Beðið eftir Grand Theft Auto VI
from Lestin
Grand Theft Auto er einhver vinsælasta, söluhæsta, áhrifamesta og alræmdasta tölvuleikjasería heims. 19. Nóvember kemur GTA6 út, en það eru 13 ár frá siðasta leik og eftirvæntingin því gríðarleg. Sögusvið leiksins er sólríka syndabælið Vice City og verður borgin sem er fyrirmyndin - Miami í Florida - undirlögð auglýsingum og kynningargjörningum næstu vikur. Stikla fyrir leikinn kom út fyrr í dag og hafa milljónir skoðað hann nú þegar. Það eru rétt tæplega 30 ár frá því að fyrsti leikurinn í seríunni kom út á vegum lítils leikjaframleiðanda í Dundee í Skotlandi. Eins og nafn leiksins gefur til kynna, “stórfelldur bílaþjófnaður” fengu spilarar færi á að leika smákrimma og framkvæma hin ýmsu glæpaverkefni, en einnig flakka frjálsir umi í umfangsmiklum og opnum leikjaheimi. Við ræðum við tölvuleikjafræðing um seríuna og spennuna eftir GTA6, einn af höfundum fyrsta GTA leiksins, og fáum sögur og minningar frá fjölbreyttum hópi fólks.
Embed this episode
No transcript yet.