Aníta Ósk - Þurfti að læra lífið upp á nýtt eftir maníu episode artwork

EPISODE · Apr 26, 2024 · 1H 20M

Aníta Ósk - Þurfti að læra lífið upp á nýtt eftir maníu

from Fókus · host DV

Aníta Ósk Georgsdóttir er móðir, dóttir, vinkona, eiginkona og svo margt annað. Hún er hárgreiðslumeistari að mennt og starfaði sem leiðbeinandi í grunnskóla áður en hún fór í veikindaleyfi. Í haust fer hún í starfsendurhæfingu hjá Virk og lítur hún björtum augum fram á veginn. Aníta er hægt og rólega að læra að lifa upp á nýtt eftir að hafa verið greind með geðhvörf. Hún fékk greininguna eftir að hafa farið í fyrsta sinn í maníu í október 2022. Hún var þá stödd á Ítalíu með samstarfsfélögum sínum og endaði örmagna á sjúkrahúsi. Í þættinum fer hún yfir sögu sína. Hún var greind með þunglyndi og kvíða fjórtán ára og lagðist fyrst inn á geðdeild þegar hún var ólétt af eldri dóttur sinni. Hún lýsir aðdragandanum að maníunni og hvernig hún var að trekkjast upp marga daga fyrir. Þó það hafi verið erfitt að ganga í gegnum þetta segist Aníta vera sterkari fyrir vikið og við greininguna hafi hún fundið meiri frið. Hún skilur sjálfa sig betur og líðanin er betri eftir að hafa loksins verið sett á rétt lyf. Aníta var tvístíga að koma í viðtalið en ákvað að kýla á það til að sýna fólki að það er ekki dauðadómur að greinast með geðhvörf og að fólk með geðsjúkdóma lítur alls konar út. Hún segir að ef saga hennar geti hjálpað bara einni manneskju þá sé hennar markmiði náð. 

NOW PLAYING

Aníta Ósk - Þurfti að læra lífið upp á nýtt eftir maníu

0:00 1:20:53

No transcript for this episode yet

We transcribe on demand. Request one and we'll notify you when it's ready — usually under 10 minutes.

No similar episodes found.

No similar podcasts found.

Frequently Asked Questions

How long is this episode of Fókus?

This episode is 1 hour and 20 minutes long.

When was this Fókus episode published?

This episode was published on April 26, 2024.

What is this episode about?

Aníta Ósk Georgsdóttir er móðir, dóttir, vinkona, eiginkona og svo margt annað. Hún er hárgreiðslumeistari að mennt og starfaði sem leiðbeinandi í grunnskóla áður en hún fór í veikindaleyfi. Í haust fer hún í starfsendurhæfingu hjá Virk og lítur hún...

Can I download this Fókus episode?

Yes, you can download this episode by clicking the download button on the episode player, or subscribe to the podcast in your preferred podcast app for automatic downloads.
URL copied to clipboard!