Skip to content
30# Sara Odds episode artwork

EPISODE · May 19, 2021 · 3H 19M

30# Sara Odds

from Super Real Podcast · host Super Real

Sara Odds markþjálfi og ráðgjafi er viðmælandi í okkar í þessu podcasti. Sara hefur sjálf orðið fyrir áföllum en hún lenti hún í bílslysi fyrir fjórum árum þar sem sonur hennar slasaðist mikið. Þar sem aðeins ein mínúta hafi skilið á milli þess að hún hafi verið að skoða bikinimyndir í bílnum með bróður sínum og syni, þar sem hún var á leið til Tælands daginn eftir, en mínútu seinna hafi hún horft á barnið sitt stórslasað, í óvissu hvort það myndi komast af. Segir lífið sé hverfult og maður skuli aldrei taka því sem sjálfsögðu. Og hefur sjálf orðið fyrir bæði andlegu, líkamlegu og kynferðislegu ofbeldi. Í viðtalinu ræðir hún mikilvægi þess að vinna úr erfiðum lífsreynslum. Hún segir meðvirkni vera helstu plágu samfélagsins. Segir meðvirkni rót helstu vandamála sem samfélag okkar glímir við í dag og að ofbeldi sé oftast aðeins ein birtingarmynd þess. Og að samanburður sé algert eitur. Að við munum aldrei ná þroska sem samfélag fyrr en við áttum okkur á því að við erum öll í sama liðinu, karlar og konur. Það er engin keppni í gangi, það hjálpi því engum að benda á einhvern annan í liðinu því það er aðeins eitt lið. Við erum öll í sama liðinu. Vandamálin séu vissulega mörg og ef við ætlum okkur að leysa þau, þá gerist það aðeins í sameiningu, við þurfum að eiga þetta samtal. Við spjöllum um nýju Metoo bylgjuna og segir Sara að við þurfum að mæta öllum í kærleika og auðmýkt, bæði þolendum og gerendum. Samfélagið okkar sé gallað, að vissulega þurfi að gera betur í réttarkerfinu og í þjónustu við þolendur en líka gerendur. En vandamálið sé rótgróið samfélagsmein og verði ekki lagað fyrr en við kennum börnunum okkar að setja og virða heilbrigð mörk, sín og annarra. Að það gerist ekki með því að benda á einhverja einstaklinga í samfélaginu heldur þurfi það að gerast í skólakerfinu, á vinnustað, á íþróttaæfingum og heima hjá okkur. Fyrirmyndirnar þurfa að eiga þetta samtal, það þýðir við öll. Við þurfum að læra heilbrigð samskipti, læra að skilja tilfinningar okkar og langanir, og síðast en ekki síst að tjá þær. Heilbrigð samskipti eru forsendur heilbrigðs samfélags.

Episode metadata supplied by the publisher feed · Published May 19, 2021

Embed this episode

Ready to play

30# Sara Odds

0:00 3:19:14

No transcript for this episode yet

We transcribe on demand. Request one and we'll notify you when it's ready — usually under 10 minutes.

No similar episodes found.

Frequently Asked Questions

How long is this episode of Super Real Podcast?

This episode is 3 hours and 19 minutes long.

When was this Super Real Podcast episode published?

This episode was published on May 19, 2021.

Can I download this Super Real Podcast episode?

Yes. Use the download control on the episode player to save the publisher-provided media file.
URL copied to clipboard!