EPISODE · Jun 14, 2020 · 55 MIN
#34- Unnar Már osteopati - heilbrigt stoðkerfi og mobility
from Heilsuvarpid · host Ragga Nagli
Unnar Már Unnarsson er osteopati sem á og rekur Osteo heilsumiðstöð sem er staðsett í Granda 101. Osteopatía nálgast líkamann útfrá heildrænni nálgun þar sem leitað er að rót vandans eða verksins í í öllu sem kemur til greina. Svefn, streita, líkamsbeiting, líkamsstaða, andlega hliðin og vinnuaðstaða. Það gefur skjólstæðingnum og meðferðaraðila stóran verkfærakassa í meðferðum. Hér tölum við um allskyns fyrirbyggjandi sveigjanleika æfingar til að koma í veg fyrir meiðsl. Hvernig við getum losað upp stífa liði og vöðva til að fá stærri hreyfiferil í vöðvann og þannig náð meiri árangri í æfingunum. Hvernig getum við virkjað betur tengsl hugar við vöðva sem oft eru “sofandi” eins og rass, iljar og brjóstvöðvi. Unnar er hafsjór af fróðleik og þó ég hafi reynt að mergsjúga allt úr honum þá er nóg eftir fyrir annað viðtal í framtíðinni. Instagram @osteoheilsumidstod Facebook: Osteo Heilsumiðstöð www.osteo.is Þátturinn er í boði Lífsalt @arcitcseaminerals NOW á Íslandi @nowiceland Njótið. Heilsuvarp Röggu Nagla fjallar um allt milli himins og jarðar sem viðkemur bæði líkamlegri og andlegri heilsu. Ég spjalla sjálf eða fæ til mín góða gesti sem eru sérfræðingar á sínu sviði og plokka úr þeim viskuna fyrir okkur sótsvartan almúgann til að nýta okkur í daglegu lífi. www.ragganagli.com inniheldur greinar um heilbrigt samband við mat, æfingar og líkamann [email protected] ef þig vantar sálfræðiaðstoð eða sálfræðilega mataræðisráðgjöf Facebook/RaggaNagli Stefið er eftir Arnar Boga Ómarsson, fylgið honum á Spotify undir listamannsnafninu ‘Boji’ Lógóið hannaði Andrea Jónsdóttir hjá 29 línur. www.29linur.com @29linur Afsláttarkóðar: Veganbúðin: ragganagli = 10% www.nowfoods.is: ragganagli20 Hverslun.is ragganagli20 = 20% www.goodgoodbrand.net: ragganagli20
Embed this episode
Ready to play
#34- Unnar Már osteopati - heilbrigt stoðkerfi og mobility
No transcript for this episode yet
Similar Episodes
No similar episodes found.
Similar Podcasts
No similar podcasts found.