EPISODE · Mar 21, 2025 · 1H 19M
104 - Ítalía í seinni heimsstyrjöld og stórveldisbrölt Mussolinis I. hluti
from Söguskoðun
Í þættinum í dag ræða Söguskoðunarmenn um stórveldisdrauma ítalska einræðisherrans Benito Mussolini og misheppnaðar tilraunir Ítalíu til að verða stórveldi á árunum 1923-1943.Eftir fyrri heimsstyrjöld fannst Ítölum þeir hafa verið sviknir um verðskuldað herfang – Vittoria Mutilata eða „limlestur sigur“ var Versalafriðurinn kallaður. Þetta átti eftir að móta utanríkisstefnu Mussolinis, sem sóttist eftir því að gera Ítalíu að heimsveldi á ný, eða endurreisa Rómarveldi, eins og sagt er. Hann stefndi á eigin landvinninga í Afríku og á Balkanskaga og gekk til liðs við Hitler og Öxulveldin í aðdraganda ófriðarins mikla.Í seinni heimsstyrjöld stóð ítalski herinn frammi fyrir miklum erfiðleikum. Skortur á skipulagi, úrelt vopnabúnaður og óraunhæfar hernaðaráætlanir ollu því að ítölsk hernaðarframmistaða var hörmuleg. Frá innrásinni í Grikkland til ósigranna í Norður-Afríku og fall Ítalíu árið 1943, var herinn stöðugt háður stuðningi Þjóðverja.Í þessum fyrri hluta ræða Ólafur og Andri Ítalíu á millistríðsárunum í aðdraganda seinni heimsstyrjaldar.Hlaðvarpið Söguskoðun má nálgast hér:Soguskodun.com | [email protected] á Facebook og Youtube. Hægt er að styrkja hlaðvarpið hér.
What this episode covers
Í þættinum í dag ræða Söguskoðunarmenn um stórveldisdrauma ítalska einræðisherrans Benito Mussolini og misheppnaðar tilraunir Ítalíu til að verða stórveldi á árunum 1923-1943. Eftir fyrri heimsstyrjöld fannst Ítölum þeir hafa verið sviknir um verðskuldað herfang – Vittoria Mutilata eða „limlestur sigur“ var Versalafriðurinn kallaður. Þetta átti eftir að móta utanríkisstefnu Mussolinis, sem sóttist eftir því að gera Ítalíu að heimsveldi á ný, eða endurreisa Rómarveldi, eins og sagt er. H...
NOW PLAYING
104 - Ítalía í seinni heimsstyrjöld og stórveldisbrölt Mussolinis I. hluti
No transcript for this episode yet
Similar Episodes
No similar episodes found.
Similar Podcasts
No similar podcasts found.