EPISODE · Feb 13, 2026 · 1H 15M
#525 Ari Edwald - Oddviti Miðflokksins í Reykjavík
from Ein Pæling · host Thorarinn Hjartarson
Þórarinn ræðir við Ara Edwald, fyrrum forstjóra Mjólkursamsölunnar og 365 miðla.Ari hefur farið mikinn í atvinnulífinu en auk þess að sinna starfi forstjóra var hann áður framkvæmdarstjóri Samtaka Atvinnulífsins. En nú hyggst Ari snúa sér að stjórnmálum en hann verður oddviti Miðflokksins í Reykjavík í næstu borgarstjórnarkosningum.Í upphafi þáttar er rætt um borgarlínuna en hann telur hugmyndafræðina á bakvið hana vera komna út í skurð og að taka þurfi í handbremsuna á því verkefni.Að því loknu er rætt um hið svokallaða Vítalíumál þar sem Vítalía Lazareva en hún ásakaði Ara og aðra um kynferðisafbrot í heita potti árið 2020. Málið og hvort það muni koma til með að hafa áhrif á velgengni Ara í kosningum er rætt í þættinum.Auk þessa er rætt um leikskólamál, skipulagsmál, Sjálfstæðisflokkinn og Miðflokkinn, fæðingarorlof, forræðishyggju, fánaborgina og mannréttindaráð, snjómokstur og húsnæði fyrir fíkla.- Þarf að taka í handbremsuna á borgarlínunni?- Mun Vítalíumálið hafa áhrif á velgengni Miðflokksins?- Hvað vill Ari gera við Mannréttindaráð ReykjavíkurborgarÞessum spurningum er svarað hér.
Embed this episode
NOW PLAYING
#525 Ari Edwald - Oddviti Miðflokksins í Reykjavík
No transcript for this episode yet
Similar Episodes
No similar episodes found.