#24 Aronmola hættur á samfélagsmiðlum – mikil ánægja episode artwork

EPISODE · Feb 7, 2020 · 2H

#24 Aronmola hættur á samfélagsmiðlum – mikil ánægja

from Skoðanabræður · host Bergþór Másson

Lífið gengur sinn vanagang, sem er náttúrulega mjög deprímerandi í sjálfu sér, en Skoðanabræður halda sínu striki og biðjast aldrei afsökunar, hvorki innilega né innilegrar. Hér ræða þeir við frægan kóng sem brá út af vananum og hætti á samfélagsmiðlum eftir áramót; þeir höfðu fyllt hausinn hans af nægu eitri, tekið af honum nægar klukkustundirnar af tilgangslausu hangsi og misþyrmt geðheilsunni hans nóg. Hann tók málin í sínar eigin hendur, eins og reyndar er líka sagt sagt þegar samfélagið hrósar sigri yfir því þegar óbreyttur borgari beitir glæpamann ofbeldi. Aronmola hætti á Instagram og varð Aron Már. Það er sem sé strákur vikunnar þessa vikuna, lítill karlmaður, en langt frá því að vera krumpaður eins og klisjan kveður á um. Ásamt því að taka hann tali símleiðis ganga Skoðanabræður að vanda óragir til verks og stinga á helstu kýlum samfélagsumræðunnar; fjölmiðlakrítík, þó að idjótar biðji um annað, tóbaksvandinn, þó að lúserfíklar biðji um annað, rappið, þó að boomerinn biðji um annað. Sem sé ekkert gert til að geðjast, allt saman andóf í einhverri mynd gegn hinu ríkjandi, talað upp ekki niður, sem þýðir líka að „viðskiptarefir“ eru ekki aufúsugestir í hljóðver til Skoðanabræðra, sem hafa bent á betra orð yfir þá – arðræningja. Það er þó svo sem tekið til baka líka, enda augljóslega í grunninn borgaralegt hlaðvarp hér á ferð. Rétt eins og Álfgrímur í Brekkukoti var allur í því að finna hinn hreina tón, eru Skoðanabræður enn að leggja lokahönd á umbreytingaferli það sem hefur í för með sér hljóðbyltingu. Áfram heldur frásögn um margboðað morð á slæmum gæðum. Það er svo sem ekki eins háleitur draumur og það sem bjó í eistunum á Álfgrími forðum, þessi um hreina tóninn, við viljum bara bjóða hlustendum okkar upp á góð gæði, fyrst þeir láta sig hafa þetta yfirleitt. Annað sem við bjóðum hlustendum okkar eru síðan sérkjör hjá fyrirtækjum ýmsum, sem aðeins ósvinnur maður léti framhjá sér fara: Farðu á sambandid.is, gakktu í félagið og fáðu 60 GB af neti í símann þinn frí. Farðu á forlagid.is og kauptu þér bók mánaðarins (nýja lasna skáldsögu eftir Eirík Örn Norðdahl) á 2.990 (grínverð), hvort sem það er á kilju eða í rafbók. Og farðu í símann þinn og AUR-aðu vin þinn 40 þúsund kallinn sem þú skuldar honum.

Episode metadata supplied by the publisher feed · Published Feb 7, 2020

Embed this episode

NOW PLAYING

#24 Aronmola hættur á samfélagsmiðlum – mikil ánægja

0:00 2:00:43

No transcript for this episode yet

We transcribe on demand. Request one and we'll notify you when it's ready — usually under 10 minutes.

No similar episodes found.

No similar podcasts found.

Frequently Asked Questions

How long is this episode of Skoðanabræður?

This episode is 2 hours and 0 minutes long.

When was this Skoðanabræður episode published?

This episode was published on February 7, 2020.

Can I download this Skoðanabræður episode?

Yes. Use the download control on the episode player to save the publisher-provided media file.
URL copied to clipboard!