EPISODE · Apr 1, 2019 · 1H 16M
#11 - OfurGísli: Vaxtarrækt og fitness
from Heilsuvarpid · host Ragga Nagli
Gísli Örn Reynisson Schramm er vafalaust massaðasti lögfræðingur landsins. Enda kallar hann sjálfan sig OfurGísla og heldur úti heimasíðu undir því nafni. Það eru greinilega einhver bætiefni í humrinum þarna fyrir austan því hann er enn eitt hreystimennið frá Hornafirði til að koma í þáttinn. Gísli er alltaf kátur, glaður og hlæjandi. Að hitta hann í ræktinni nærir bæði líkama og sál því fáir taka eins vel á því. Hann er eins og traktor, löðrandi sveittur í hettupeysu að beygla fætur eða rífa í réttstöðu og gefur manni alltaf sveitt knús. OfurGísli er hokinn af reynslu að keppa í vaxtarrækt bæði innanlands og utan landsteinana og hefur tvisvar sinnum tvöfaldan Íslandsmeistaratitil undir beltinu. Hann hefur einng tekið þátt í WOW cyclothon 2017. Á morgnana hamrar hann beygjurnar í níðþröngum spandex í neonlitaðri spandexbrók. Á daginn er hann jakkafataklæddur á kontór í Sjóvá og stundum í hempu í réttarsal. Á kvöldin er hann svuntuklæddur að töfra fram kræsingar fyrir sína tilvonandi eiginkonu í eldhúsinu. Þess á milli þjálfar Gísli tilvonandi vaxtarræktarkappa í gegnum fjarþjálfun og ráðgjöf. Við nörduðumst í fitness og vaxtarrækt og perruðumst í mataræði. Allt frá frægðarför í breikdansi og frumkvöðlastarfsemi á æskuárunum á Hornafirði til ofþjálfunar og hvaða lærdóm hann dró af mistökum í undirbúningi fyrir mót. Vefsíða: www.ofurgisli.is Instagram: @gislireynis Facebook: Gísli Örn Reynisson Schramm Heilsuvarp Röggu Nagla fjallar um allt milli himins og jarðar sem viðkemur bæði líkamlegri og andlegri heilsu. Ég fæ til mín góða gesti sem eru sérfræðingar á sínu sviði og plokka úr þeim viskuna fyrir okkur sótsvartan almúgann til að nýta okkur í daglegu lífi. www.ragganagli.com inniheldur greinar um heilbrigt samband við mat, æfingar og líkamann [email protected] ef þig vantar sálfræðiaðstoð eða sálfræðilega mataræðisráðgjöf Facebook/RaggaNagli Stefið er eftir Arnar Boga Ómarsson, fylgið honum á Spotify undir listamannsnafninu ‘Boji’ Lógóið hannaði Andrea Jónsdóttir hjá 29 línur. www.29linur.com @29linur Afsláttarkóðar: Veganbúðin: ragganagli = 15% Under Armour: ragganagli = 20% Hverslun.is ragganagli20 = 20% www.goodgoodbrand.net: ragganagli20 24iceland: ragganagli20
Embed this episode
Ready to play
#11 - OfurGísli: Vaxtarrækt og fitness
No transcript for this episode yet
Similar Episodes
No similar episodes found.
Similar Podcasts
No similar podcasts found.