EPISODE · Feb 20, 2025 · 1H 46M
102 - Íslenska skattlandið: Gamli sáttmáli, Noregsveldið og upphaf konungsvalds á Íslandi
from Söguskoðun
Í þættinum í dag skoða Söguskoðunarmenn innreið konungsvalds og upphaf íslenzka skattlandsins þegar íslenskir höfðingjar gengu Noregskonungi á hönd á 13. öld.Konungsvald á Íslandi hefur alltaf verið fyrirferðarmikið atriði í íslenskri sögu, enda er sá tími mjög svo tengdur sjálfsmynd þjóðarinnar, afnámi þjóðveldisins og svo stofnun þjóðríkisins. Þegar Ísland varð hluti af norska konungsríkinu áttu erlendir konungar eftir að ríkja á Íslandi fram til ársins 1944.Í kjölfar ófriðarins á Íslandi samþykktu íslenskir höfðingjar að gerast þegnar konungs með Gamla sáttmála 1262-1264. En norska miðaldakonungsveldið var í mikilli sókn á 13. öldinni og náði einnig til annarra skattlanda. Grænland, Færeyjar, Orkneyjar, Hjaltland og fleiri jaðarsvæði í hinum Vest-Norræna menningarheimi gengu einnig undir - eða kannki væri réttara að segja, tóku upp - norskt konungsvald.Hlaðvarpið Söguskoðun má nálgast hér:Soguskodun.com | [email protected] á Facebook og Youtube. Hægt er að styrkja hlaðvarpið hér.
Embed this episode
What this episode covers
Í þættinum í dag skoða Söguskoðunarmenn innreið konungsvalds og upphaf íslenzka skattlandsins þegar íslenskir höfðingjar gengu Noregskonungi á hönd á 13. öld. Konungsvald á Íslandi hefur alltaf verið fyrirferðarmikið atriði í íslenskri sögu, enda er sá tími mjög svo tengdur sjálfsmynd þjóðarinnar, afnámi þjóðveldisins og svo stofnun þjóðríkisins. Þegar Ísland varð hluti af norska konungsríkinu áttu erlendir konungar eftir að ríkja á Íslandi fram til ársins 1944. Í kjölfar ófriðarins á Íslandi...
Ready to play
102 - Íslenska skattlandið: Gamli sáttmáli, Noregsveldið og upphaf konungsvalds á Íslandi
No transcript for this episode yet
Similar Episodes
No similar episodes found.
Similar Podcasts
No similar podcasts found.