#26 Formaður Samfylkingarinnar í Weedbúðinni og hið vesturíslenska Trust Fund Trap episode artwork

EPISODE · Feb 21, 2020 · 1H 33M

#26 Formaður Samfylkingarinnar í Weedbúðinni og hið vesturíslenska Trust Fund Trap

from Skoðanabræður · host Bergþór Másson

Allt sem þú segir getur og mun vera notað gegn þér fyrir rétti, segja bandarískir lögreglumenn þegar þeir misþyrma saklausum glæpamönnum. Annað eins mætti vera haft yfir nú þegar formaður næststærsta stjórnmálaflokks landsins samkvæmt könnunum gengur í vatnið, nánar tiltekið í Skoðanabræðralagið. Einsamalt vatnið augun sjá, sem sé gildruna, en glöggskyggn og ósvinnur sér tækifæri öllu heldur: Skoðanabræðralagið er þúsundaþjóð ungra kjósenda. Og hvað þurfa þeir að vita? Eigum við að lögleiða skúnkinn og stofna Weedbúð í Vínbúðinni? Eigum við að nota stórhættuleg skynörvandi bulllyf til lækninga? Eða eigum við að halda okkur við að leyfa smásölu áfengis í gegnum netið (sem þýðir í öllum meginatriðum afnám einokunar Áfengis- og tóbaksverslunar ríkisins)? Erum við ekki eftir allt að tala um að halda óbreyttum hætti, stefna í átt að breiðri vinstristjórn og sveigja af vegferð ránfuglsins, að svo miklu leyti sem hann hefur ekki fargað sér sjálfum? Öllu þessu er svarað í þættinum, „on the record“ í þeim sjálfgefna skilningi að þetta er bókstaflega allt tekið upp og útvarpað í tappana í eyrun á þér, hávelborinn hlustandi. Strákur vikunnar er semsé Logi Einarsson formaður Samfylkingarinnar, sem er á leiðinni inn í kosningabaráttu, sem Skoðanabræður hringja hér með inn. Fyrstir með fréttirnar, má segja. Aðrar fréttir eru sagðar sitthvoru megin við viðtalið og við sögu kemur allur andskotinn; íbúðamarkaðurinn, og í því sambandi Trust Fund Trappið, nýtt hugtak í stéttafræðunum, svo ruslið sem Íslensku tónlistarverðlaunin eru, og ekki síður Hlustendaverðlaunin, og að lokum er sögð hugljúf saga úr samtímanum af körlum sem horfa á klám á meðan þeir sofa hjá konunum sínum. Skoðanabræður, frjálst hlaðvarp fyrst og síðast á vegum Útvarps 101, og í farsælu samstarfi við AUR.

Episode metadata supplied by the publisher feed · Published Feb 21, 2020

Embed this episode

NOW PLAYING

#26 Formaður Samfylkingarinnar í Weedbúðinni og hið vesturíslenska Trust Fund Trap

0:00 1:33:22

No transcript for this episode yet

We transcribe on demand. Request one and we'll notify you when it's ready — usually under 10 minutes.

No similar episodes found.

No similar podcasts found.

Frequently Asked Questions

How long is this episode of Skoðanabræður?

This episode is 1 hour and 33 minutes long.

When was this Skoðanabræður episode published?

This episode was published on February 21, 2020.

Can I download this Skoðanabræður episode?

Yes. Use the download control on the episode player to save the publisher-provided media file.
URL copied to clipboard!