EPISODE · Feb 2, 2018
Alþýðufræðslunefnd gerir grein fyrir störfum sínum
from R1918
Reykvíkingar dagsins í dag ljá Reykvíkingum frá árinu 1918 rödd sína og lesa valda texta frá því ári. Í þessum þætti les Arnar Freyr Kristinsson listfræði- og ritlistarnemi tilkynningu frá Stúdentafélagi Reykjavíkur. Félagið var stofnað árið 1871 af nokkrum stúdentum Prestaskólans og Læknaskólans og var afar virkt í þjóðmálaumræðu og beitti sér fyrir mörgum framfaramálum, svo sem lagningu síma, fánamálinu, samgöngumálum og fullveldi Íslands. R1918 er samstarfsverkefni Listahátíðar í Reykjavík, Landsbókasafnsins og RÚV. Textavinna: Landsbókasafn Íslands-Háskólabókasafn og Bjarni Jónsson.
Embed this episode
NOW PLAYING
Alþýðufræðslunefnd gerir grein fyrir störfum sínum
No transcript for this episode yet
Similar Episodes
No similar episodes found.
Similar Podcasts
No similar podcasts found.