakið. Sláið á þráðinn og fáið ráðgjöfSNÆFUGL hlaðvörp

NOW PLAYING

052: CROWBAR sendinefnd Íslands í Englandi & nýtt Sepultura

0:00 1:30:50

No transcript for this episode yet

We transcribe on demand. Request one and we'll notify you when it's ready — usually under 10 minutes.

Frequently Asked Questions

How long is this episode of Þungarokksþátturinn - Stokkið í eldinn?

This episode is 1 hour and 30 minutes long.

When was this Þungarokksþátturinn - Stokkið í eldinn episode published?

This episode was published on March 15, 2026.

What is this episode about?

Moonstone Tattoo ReykjavíkCROWBAR er hjartahljómsveit Birkis og fleiri Reyðfirðinga og sömuleiðis er það hjartahljómsveit Sigvalda dordinguls Ástríðarsonar góðavinar þáttarins, aldavinar Birkis. Það spurðist svo út að CROWBAR væru á leið í túnfót...

Can I download this Þungarokksþátturinn - Stokkið í eldinn episode?

Yes, you can download this episode by clicking the download button on the episode player, or subscribe to the podcast in your preferred podcast app for automatic downloads.
URL copied to clipboard!