EPISODE · May 28, 2021 · 1H 17M
39 - Baráttan um land Eiríks rauða
from Söguskoðun
Þegar Dansk-norska ríkið liðaðist í sundur eftir Napóleonsstyrjaldirnar árið 1814 varð Noregur hluti Svíþjóðar en Danir héldu yfirráðum yfir eyjunum á Atlantshafi: Íslandi, Grænlandi og Færeyjum. Rúmri öld síðar, á fyrri hluta 20. aldar, voru Norðmenn upprennandi veldi á norðurslóðum og Íslendingar stóðu í sjálfstæðisbaráttu og höfðu áætlanir um útrás á fiskimiðin. Þessar gömlu samveldisþjóðir deildu nú um það hver ætti að fara með fullveldi yfir nýlendunni Grænlandi. Íslendingar sögðust hafa fundið og byggt landið fyrst, Noregskonungur hafði slegið eign sinni á það fyrstur valdhafa, en Danir státuðu af því að hafa fyrir 300 árum í ár, fundið það aftur og gerðu tilkall til eyjunnar allrar. Fáir spurðu hvað Grænlendingum sjálfum fannst. Í þessum síðasta þætti af Söguskoðun fyrir sumarfrí ræða Ólafur og Andri um þessa sögu sem ekki mikið hefur verið fjallað um en er þó bæði stórmerkileg og stórfurðuleg.Hlaðvarpið Söguskoðun má nálgast hér:Soguskodun.com | [email protected] á Facebook og Youtube. Hægt er að styrkja hlaðvarpið hér.
What this episode covers
Þegar Dansk-norska ríkið liðaðist í sundur eftir Napóleonsstyrjaldirnar árið 1814 varð Noregur hluti Svíþjóðar en Danir héldu yfirráðum yfir eyjunum á Atlantshafi: Íslandi, Grænlandi og Færeyjum. Rúmri öld síðar, á fyrri hluta 20. aldar, voru Norðmenn upprennandi veldi á norðurslóðum og Íslendingar stóðu í sjálfstæðisbaráttu og höfðu áætlanir um útrás á fiskimiðin. Þessar gömlu samveldisþjóðir deildu nú um það hver ætti að fara með fullveldi yfir nýlendunni Grænlandi. Íslendingar sögðu...
NOW PLAYING
39 - Baráttan um land Eiríks rauða
No transcript for this episode yet
Similar Episodes
No similar episodes found.
Similar Podcasts
No similar podcasts found.