Brunnurinn
from Berglind Ósk Hosted by Berglind Ósk
Brunnurinn Ég stefni að gamla brunninum þótt ég viti að hann sé uppþornaður þá samt kannski kannski núna kannski er hann núna búinn að fyllast af vatni. Með hverju skrefi sem ég tek nær minnkar tærandi þorsti minn meðan minningin skugginn af minningunni skugginn af minningunni um dagdrauminn um vatnsopann sem ég einu sinni næstum fékk mér úr þessum brunni - eða var það öðrum þessi skuggi af minningu fyllir mig af sælu ég fæ vatn í kverkarnar varirnar hitna og titra mig svimar aftan í hnakkanum fæ fiðring frá tám upp í koll með viðkomu á miðri leið Sælan Spennan nær hámarki þegar ég stend með lokuð augun við brunnbarminn Ég opna hægt augun og horfi niður í myrkrið (allt er þurrt) ég kasta steini niður í von um að heyra skvamphljóð (allt er þurrt) ég læt fötuna síga niður en dreg hana tóma upp aftur (allt er þurrt.) Ég geng tilbaka enn þyrstari en áður með enn meiri löngun enn meiri vöntun. Daginn eftir ætla ég að stefna í aðra átt en svo stefni ég aftur að gamla brunninum þótt ég viti að hann sé uppþornaður…
Embed this episode
No transcript yet.