EPISODE · Aug 27, 2019 · 27 MIN
#13 Heiðar Davíð frá Golfklúbbi Akureyrar, Mfl. karla í körfu hjá Þór og KA/Þór í handbolta kvenna
from Taktíkin · host N4
Heiðar Davíð frá Golfklúbbi Akureyrar, Ingvi Rafn Ingvarsson og Pálmi Geir Jónsson Þórs í körfubolta og Hulda Bryndís Tryggvadóttir og Sólveig Lára Kristjánsdóttir leikmenn KA/Þór í handbolta kvenna eru gestir Skúla Braga í þessum þætti af Taktíkinni. „Þessi áhugahvöt. Þessi vilji til þess að gera meira en allir aðrir og gera betur en allir aðrir. Það er ekki nóg að eyða bara meiri tíma en allir aðrir inná vellinum, þú verður að hafa þann metnað að þú viljir gera æfingarnar betur en allir aðrir, þannig að þú sért ákveðnari í öllum aðgerðum,“ sagði Heiðar Davíð Bragason yfirþjálfari hjá Golfklúbbi Akureyrar aðspurður að því hvaða eiginleika maður þyrfti að hafa til þess að ná langt í golfi. „Þetta er svona kannski aðeins öðruvísi en heima á Króknum, þar sem allir lifa fyrir körfuboltann. Hérna finnur maður að fótboltinn og handboltinn eru stærri en karfan. En samt eins og í fyrstu leikjunum núna í vetur þá hefur verið mjög góð mæting,“ sagði Ingvi Rafn Ingvarsson leikmaður Þórs í körfu í þættinum. „Okkur langar að sjálfsögðu í úrslitakeppnina, en það er náttúrlega bara hörð barátta milli allra í deildinni, þetta er hrikalega jöfn deild þannig að við þurfum að leggja mjög hart að okkur til þess að ná því markmiði,“ sagði Hulda Bryndís Tryggvadóttir leikmaður KA/Þór í handbolta, en liðið spilar á þessu tímabili í efstu deild.
What this episode covers

NOW PLAYING
#13 Heiðar Davíð frá Golfklúbbi Akureyrar, Mfl. karla í körfu hjá Þór og KA/Þór í handbolta kvenna
No transcript for this episode yet
Similar Episodes
No similar episodes found.
Similar Podcasts
No similar podcasts found.