EPISODE · Mar 31, 2020 · 55 MIN
#34 Femínistaperrar og spilltar löggur
from Skoðanabræður · host Bergþór Másson
(Bræðralagsþáttur) Tvær fjarskyldar tegundir í íslenskri náttúru: femínistaperrar og spilltar löggur. Eina sem Skoðanabræður biðja um er að menn gangist við eðli sínu. Svo mörg voru þau orð, og þau eru fleiri. Bergur og Snorri ráða ráðum sínum landshluta, rétt eins og um væri að ræða samgöngubann, þegar slíkt er vitaskuld ekki í gildi, heldur aðeins samkomubann, þó að auglýsingabæklingurinn Fréttablaðið hafi reynt að æsa annað viðhorf upp í fólki á dögunum. Víði er hlýtt í hvívetna en honum er ekki treyst um of, enda er hann lögregla, og hlutverk lögreglu er að beita ofbeldi fyrir hönd ríkisvaldsins. Það væri hálfundarlegt að gjalda ekki varhug við því, þó að ýmis heilaþveginn gjaldi varhug við goldnum varhug, og bendi á hið augljósa, að lögreglumenn séu líka fólk, eins og það hafi einhvern tímann verið spurningin. Skoðanabræður lesa þá upp þá göfugu menn sem hafa lagt lykkju á leið sína til þess að styðja við frjálsa fjölmiðlun. Sumir æskja þess að nafni þeirra sé leynt. Við því er orðið. Aðrir gera ekki slíka kröfu. Þá er sett virðing á þeirra nöfn því sem nemur. Hliðstæða er dregin upp með styrkjendum og þeim Íslendingum í Bandaríkjunum sem tóku sig til á dögunum og sendu virðingu heim í formi öndunarvéla, gjaldmiðli sem hlýtur að þynnast mjög um leið og kórónaveiran hjaðnar, eins og vitur maður benti á á dögunum, sá sami og kallaði Nancy Pelosi “sick puppy.”
What this episode covers

NOW PLAYING
#34 Femínistaperrar og spilltar löggur
No transcript for this episode yet
Similar Episodes
No similar episodes found.
Similar Podcasts
No similar podcasts found.