EPISODE · Jul 11, 2025 · 2H 18M
110 - Íranska byltingin 1979
from Söguskoðun
Í hlaðvarpinu í dag ræða Ólafur og Andri um írönsku byltinguna árið 1979, þegar síðasti keisari Írans (sha) var steypt af stóli og stofnað var róttækt íslamskt lýðveldi undir klerkastjórn.Íranska byltingin var afdrifaríkur atburður í nútímasögu Mið-Austurlanda. Ekki aðeins varð byltingin til þess að 2500 ára gömul stofnun íranska keisarans leið undir lok, heldur breyttist Íran á skömmum tíma úr einum helsta bandamanni Bandaríkjanna í Mið-Austurlöndum, í miðju Kalda stríðinu, yfir í mesta andstæðing Bandaríkjanna og vestrænnar heimsvaldastefnu á svæðinu. Byltingin sýndi einnig að pólitískt íslam og íslamismi breyddist um svæðið og hefur heldur betur sett svip sinn á Mið-Austurlönd síðustu áratugi. Keisarastjórn Mohammad Reza Pahlavi, frá því einræði hans var komið á eftir valdarán stutt af Vesturveldunum árið 1953, varð þekkt fyrir pólitíska kúgun og persónudýrkun, en einnig mikla tækni- menningarbyltingu í krafti gríðarlegs olíuauðs. Byltingin var sannkölluð fjöldahreyfing, ein sú vinsælasta í sögunni, en byltingarríkið undir stjórn Ayatollah Khomeini var einnig harðvíðtug harðstjórn. Hlaðvarpið Söguskoðun má nálgast hér:Soguskodun.com | [email protected] á Facebook og Youtube. Hægt er að styrkja hlaðvarpið hér.
What this episode covers
Í hlaðvarpinu í dag ræða Ólafur og Andri um írönsku byltinguna árið 1979, þegar síðasti keisari Írans (sha) var steypt af stóli og stofnað var róttækt íslamskt lýðveldi undir klerkastjórn. Íranska byltingin var afdrifaríkur atburður í nútímasögu Mið-Austurlanda. Ekki aðeins varð byltingin til þess að 2500 ára gömul stofnun íranska keisarans leið undir lok, heldur breyttist Íran á skömmum tíma úr einum helsta bandamanni Bandaríkjanna í Mið-Austurlöndum, í miðju Kalda stríðinu, yfir í mesta and...
NOW PLAYING
110 - Íranska byltingin 1979
No transcript for this episode yet
Similar Episodes
No similar episodes found.
Similar Podcasts
No similar podcasts found.