#29 GDRN, Human Centipede skíðayfirstéttarinnar og eiginkonan sem æviráðin hóra episode artwork

EPISODE · Mar 6, 2020 · 1H 31M

#29 GDRN, Human Centipede skíðayfirstéttarinnar og eiginkonan sem æviráðin hóra

from Skoðanabræður · host Bergþór Másson

„Skækjan – það er eiginkonan; eiginkonan – það er skækjan. Aðra kaupi ég til samneytis við mig ævilángt … Hina kaupi ég til samneytis við mig eina nótt.“ Skoðanabræður gerast svo djarfir að mótmæla þessari tvígreiningu kvenna sem má lesa um í skáldsögu frá því snemma á 20. öld. Í hvaða bók? spyr sig sá sem gengur svo langt að lesa þetta klór. Upplýsingar þar um finnast inni í miðjum þættinum, sem þýðir að orðin sem þú ert að lesa eru smellibeita. Þú ert ormétinn og úrkynjaður lax úr eldiskví sem silast niður eftir lækjarsprænu og bítur loks á agnið, sem sé hlustar á þáttinn. Svona flýturðu sofandi undan ævistraumi og þinn feigðarós er hjákátlegur hlaðvarpsþáttur; hafðu fyrir alla muni hugfast í millitíðinni það sem góðskáldinu rataðist forðum á munn, að lasta því síður laxinn, sem „leitar móti straumi sterklega og stiklar fossa.“ Straumurinn stendur ekki í vegi fyrir Skoðanabræðrum sem eru umræddur heilbrigður lax svo myndmálið fái hér áfram að njóta sín; þeir eru villtur lax. Þess vegna segja þeir það sem They – kapítalið – vill ekki að sagt verði. Meiriháttar uppljóstranir gerðar í þættinum, sem lúta að fjölmiðlavaldi, tæknivaldi og kaupmannavaldi. Þeim mun mikilvægara er að Skoðanabræður geti haldið áfram vegferð sinni; AUR eða KASS í síma 661-4648. Karlmaður vikunnar er engin önnur en Guðrún Ýr Eyfjörð, GDRN, söngkonan sem þið hafið að líkindum haft á fóninum allar götur síðan ykkur barst sá fögnuður til eyrna, að út væri komin ný plata. GDRN veitir hér fyrsta viðtal eftir að hún hreppti verðlaun sem söngkona ársins á einhverjum hlustendaverðlaunum í gær; og hvað ber framtíðin í skauti sér, er spurt. Óvíst – líklega ekki eiturlyfjafíkn. Og þó. Annað vitaskuld rætt: metafóran í meme-inu, hin héðan af forboðna gredda hlaðvarpsformsins og ekki óskylt henni, hin karnivalíska mennska margfætla sem skíðayfirstéttin myndaði í Austurríki, upp á vesturíslensku eitt loftþétt Human Centipede sem liðaðist um íburðarmikil salarkynni skíðaskálans endilöng, grandalaust um vá þá er vofði yfir mönnunum; þegar ljósin voru kveikt voru almannavarnir ekki lengi að lýsa yfir neyðarástandi.  Skoðanabræður eru frjálst og sjálfstætt hlaðvarp á vegum Útvarps 101.

Episode metadata supplied by the publisher feed · Published Mar 6, 2020

Embed this episode

NOW PLAYING

#29 GDRN, Human Centipede skíðayfirstéttarinnar og eiginkonan sem æviráðin hóra

0:00 1:31:50

No transcript for this episode yet

We transcribe on demand. Request one and we'll notify you when it's ready — usually under 10 minutes.

No similar episodes found.

No similar podcasts found.

Frequently Asked Questions

How long is this episode of Skoðanabræður?

This episode is 1 hour and 31 minutes long.

When was this Skoðanabræður episode published?

This episode was published on March 6, 2020.

Can I download this Skoðanabræður episode?

Yes. Use the download control on the episode player to save the publisher-provided media file.
URL copied to clipboard!