PODCAST · news
Fókus
by DV
Fókus er birtur í hljóði og mynd vikulega á dv.is. Þátturinn er í umsjón Guðrúnar Óskar Guðjónsdóttur.
Episodes
-
Saga Dröfn: „Það hrundi allt eftir að hann lamdi mig“
Saga Dröfn Haraldsdóttir er gestur vikunnar í Fókus, viðtalsþætti DV, þar sem hún stígur fram og segir sögu sína af kynferðis- og heimilisofbeldi – og upplifun sinni af því þegar íslenska réttarkerfið brást henni, ekki einu sinni heldur tvisvar. Með henni í þættinum er kærasti hennar, Ingólfur...
-
Linda Pé - Lykillinn á bak við varanlegan árangur
Hvers vegna ná svona margir aldrei varanlegum árangri, þrátt fyrir góð áform og áramótaheit? Í Fókus, viðtalsþætti DV, er masterslífsþjálfinn og fyrrverandi fegurðardrottningin Linda Pétursdóttir – betur þekkt sem Linda Pé – gestur vikunnar og fer yfir hvað raunverulega þarf að breytast til að...
-
Kristín Þóra á rauðu ljósi: „Það var engin leið til baka án þess fá faglega aðstoð“
Leikkonan Kristín Þóra Haraldsdóttir hefur lengi verið þekkt fyrir mikinn metnað, kraft og fjölbreytt hlutverk á sviði og í sjónvarpi. Undanfarin ár hefur hún hins vegar ekki aðeins tekist á við krefjandi verkefni í starfi, heldur einnig farið í gegnum persónulegt ferðalag. Fyrir um sex árum…
more -
Sigga Ózk: Frá Söngvakeppninni til Wicked
Söng- og leikkonan Sigga Ózk, Sigríður Ósk Hrafnkelsdóttir, er gestur vikunnar í Fókus, viðtalsþætti DV. Sigga skaust fram á sjónarsviðið árið 2023 þegar hún tók fyrst þátt í Söngvakeppni sjónvarpsins. Hún tók aftur þátt ári seinna og komst áfram í úrslit með laginu Um allan alheiminn. Hún hefur...
-
Áramótaspá Ellýjar Ármanns fyrir 2026
Spákonan og flugfreyjan Ellý Ármanns er gestur vikunnar í Fókus, viðtalsþætti DV, og jafnframt mætt þriðja árið í röð í sérstakan áramótaþátt þar sem hún spáir fyrir þekktum einstaklingum, íslensku samfélagi og öllu þar á milli. Það kom margt áhugavert fram í þættinum, en samkvæmt Ellý verða…
more -
Margrét Sól: Sagði upp verkfræðistarfinu hjá Össuri til að elta drauminn
Margrét Sól Ragnarsdóttir dúxaði þegar hún útskrifaðist með mastersgráðu í heilbrigðisverkfræði við Háskólann í Reykjavík og tryggði sér draumastarf hjá alþjóðlega tæknifyrirtækinu Össuri. Hún virtist vera á „réttu leiðinni“ en innra með henni var eitthvað sem togaði hana í aðra átt. Í haust tók...
-
Anna Claessen: Frá kulnun í kraft og ástin sem bankaði óvænt upp á
Markþjálfinn, einkaþjálfarinn og skemmtikrafturinn Anna Claessen er gestur vikunnar í Fókus, viðtalsþætti DV. Þar fer hún opinskátt yfir kulnunina sem hún lenti í árið 2018, hvernig líkaminn reyndi að stoppa hana en hún hlustaði ekki – og hvers vegna margir hunsa þessi skilaboð. Hún talar einnig…
more -
Kristinn Aron: Veðmálafíkn tók yfir líf mitt
Þjálfarinn og fyrrverandi knattspyrnumaðurinn Kristinn Aron Hjartarson, sem verður 39 ára í desember, er gestur vikunnar í Fókus, viðtalsþætti DV. Þar ræðir hann opinskátt um veðmálafíkn sem tók yfir líf hans um árabil, meðferðina sem varð vendipunktur árið 2020 og hvernig hann hefur síðan lifað...
-
Hildur: „Í febrúar klessti ég á vegg og fór í kulnun í þriðja skiptið á ferlinum“
Tónlistarkonan Hildur Kristín Stefánsdóttir sá fyrir sér að árið 2025 yrði mikið tónlistarár, hún var að gefa út fyrstu sólóplötuna sína í janúar og ætlaði að vera óstöðvandi. En síðan lenti hún harkalega á vegg en ætlaði ekki að trúa því að hún væri að lenda í kulnum í þriðja skiptið. Hildur er...
-
Linda Sæberg - Fann sig í spiritúalisma eftir krabbameinsbaráttuna
Linda Sæberg hefur undanfarin ár gengið í gegnum dimma dali en með aðdáunarverðum hætti tekist á við öll vandamál með bjartsýni og von að leiðarljósi. Hún er gestur vikunnar í Fókus, viðtalsþætti DV, þar sem hún opnar sig um baráttuna við brjóstakrabbamein, áfallasögu sem mótaði líf hennar í tvo...
-
Sylvía Rún: Lífið með OCD
Körfuboltakonan Sylvía Rún Hálfdanardóttir greindist með áráttu- og þráhyggjuröskun (OCD) þegar hún var sautján ára gömul. Greiningin opnaði augu hennar fyrir ýmsu úr æsku hennar sem var vísbending um hvað var að hrjá hana. Um tíma var hún orðin fárveik en blessunarlega leitaði hún sér hjálpar og...
-
Gunnar Dan: Við erum ekki ein
Gunnar Dan, rithöfundur og verslunarstjóri Handverkshússins, trúir því staðfastlega að mannkynið sé ekki eitt í alheiminum. Gunnar var að gefa út bókina UFO101 og er gestur vikunnar í Fókus, viðtalsþætti DV. Hann ræðir um reglulegar heimsóknir geimvera til jarðar – líka til Íslands. Hann segir…
more -
Rannsóknarlögreglumaðurinn Guðjón: Fólk hefur tapað tugum milljóna á þessum svindlum
Rannsóknarlögreglumaðurinn Guðjón Rúnar Sveinsson er gestur vikunnar í Fókus, viðtalsþætti DV. Hann ræddi um ýmsar tegundir netsvindls í þættinum, hvað skal varast og hvað sé gott að vita. Hann hvetur fólk til að vera gagnrýnið en svindlin eru sífellt að verða þróaðri og fágaðri. Það eru heilu...
-
Paradísa: Lífið tók stakkaskiptum þegar hún hryggbrotnað
Tónlistarkonan Paradísa er gestur vikunnar í Fókus, viðtalsþætti DV. Hún heitir fullu nafni Dísa Dungal og er fyrrverandi fegurðardrottning og íþróttafræðingur. Líf Paradísu snerist á hvolf þegar hún hryggbrotnaði árið 2022. Það hafði gríðarleg áhrif á hana, ekki bara líkamleg heldur einnig…
more -
Hanna Birna: Var læknisfræðileg ráðgáta í mörg ár áður en hún var greind með POTS
Hanna Birna Valdimarsdóttir, 33 ára, var læknisfræðileg ráðgáta í mörg ár áður en hún var greind með POTS-heilkenni. Hún er gestur vikunnar í Fókus, viðtalsþætti DV. Hanna Birna fékk fyrstu einkennin fyrir rúmlega áratug síðan þegar hún gekk með dóttur sína. Einkennin gerðu aftur vart við sig á...
-
Viktoría Rós - Þurfti að horfast í augu við áföllin til að byggja sig upp á ný
Markaðsstjórinn og áhrifavaldurinn Viktoría Rós Jóhannsdóttir opnar sig í viðtalsþættinum Fókus og segir frá átakanlegri lífsreynslu sem mótaði hana. Þrátt fyrir venjulega æsku varð hún fyrir kynferðisofbeldi sem barn af hendi barnapíu, áfalli sem hún vann ekki úr fyrr en mörgum árum síðar. Í...
-
Íþróttakonan Hekla Sif: Baráttan og bataferlið við átröskun
Hekla, 25 ára, var um árabil afreksíþróttakona í frjálsum íþróttum og bjó um tíma í Texas þar sem hún lagði nám við West Texas A&M háskólann og keppti fyrir hönd skólaliðsins. Þegar hún var átján ára gömul vildi hún ná lengra í greininni og ákvað að kaupa matarplan frá fitness þjálfara. Hún…
more -
Katla Hreiðars: Reksturinn, barnalánið og ástin
Athafnakonan Katla Hreiðarsdóttir, betur þekkt sem Katla í Systur og makar, er gestur vikunnar í Fókus, viðtalsþætti DV. Fyrir rúmlega ári síðan var Katla alvarlega að íhuga að hætta eftir sautján ára rekstur. Það voru erfiðir tímar, bróðir hennar var að berjast við illvígt krabbamein og hún var...
-
Guðrún Sørtveit: „Það hefur alltaf verið rosalega sterkt í mér að verða mamma“
Guðrún Helga Sørtveit, áhrifavaldur og eigandi fyrirtækisins Fyrsta árið, er gestur vikunnar í Fókus, viðtalsþætti DV. Í þættinum opnar Guðrún sig um móðurhlutverkið, þegar hún fékk utanlegsfóstur sem varð til þess að fjarlægja þurfti annan eggjastokkinn og gleðina og kvíðann sem hún upplifði…
more -
Kara lifði af martröð á götunni: „Ég hugsaði: Hann er að fara að drepa mig“
Við vörum við efnisinnihaldi þáttarins, fjallað er um ofbeldi, kynferðisofbeldi, fíkniefnaneyslu og sjálfsvíg. Kokkurinn og hnefaleikastjarnan Kara Guðmundsdóttir er gestur vikunnar í Fókus, viðtalsþætti DV. Saga Köru er lituð af áföllum og erfiðleikum, en þetta er líka sigursaga og vonarsaga…
more -
Steffý Þórólfs: Hafði áhyggjur að áreitið myndi hafa áhrif á ófæddan soninn
Áhrifavaldurinn Steffý Þórólfsdóttir upplifði erfiða tíma á sinni fyrstu meðgöngu. Hún var illa stödd andlega, meðal annars vegna áreitis og eineltis, og hafði miklar áhyggjur af því hvort að það myndi hafa áhrif á frumburðinn í móðurkviðnum. Hún hefur fjallað um þessa reynslu sína á...
-
Hafdís Björg: „Ég týndi mér alveg“
Einkaþjálfarinn, athafnakonan og áhrifavaldurinn Hafdís Björg Kristjánsdóttir er gestur vikunnar í Fókus, viðtalsþætti DV. Fókus snýr aftur eftir sumarfrí og í fyrsta þætti ræðir Hafdís einlæg um að finna sig eftir erfiðleika, vinkonumissi og hvernig er að verða fyrir netníði þegar hún var á…
more -
Þórdís Björk: Móðurhlutverkið, ferillinn og ADHD
Söng- og leikkonan Þórdís Björk Þorfinnsdóttir ræðir um mörgu hliðar móðurhlutverksins, tónlistar- og leiklistaferilinn, harkið og gamanið, ástina og lífið með ADHD í Fókus, viðtalsþætti DV.
-
Helena Reynis: „Mér datt ekki í hug að ég gæti lent í ofbeldissambandi.“
Myndlistarkonan Helena Reynisdóttir flutti heim til Íslands frá Berlín eftir um fimm ára dvöl. Flutningurinn markaði ákveðin tímamót í lífi hennar. Þá var hún nýkomin úr fimm ára sambandi þar sem hún var beitt andlegu ofbeldi. Hún ákvað nýlega að stíga fram í myndbandi á TikTok og viðbrögðin létu...
-
Hermann um skilnaðinn og svikin: „Hann laug að ég væri dáinn“
Hárgreiðslumeistarinn Hermann Óli Bachmann Ólafsson er gestur vikunnar í Fókus, viðtalsþætti DV. Hann ræðir um hvernig það var að alast upp sem samkynhneigður strákur þegar hommi var álitið niðrandi og ljótt orð. Hann ræðir einnig um hárgreiðsluferilinn og fyrirtækjareksturinn, sem hefur verið…
more -
Svavar Elliði: Fór í hárígræðslu í Tyrklandi
Tónlistarmaðurinn og kennarinn Svavar Elliði Svavarson kom nýlega heim frá Istanbúl í Tyrklandi, þar sem hann gekkst hann undir hárígræðslu á höfði. Hann segir frá öllu ferlinu, aðgerðinu og batanum í þættinum. Hann ræðir einnig stuttlega um tónlistarferilinn og fyrsta stefnumótið með unnustu...
-
Fanney: „Ég fann að ég þurfti að staldra aðeins við og hugsa: Hvað vil ég? Hver er ég?“
Fanney Skúladóttir, markaðsstjóri, er gestur vikunnar í Fókus.Fanney varð móðir ung. Hún var ólétt af sínu fyrsta barni sautján ára gömul, en sonur hennar er einmitt sautján ára í dag. Áratugur leið þar til hún eignaðist annað barn, en hún eignaðist tvær stúlkur með árs millibili. Fanney hefur…
more -
Dimmey Rós: Verða fyrir fordómum sem par
Dimmey Rós Lúðvíksdóttir valdi hinseginleikann sem málstað til að vekja athygli á þegar hún keppti í Ungfrú Ísland í byrjun apríl. Hún þekkir það af eigin raun að verða fyrir fordómum en hún og kærasta hennar hafa þurft að þola mótlæti og áreiti vegna sambands þeirra. Dimmey er gestur vikunnar í...
-
Garðar: „Þess vegna er þetta svona hættulegt, maður fer strax í sjálfsmorðshugleiðingar“
Garðar Eyfjörð hefur glímt við margskonar fíkn frá unglingsaldri og verið umkringdur alkóhólistum og fíklum allt sitt líf. En hann segir að það sé ein fíkn sem er verst, spilafíknin. Garðar birti myndband á TikTok fyrir stuttu þar sem hann ræddi um spilafíkn og vandanum sem blasir við okkur í dag...
-
Snædís Xyza: „Ég var alltaf hrædd að koma heim“
Snædís Xyza Mae Jónsdóttir er margverðlaunaður matreiðslumeistari og hefur verið hluti af íslenska kokkalandsliðinu frá árinu 2016. Hún var fyrirliði liðsins á heimsmeistaramótinu árið 2018 og á Ólympíuleikunum árið 2020 og kom þá Íslandi á verðlaunapall. Í dag starfar hún sem yfirmatreiðslumaður…
more -
Katrín Björk: Myndi frekar handþvo en að kaupa þvottavél á raðgreiðslu
Katrín Björk Birgisdóttir, naglafræðingur, YouTube-ari, og sérlegur áhugamaður um sparnað, er gestur vikunnar í Fókus. Hún deilir góðum og einföldum sparnaðarráðum sem allir geta nýtt sér.
-
Fegurðardrottningin Sóldís Vala - Lærði að standa með sjálfri sér
Fegurðardrottningin Sóldís Vala Ívarsdóttir var valin Ungfrú Ísland 2024 í ágúst í fyrra. Hún fór til Mexíkó og keppti fyrir hönd Íslands í Miss Universe og segir ferlið hafa kennt henni margt, eins og að standa með sjálfri sér. Sóldís var yngsti keppandinn úti í Mexíkó og segir að hún hafi alveg...
-
Árni Björn: „Við verðum alveg vör við það að fólk er byrjað að slúðra í kringum okkur“
Fasteignasalinn og vaxtaræktarkappinn Árni Björn Kristjánsson er gestur vikunnar í Fókus. Árni lifði og hrærðist í CrossFit-heiminum í rúmlega tólf ár. Hann æfði, keppti og þjálfaði en lífið breyttist fyrir nokkrum árum. Hann fór að huga meira að andlegri heilsu, fór til sálfræðings og fór að…
more -
Kristjana Björk – Stekkur beint í djúpu laugina og stofnar nýtt fyrirtæki
Frumkvöðullinn Kristjana Björk Barðdal er gestur vikunnar í Fókus, spjallþætti DV.Hún er að stofna nýtt fyrirtæki með Guðmundi Birki Pálmasyni, betur þekktur sem Gummi Kíró, en hún hefur verið að starfa sem umboðsmaður hans síðan í sumar. Nú opna þau áhrifavaldaumboðsskrifstofuna Atelier Agency....
-
BIRGO: Hún fékk að sjá mig og kvaddi svo þennan heim
Söngkonan Birgitta Ólafsdóttir, eða BIRGO eins og hún er betur þekkt, söng sig inn í hjörtu landsmanna og Eurovision aðdáenda um alla Evrópu á fyrra undanúrslitakvöldi Söngvakeppni sjónvarpsins. Það er óhætt að segja að Eurovision samfélagið hafi nötrað eftir að hún komst ekki áfram í úrslit í...
-
Hera Rún - „Ég hugsaði: Nú er minn tími kominn“
Hera Rún Ragnarsdóttir er leikkona, athafnakona, hlaðvarpsstjórnandi, móðir og svo margt meira. Í þættinum opnar hún sig um erfiða æsku, eineltið sem mótaði hana og hvernig henni tókst að vinna sig í gegnum það. Hún leggur áherslu á mikilvægi þess að tala um einelti en hún glímdi við...
-
Þórhildur – Tantra, sambönd og kynlíf
Kynlífs- og sambandsmarkþjálfinn Þórhildur Magnúsdóttir er gestur vikunnar í Fókus, spjallþætti DV. Þórhildur er fyrsti gestur Fókuss til að koma aftur en mikið hefur gerst síðastliðna átján mánuði. Hún hefur sankað að sér meiri þekkingu og er að klára markþjálfaranám. Hún byrjaði að iðka tantra...
-
Vala um systurmissinn: „Það var ótrúlegt að alast upp með henni og mín mesta gæfa“
Viðskipta- og markaðssérfræðingurinn Valgerður Anna Einarsdóttir, kölluð Vala, er gestur vikunnar í Fókus.Vala hannaði Lífið er núna húfurnar í ár fyrir Kraft, sem er stuðningsfélag fyrir ungt fólk sem hefur greinst með krabbamein og aðstandendur þeirra. Hönnun húfanna er innblásin af verkum…
more -
Stebbi Jak – Fann frelsi eftir að hann fór á fund með árásarmanni sínum
Tónlistarmaðurinn Stefán Jakobsson er gestur vikunnar í Fókus. Það er margt spennandi á döfinni hjá Stefáni, sem margir þekkja sem Stebba Jak, en hann mun stíga á svið á fyrra undanúrslitakvöldi Söngvakeppni sjónvarpsins þann 8. febrúar næstkomandi. Í þættinum fer Stefán um víðan völl. Hann ræðir...
-
Kristín Tómas: „Konur taka frekar ákvörðun um skilnað heldur en karlar“
Kristín Tómasdóttir er fjölskyldumeðferðarfræðingur sem sérhæfir sig í parameðferð og metsöluhöfundur. Hún ræðir um allt sem tengist samböndum í þættinum. Eins og algeng vandamál í parasamböndum, hvernig er hægt að bæta samskipti og svarar spurningunni hvort það sé hægt að halda áfram í sambandi...
-
Davíð Goði: Barðist til að lifa fyrir ófæddan son sinn
Kvikmyndagerðamaðurinn, framleiðandinn og ljósmyndarinn Davíð Goði Þorvarðarson er gestur vikunnar í Fókus, spjallþætti DV. Davíð Goði er 27 ára gamall og fyrir ári síðan var veröld hans snúið á hvolf. Hann greindist með óútskýrðan sjúkdóm en fyrir það hafði hann alla tíð verið heilsuhraustur.…
more -
Helgi Jean – Rakst harkalega á vegg miðlífskrísunnar
Helgi Jean Claessen, hlaðvarpskóngur, lífsstílsþjálfi og rekstrarmaður, rakst harkalega á vegg miðlífskrísunnar árið 2023. Síðasta ár fór í að vinna sig í gegnum krísuna og kom hann út úr henni sterkari en nokkurn tíma áður. Hann aðstoðar nú aðra sem eru að ganga í gegnum erfiðleika, en hann…
more -
HeilsuErla – Góð ráð til að standa við markmiðin á nýju ári
Heilsumarkþjálfinn Erla Guðmundsdóttir er gestur í fyrsta þætti ársins. Við ræddum um áramótaheit en flestir gefast upp á fyrstu vikum ársins. Erla gefur hlustendum góð ráð til að standa við markmiðin. Hún ræðir einnig um mismunandi þætti heilsu, „heilsusérfræðinga“ á netinu og ýmislegt annað…
more -
Áramótaspá Ellý Ármanns fyrir 2025
Spákonan Ellý Ármanns er gestur vikunnar í þessum skemmtilega þætti. Við fengum hana til að spá fyrir mörgum landsþekktum einstaklingum eins og fyrrverandi forsetahjónunum, Valkyrjunum, Katrínu Jakobsdóttur, Þórði Snæ Júlíussyni, World Class-fjölskyldunni, Línu Birgittu og Gumma Kíró, Sveindísi...
-
Eygló Mjöll – Tíu hamingjusöm ár og fjögur börn eftir fyrsta stefnumótið á Litla-Hrauni
TW: Umræða um sjálfsskaða Eygló Mjöll Óladóttir er gestur vikunnar í Fókus. Hún er fjögurra barna móðir, það elsta er átta ára og það yngsta er fimm mánaða. Hver meðganga og fæðing var öðruvísi. Hún segir einnig frá upphafi sambands hennar og unnusta hennar, en þegar þau kynntust sat hann inni á...
-
Anton Bjarki – Greindist með mjög sjaldgæft krabbamein í miðju sköpunarferli
Fatahönnuðurinn Anton Bjarki Olsen er gestur vikunnar í Fókus. Hann gaf út forvorlínu fyrir 2025 út í byrjun desember. Línan er mjög persónuleg fyrir hann en hann greindist með mjög sjaldgæfa tegund krabbameins í miðju sköpunarferli. Í sumar kom í ljós að æxli, sem læknar höfðu áður sagt að væri...
-
Svava Kristín: „Ég gæti ekki gefið barninu mínu betri og dýrmætari gjöf“
Svava Kristín Grétarsdóttir, íþróttafréttakona á Stöð 2, er búsett í Reykjavík en getur ekki beðið að flytja aftur á heimaslóðir. Hún er fædd og uppalin í Vestmannaeyjum og ætlar að gefa dóttur sinni þá dýrmætu gjöf að alast upp á eyjunni fögru. Hún eignaðist dóttur sína með aðstoð nútímatækni í...
-
Götustrákurinn Aron: „Það er svo vont að vera þessi gaur sem er að burðast með allan heiminn“
Götustrákurinn Aron Mímir Gylfason, eða Ronni Turbo Gonni eins og hann er þekktur á samfélagsmiðlum, hefur gengið í gegnum dimma dali til að komast á þann stað sem hann er í dag. Hann ræðir í þættinum um æskuna, upphaf neyslunnar og vítahringinn sem hann fann sig í. Þegar hann var tvítugur átti...
-
Birna á mann í fangelsi – „Við giftumst í blíðu og stríðu“
Birna Ólafsdóttir hefur um skeið barist fyrir réttindum aðstandenda fanga, sér í lagi barna fanga, en málefnið stendur henni nærri. „Þetta snertir mig persónulega því maðurinn minn situr inni, faðir barnanna minna,“ segir hún.Eiginmaður Birnu, Ólafur Ágúst Hraundal, var dæmdur til tíu ára...
-
Valentína: Fortíðin fær ekki að skilgreina mig
Þjálfarinn og fitness-keppandinn Valentína Hrefnudóttir er gestur vikunnar í Fókus. Í þættinum ræðir hún um fortíðina, áföll og sjálfsvinnuna sem hefur gert henni að þeirri konu sem hún er í dag. Mikið hefur gengið á í lífi Valentínu, hún hefur glímt við átröskun og fíknivanda en náði bata og er…
more
We're indexing this podcast's transcripts for the first time — this can take a minute or two. We'll show results as soon as they're ready.
No matches for "" in this podcast's transcripts.
No topics indexed yet for this podcast.
Loading reviews...
ABOUT THIS SHOW
Fókus er birtur í hljóði og mynd vikulega á dv.is. Þátturinn er í umsjón Guðrúnar Óskar Guðjónsdóttur.
HOSTED BY
DV
CATEGORIES
Loading similar podcasts...