Skip to content
Taktíkin podcast artwork

PODCAST · sports

Taktíkin

by N4

Í Taktíkinni fjöllum við um íþróttir á landsbyggðunum. Við fáum ýmsa góða gesti úr íþróttalífinu í settið, ýmist íþróttafólkið sjálft, þjálfarana eða spekinga með mismunandi bakgrunn. Knattspyrna, handbolti, íshokkí, körfubolti, kraftlyftingar, frjálsar, skák, ofurhlaup, júdó og margt fleira. Hér fáum við að kynnast fólki í íþróttum á persónulegu nótunum.

Publisher-supplied feed metadata · PodParley refreshed Apr 15, 2026 · Source feed

Episodes

  1. #106 Íþróttir og stjórnun

    Sveinn Margeirsson er núverandi sveitarstjóri Skútustaðahrepps. Hann var í fremstu röð frjálsíþróttamanna landsins á árum áður, meðal annars á hann íslandsmet í 3000 metra hindrunarhlaupi. En hvað er líkt með hindrunarhlaupi og stjórnsýslu? Það er víst ansi mikið!

  2. #103 Rafíþróttir og ÍSÍ

    Eiga rafíþróttir að vera innan íþróttahreyfingarinnar? Mjög skiptar skoðanir eru það hvort rafíþróttir teljist til íþrótta. Margir vita einnig afskaplega lítið um það hvað rafíþróttir eru og telja það bara snúast um að spila tölvuleiki og ekki vitund meira en það. Aron Ólafsson, framkvæmdastjóri...

  3. #97 Sigurbjörn Árni Arngrímsson - Hlauparinn, íþróttafréttamaðurinn og skólameistari

    Allir sem hafa horft á útsendingar frá Ólympíuleikum eða öðrum stórmótum vita það að Sigurbjörn Árni Arngrímsson leggur mikla vinnu og ástríðu í það sem hann tekur sér fyrir hendur! „Ætli þetta séu ekki um 30 stórmót erlendis ásamt nokkrum hérna heima sem ég hef lýst af frjálsum, fyrir utan öll...

  4. #96 Hólmfríður Jóhannsdóttir - Íþróttakennari

    „Að þú kveikir þennan vilja í einstaklingnum að vilja að hlúa að sjálfum sér.“ Hólmfríður Jóhannsdóttir íþróttakennari er gestur Skúla B. Geirdal í kvöld, en „Hóffa“ eins og hún er gjarnan kölluð byggir á margra ára reynslu af fimleikum, líkamsrækt, dansi, íþróttakennslu og þjálfun.

  5. #90 Bryndís Rut Haraldsdóttir - Fyrirliði meistaraflokks kvenna í knattspyrnu hjá Tindastóli

    Knattspyrnulið Tindastóls í fyrsta skipti í úrvalsdeild 2021 Kvennalið Tindastóls í knattspyrnu hefur tryggt sér efsta sæti Lengjudeildarinnar í ár, og þar með langþráð sæti meðal þeirra bestu í úrvalsdeild á næsta tímabili. Það verður í fyrsta skipti í sögu félagsins sem meistaraflokkur…

    more
  6. #89 Sonja Sif Jóhannsdóttir - Íþróttafræðingur, kennari og hlaupari

    Sonja Sif íþróttafræðingur, kennari og hlaupari er gestur Skúla B. Geirdal. Íþróttir eru meira en kappleikir og úrslit. Íþróttir og hreyfing skipta okkur öll máli frá fæðingu og í gegnum allt lífið. Íþróttir fyrir ungabörn - Lýðheilsa unglinga - Næringarfræði - Heilsa sjómanna og margt fleira...

  7. #88 Helgi Rúnar Bragason - Framkvæmdastjóri ÍBA

    Á Akureyri eru 21 íþróttafélag og í kringum 40 íþróttagreinar! Helgi Rúnar Bragason framkvæmdastjóri Íþróttabandalags Akureyrar er gestur Skúla B. Geirdal að þessu sinni. Hlutverk Íþróttabandalags Akureyrar - Uppbygging íþróttasamfélags til framtíðar - Samvinna og sameiningar íþróttafélaga -...

  8. #87 Aksentije Milisic og Sæbjörn Þór - Boltinn á Norðurlandi

    Aksentije Milisic og Sæbjörn Þór Þórbergsson halda úti hlaðvarpsþættinum ,,Boltinn á Norðurlandi” sem fjallar um knattspyrnulið á Norðurlandi. Hér setjast þeir niður með Skúla Geirdal til þess að fara yfir málin. Umfjöllun um íþróttir á landsbyggðunum - staða og hlutverk fjölmiðla - hlutleysi -...

  9. #86 Ellert Örn Erlingsson - Íþróttasálfræðiráðgjafi og íþróttafulltrúi Akureyrarbæjar

    „Að komast á Ólympíuleika getur sem dæmi verið loka markmið hjá mörgum, en það að líða vel, vera hluti af hópi og vera viðurkenndur af þeim hópi, eru líka verðug markmið.“ Íþróttasálfræðiráðgjafinn og íþróttafulltrúi Akureyrarbæjar Ellert Örn Erlingsson er gestur Skúla B. Geirdal í þessum þætti....

  10. #85 Birna Baldursþóttir - þrjú landslið á sama tíma og Íslandsmeistari í öllum greinum

    Birna Baldursdóttir var í þremur mismunandi landsliðum á sama tíma, blaki, íshokkí og strandblaki! Í þokkabót tókst henni að verða Íslandsmeistari í öllum greinum. Birna fer hér yfir íþróttaferilinn með Skúla Geirdal, ásamt því að gefa okkur innsýn í líf afreks íþróttakonu sem þekkir ekkert annað...

  11. #84 Þórhallur Guðmundsson - sjúkraþjálfari

    „Það er engin íþrótt svo slæm að hún sé eki betri en að gera ekki neitt“ Ræðum um líkamsstöðu, hlaupagreiningu, æfingar og margt annað sem tengist sjúkraþjálfun. Gestur Skúla B. Geirdal í þessum þætti er Þórhallur Guðmundsson sjúkraþjálfari. „Ég myndi frekar vilja að þú færir í 20 mínútur í búrið...

  12. #83 Sesselja Sigurðardóttir - Sports Therapist

    Hvað tekur við þegar að við lendum í meiðslum? Sesselja Sigurðardóttir, Sports Therapist er gestur Skúla Geirdal að þessu sinni. Hún æfði sund í mörg ár áður en meiðsli settu strik í reikninginn. Þá tóku við æfingar, keppnir og þjálfun í CrossFit þar sem meiðslin héldu áfram að gera vart við sig....

  13. #82 Guðrún Arngrímsdóttir - Einkaþjálfari og jákvæð sálfræði

    Að finna sína leið í þjálfun og matarræði - Heildræn nálgun hugar og líkama - Líkamsímynd sem hluti af þjálfun Guðrún Arngrímsdóttir einkaþjálfari er gestur Skúla B. Geirdal að þessu sinni. Hún hefur starfað við þjálfun sl. 10 ár og jógakennslu sl. 4 ár. Í þjálfuninni leggur hún áherslu á…

    more
  14. #81 Hafdís Sigurðardóttir - Frjálsíþróttakona

    Hafdís Sigurðardóttir frjálsíþróttakona frá Tjarnarlandi í Ljósavatnsskarði hefur verið í fremstu röð í frjálsum íþróttum á Íslandi um ára bil. Það hefur þó ekki alltaf verið dans á rósum og hún þurft að yfirstíga margar hindranir til þess að komast á þann stað sem hún er á í dag. -> Erfitt að…

    more
  15. #80 Auður Inga Þorsteinsdóttir - Framkvæmdastjóri UMFÍ

    Auður Inga Þorsteinsdóttir framkvæmdastjóri UMFÍ er gestur Skúla Geirdal í þessum síðasta þætti fyrir sumarfrí. Ungmennafélag Íslands - UMFÍ er landssamband ungmennafélaga og var stofnað í ágúst árið 1907. Sambandsaðilar UMFÍ eru 28 talsins sem skiptast í 21 íþróttahérað og 7 ungmennafélög með...

  16. #79 Akureyrardætur - Hjólreiðar

    Akureyrardæturnar Hafdís Sigurðardóttir og Freydís Heba Konráðsdóttir mæta í settið til Skúla B. Geirdal. Þær keppa báðar í hjólreiðum og eru kennarar á hjólanámskeiðum og þekkja því vel þá gífurlegu uppsveiflu sem hefur orðið í hjólreiðum á Íslandi síðustu ár. Hvað þarf til þess að að keppa og…

    more
  17. #78 Blaine McConnell og Björk Óðinsdóttir - Norður

    Björk Óðinsdóttir og Blaine McConnell eru gestir Skúla B. Geirdal að þessu sinni en þau eru að opna nýja æfingastöð á Akureyri sem nefnist Norður, ásamt Helgu Sigrúnu og Erlingi Óðingssyni. Blaine er með yfir 10 ára reynslu af þjálfun, bæði sem hóp/einkaþjálfari og kemur því með miklu reynslu inn…

    more
  18. #77 Gunnar Eyjólfsson - Sjöþrautakappi

    Gunnar Eyjólfsson sjöþrautakappi er nýliði ársins hjá Háskólanum í Guelph í Kanada. Hann nýtti sína íþróttaiðkun til að komast í háskólanám erlendis. Gunnar mætti í settið til Skúla B. Geirdal til þess að segja sína sögu.

  19. #76 Bjarni Sigurðsson - Rafíþróttir og píla

    Rafíþróttir og píla „Menn voru ekkert að kaupa þetta alveg strax. Þetta tók smá tíma en þegar að menn áttuðu sig á conceptinu þá voru allir klárir.“ Bjarni Sigurðsson formaður rafíþróttadeildar og píludeildar Þórs er gestur Skúla B. Geirdal að þessu sinni. „Það eru líka mikilr möguleikar í boði...

  20. #75 Jónas Stefánsson „Jonni“ - Útivist og íþróttir

    Landið sjálft er minn íþróttavöllur Bretti, hjól, skíði og sleðar það skiptir ekki máli hvað það heitir ef það er hægt að nota það til íþróttaiðkunar utandyra þá eru allar líkur á því að Jónas Stefánsson „Jonni“ hafi prófa það. Fyrir honum eru íþróttir lífsstíll og landið sjálft og náttúran...

  21. #74 Stefán Ólafsson og Tinna Stefánsdóttir - Sjúkraþjálfun

    Tinna Stefánsdóttir sjúkraþjálfari lennti í því eftir 14 ára starf að geta takmarkað unnið við bekkinn sem sjúkraþjálfari. Hún var þó ekki tilbúin til þess að segja skilið við vinnuna sem hún elskar og fór því að leita annarra leiða. „Ég byrjaði að pæla í því hvernig ég gæti hitt mína...

  22. #73 Arnbjörg Kristín Konráðsdóttir - Yoga

    Hvernig getur Jóga hjálpað íþróttafólki að verða betra í sinni grein? Núna er tíminn til þess að hugsa út fyrir boxið og prófa nýjar nálganir. Arnbjörg Kristín Konráðsdóttir rekur Jógasetrið Óm á Akureyri. Hún þurfti að hugsa starfsemina algjörlega upp á nýtt í ljósi samkomubanns. Hún hefur nýtt...

  23. #72 - Heimaæfingar með TFW í samkomubanni

    Á meðan sumir finna sig vel í heimaæfingum í samkomubanninu þá eru aðrir sem að eiga erfiðara með að búa sér til rútínu og halda dampi. „Ég vil meina að þú þurfir að hafa plan. Það þýðir ekki að fara stefnulaust í gegnum það sem þú ert að gera. Með plani þá er ég ekkert endilega bara að tala um...

  24. #71 Sævar Pétursson - Framkvæmdastjóri KA

    „Í dag erum við öll að glíma við þann sameignlega óvin sem veiran er, en ekki hvort annað.“ Hvaða áhrif hefur Covid-19 á starf og rekstur íþróttafélags? Sævar Pétursson framkvæmdastjóri KA er gestur Skúla B. Geirdal að þessu sinni. „Hjá KA höfðum við gert ráð fyrir heildartekjum í mars og apríl...

  25. #70 Hannes Jónsson - Formaður KKÍ

    Hannes Jónsson hefur verið formaður Körfuknattleikssambands Íslands frá árinu 2006. Hann er gestur Skúla Braga Geirdal að þessu sinni. Íþróttasambönd standa oft frami fyrir því að þurfa að taka óvinsælar ákvarðanir. Að fresta leik getur verið jafn mikil ákvörðun og að fresta ekki leik. Hér fáum…

    more
  26. #69 Sarah Smiley og Ólöf Björk - Heimsmeistaramót kvenna í íshokkí

    Förum yfir heimsmeistaramót kvenna í íshokkí sem haldið var í Skautahöllinni á Akureyri. Sarah Smiley fyrirliði íslenska landsliðsins í íshokkí og Ólöf Björk Sigurðardóttir formaður íshokkídeildar Skautafélags Akureyrar eru gestir þáttarinns. „Þjálfarinn tók pressuna af okkur og sagði það ekki...

  27. #68 Atli Fannar Írisarson - Knattspyrnuþjálfari

    Ákveðin spenna getur myndast milli foreldra og þjálfara þegar að það skortir innsýn og skilningi á starfi þjálfarans. Oft eru þetta sömu hlutirnir: Skipting í lið/hópa eftir getu, stuðningur af hliðarlínu, óraunhæf pressa og væntingar, mörkin milli afreksstarfs og félagsstarfs, mæting á réttum...

  28. #67 Dýrleif Skjóldal „Dilla“ - Sundþjálfari

    Dýrleif Skjóldal, betur þekkt sem Dilla, fór á sína fyrstu sundæfingu fyrir 50 árum síðan og féll algjörlega fyrir greininni. Hún hefur verið sundþjálfari í vel yfir 20 ár við góðan orðstýr enda fjölgar alltaf hjá henni iðkendum en tímafjöldanum til æfinga fjölgar hinsvegar ekki. Hún er í dag með...

  29. #66 Andri Freyr Björgvinsson - Skákmeistari

    „Það þarf mistök til að vinna. Það þarf mistök til þess að vinna fótboltaleik eða handboltaleik og það er alveg eins í skák. Sem áhorfandi er maður að fylgjast með þessum mistökum og hvernig brugðist er við þeim.“ Skákmeistarinn Andri Feryr Björgvinsson ræðir hér við Skúla B. Geirdal um...

  30. #65 Siguróli Sigurðsson - íþróttafulltrúi KA

    Siguróli Sigurðsson íþróttafulltrúi KA er gestur Skúla B. Geirdal að þessu sinni. Umræðuefnið er gildi íþróttafélaga fyrir samfélagi útfrá hinum ýmsu vinklum. Hafa íþróttafélög áhrif á ferðaþjónustu, rekstur fyrirtækja, verslanna o.fl.? Hvaða máli skiptir forvarnargildi og heilsuefling íþrótta...

  31. #64 Brynjar Helgi Ásgeirsson - CrossFit Hamar

    Brynjar stofnaði CrossFit Hamar árið 2010. Hann er fæddur og uppalinn á Akureyri. Hann byrjaði snemma að stunda íþróttir, æfði og keppti í júdó frá því hann var fimm ára gamall fram að tvítugsaldri og er þrettánfaldur íslandsmeistari í greininni. Árið 2008 kynntist hann CrossFit og hefur sú…

    more
  32. #63 Halldór Kristinn Harðarson „KÁ-AKÁ“ - Hnefaleikar, handbolti og lífið

    Tónlistar- og „altmúligt“ maðurinn Halldór Kristinn Harðarsson „KÁ-AKÁ“ er gestur Skúla Braga Geirdal að þessu sinni. „Ein af ástæðunum fyrir því að ég sæki í hnefaleika og þessar íþróttir, er til þess að koma mér beint aftur í jafnvægi. Inní hringnum ertu ekkert að hugsa um hvað þú sért að fara…

    more
  33. #62 Ana Markovic og Kristjana Huld - Fitness

    Ana Markovic og Kristjana Huld Kristinsdóttir fitnesskeppendur eru gestir þáttarinns að þessu sinni. „Ég var í mjög slæmu ástandi. Síðan byrjaði ég að lyfta lóðum. Mér var sagt að ég yrði komin í hjólastól fyrir 35 ára aldur og að ég myndi deyja áður en ég næði 45 ára aldri. “ Ana Markovic stóð...

  34. #61 Magnús Bess Júlíusson - Vaxtarækt

    Þeir gerast ekki mikið stærri og skornari gestir þáttarins! Magnús Bess Júlíusson er nafn sem þarf ekki að kynna fyrir neinum vaxtarræktar áhugamanni enda einn reynslumesti keppandi sem við Íslendingar höfum átt á því sviði. Hann á að baki 30 ár ára keppnisferil sem er hreint út sagt magnaður...

  35. #60 Aldís Kara og Marta María - Listskautar

    LISTSKAUTAR Aldís Kara Bergsdóttir og Marta María Jóhannsdóttir, tvær af bestu listskauturum landsins eru gestir Skúla B. Geirdal í þætti kvöldsins. Í byrjun nóvember börðust þær um gullverðlaun á Vetrarmóti ÍSS þar sem nýtt Íslandsmet þurfti til þess að skera úr um sigurvegarann. Báðar eru...

  36. #59 Eymundur Eymundsson - Andleg líðan í íþróttum

    Andleg veikindi og íþróttir verða umfjöllunarefni þáttarins. Eymundur Eymundsson þekkir það vel hversu íþyngjandi það er að burðast með andleg veikindi samhliða íþróttaiðkun. Hann þekkir það að treysta sér ekki til þess að hitta liðsfélagana fyrir utan æfingar vegna félagskvíða. Hann þekkir það…

    more
  37. #58 Sigfús Fossdal - Aflraunamaður

    Gestur Skúla Geirdal að þessu sinni er aflraunamaðurinn Sigfús Fossdal sem keppti á þessu ári í fyrsta skipti í keppninni „Sterkasti maður heims“ en við Íslendingar höfum í gegnum árin verið einstaklega sigursæl í þeirri keppni. Hér er Sigfús í einlægu viðtali um líf aflraunamannsins sem býr á...

  38. #57 Lárus Jónsson - Þjálfari mfl. karla hjá Þór Ak. í körfubolta

    Lárus Jónsson, þjálfari Meistaraflokks karla hjá Þór Akureyri í körfubolta er gestur Skúla Geirdal að þessu sinni. Þór Akureyri eru nýliðar í Dominos deild karla í körfubolta með marga unga og efnilega leikmenn í sínum röðum. Það er því alveg ljóst að verkefnið framundan er gríðarlega krefjandi.

  39. #56 Pálmar Ragnarsson - fyrirlesari og körfuboltaþjálfari

    Pálmar Ragnarsson fyrirlesari og körfuknattleiksþjálfari er gestur Skúla Geirdal að þessu sinni. Hann var kominn norður á Akureyri til þess að halda fyrirlestur á vegum ÍBA fyrir íþróttaiðkendur, foreldra og þjálfara. 🔹Hvernig er fyrirmyndar íþróttaforeldri? 🔹Hvernig þjálfar maður jákvæð...

  40. #55 Björgvin Karl Guðmundsson - CrossFit

    Taktíkin - Björgvin Karl Guðmundsson Björgvin Karl Guðmundsson sýndi það og sannaði hversu hraustur hann er þegar að hann endaði í þriðja sæti á CrossFit Games á þessu ári. Þrátt fyrir að keppa á þessu stærsta sviði íþróttarinnar þá var hann mættur á Hleðslumótið í CrossFit á Hrafnagili í...

  41. #54 CrossFit - Guðbjörg Ósk, Unnar Helgason og Ragnheiður Sara Sigmundsdóttir

    Taktíkin var á svæðinu þegar að Hleðslumótið í CrossFit fór fram á Hrafnagili í Eyjafjarðarsveit. „Það þýðir ekkert að dvelja í fortíðinni og hugsa hvað eitthvað var leiðinlegt, erfitt eða ósanngjarnt. Það hjálpar ekki neitt. Það sem skiptir máli er að horfa fram, hugsa um það sem maður er að…

    more
  42. #53 Siguróli Kristjánsson „Moli“ - Knattspyrnukempa

    Siguróli Kristjánsson, eða Moli eins og hann er betur þekktur, hefur ýmsa fjöruna sopið. Moli spilaði fótbolta með Þór Akureyri og á að baki tvo A landsleiki. Síðar hefur hann verið þjálfari og var til dæmis lengi í þjálfarateymi Þór/KA. Moli var í sumar í grasrótarstarfi fyrir…

    more
  43. #52 Sigurður Hjörtur Þrastarson - CrossFit Games og dómgæsla í handbolta og knattspyrnu

    Crossfitkeppandinnn og þjálfarinn Sigurður Hjörtur Þrastarson mætti í settið til Skúla Geirdal á mánudaginn í Taktíkinni. Sigurður hefur tvisvar farið út og keppt á Crossift Games: 2019 – 3. Sæti í flokki 35-39 ára 2016 – 34. Sæti í liðakeppni CrossFit XY Hér segir Sigurður frá upplifun sinni af...

  44. #51 Egill Ármann Kristinsson - Eigandi Training for Warriors á Akureyri

    Egill Ármann Kristinsson eigandi Training For Warriors Akureyri er gestur kvöldsins hjá Skúla Braga Geirdal í Taktíkinni. Egill hefur nú verið eigandi í 3 ár og það er heldur betur margt sem hefur breyst á þeim tíma síðan að hann tók við. Liðsheild - hugarfar - samheldni - samskipti og margt…

    more
  45. #50 Tryggvi Kristjánsson, Líkamsræktin Bjarg og Bjarki Kristjánsson, Crossfit Akureyri

    Tryggvi Kristjánsson einn eigenda á Líkamsræktinni Bjargi á Akureyri og Bjarki Kristjánsson þjálfari á Crossfit Akureyri eru gestir Skúla Braga í fimmtugasta þættinum af Taktíkinni. Æfingar - næring - heilsa - hvíld Nú er tíminn þar sem að margir eru að snúa aftur til baka í líkamsrækt eftir...

  46. #49 Jón Stefán Jónsson - Íþróttafulltrúi Þórs

    Nýr íþróttafulltrúi Þórs Jón Stefán Jónsson, eða Jónsi eins og hann er jafnan kallaður, hefur tekið við starfi íþróttafulltrúa Þórs. Jónsi hóf knattspyrnuþjálfun hjá Þór árið 2003 og um tíma var hann yfirþjálfari yngri flokka félagsins. Þá hefur Jónsi einnig starfað sem knattspyrnuþjálfari hjá…

    more
  47. #48 Hallgrímur Jónasson - Knattspyrnumaður

    Í þessum þætti spjallar Skúli Bragi við Hallgrím Jónasson, betur þekktan sem Hadda, um knattspyrnuferilinn. Hann er leikmaður KA á Akureyri um þessar mundir, en er uppalinn hjá Völsung á Húsavík. Frá Húsavík færði hann sig yfir til Þór og spilaði með þeim í 1. deildinni áður en hann fór til...

  48. #47 Ingi Þór Ágústsson - Yfirþjálfari Sundfélagsins Óðins

    Ingi Þór Ágústsson nýr yfirþjálfari Sundfélagsins Óðins er gestur þáttarinns að þessu sinni. Ingi, sem er hjúkrunarfræðimenntaður, hefur komið víða við á ferlinum og m.a. setið í framkvæmdastjórn ÍSÍ, verið viðriðinn körfuboltann hjá Þór og lýst sundi með tilþrifum í sjónvarpi. Í þættinum fáum…

    more
  49. #46 Jón Ingi Baldvinsson - Yfirþjálfari yngriflokka í körfubolta hjá Þór

    Jón Ingi Baldvinsson yfirþjálfari yngriflokka í körfubolta hjá Þór verður gestur þáttarinns að þessu sinni. Körfuknattleiksdeild Þórs verður í sumar í fyrsta skipti með körfuboltabúðir fyrir stelpur og stráka á aldrinum 9-15 ára. Markmið með þjálfun í yngriflokkum, starf yngriflokka, þjálfun í...

  50. #45 Ómar Bragi Stefánsson - UMFÍ

    Ómar Bragi Stefánsson veit sannarlega hvað hann syngur þegar að kemur að því að setja upp Landsmót enda starfað hjá UMFÍ í 15 ár. Hann er gestur Skúla Braga að þessu sinni. Ungmenna- og tómstundabúðir UMFÍ, Landsmót, Unglingalandsmót, Landsmót 50+, Hreyfivika og margt fleira.

Type above to search every episode's transcript for a word or phrase. Matches are scoped to this podcast.

Searching…

We're indexing this podcast's transcripts for the first time — this can take a minute or two. We'll show results as soon as they're ready.

No matches for "" in this podcast's transcripts.

Showing of matches

No topics indexed yet for this podcast.

Loading reviews...

ABOUT THIS SHOW

Í Taktíkinni fjöllum við um íþróttir á landsbyggðunum. Við fáum ýmsa góða gesti úr íþróttalífinu í settið, ýmist íþróttafólkið sjálft, þjálfarana eða spekinga með mismunandi bakgrunn. Knattspyrna, handbolti, íshokkí, körfubolti, kraftlyftingar, frjálsar, skák, ofurhlaup, júdó og margt fleira. Hér fáum við að kynnast fólki í íþróttum á persónulegu nótunum.

HOSTED BY

N4

CATEGORIES

Frequently Asked Questions

How many episodes does Taktíkin have?

Taktíkin currently has 106 episodes available on PodParley. New episodes are automatically indexed when they're published to the podcast feed.

What is Taktíkin about?

Í Taktíkinni fjöllum við um íþróttir á landsbyggðunum. Við fáum ýmsa góða gesti úr íþróttalífinu í settið, ýmist íþróttafólkið sjálft, þjálfarana eða spekinga með mismunandi bakgrunn. Knattspyrna, handbolti, íshokkí, körfubolti, kraftlyftingar, frjálsar, skák, ofurhlaup, júdó og margt fleira. Hér...

How often does Taktíkin release new episodes?

Taktíkin publishes regularly with 106 episodes available. Check the episode list for the typical release schedule.

Where can I listen to Taktíkin?

You can listen to Taktíkin on PodParley by clicking any episode. We provide an embedded audio player for direct listening, and you can also subscribe via your preferred podcast app using the RSS feed.

Who hosts Taktíkin?

Taktíkin is created and hosted by N4.
URL copied to clipboard!