Don Henley og aðrir eldri menn... episode artwork

EPISODE · Nov 15, 2015 · 1H 55M

Don Henley og aðrir eldri menn...

from Rokkland

Rokkland vikunnar er helgað nokkrum náungum sem eiga það sameiginlegt að hafa slitið barnsskónum fyrir margt löngu. Einn í Winnipeg í Kanada, Einn í Cass County í Texas, einn í Vestmannaeyjum, einn í Sheffield og einn á Norður-Englandi nálægt Newcastle. Fyrsti gesturinn er Richard Hawley frá Sheffield, 48 ára gamall gítarleikari, söngvari, lagasmiður og upptökustjóri svo eitthvað sé nefnt. Hann á marga aðdáendur á Íslandi þó það fari kannski ekki svo mikið fyrir þeim. Hann sendi nýlega frá sér plötuna Hollow Meadows og við heyrum lög af henni auk þess sem við rifjum upp símaviðtal sem ég átti við hann þegar síðasta plata kom út fyrir þremur árum. Svo er það Don Henley ? trommari og söngvari úr Eagles. Sá sem syngur Hotel California. Hann er orðinn 68 ára gamall og var að senda frá sér fyrstu plötuna í 15 ár. Hún heitir Cass County eftir gömlu sveitinni sem hann ólst upp í - í Texas. David Fricke hjá Rolling Stone gaf plötunni 4 stjörnur af 5. Við heyrum af plötunni og lög af henni í þættinum. Brian Johnsson söngvari AC/DC kemur líka við sögu, en hann er jafnaldri Don Henley. Eiður Arnarsson fyrrum útgáfustjóri hjá Skífunni og Senu skrifaði áhugaverðan pistil um tónlist á netinu ? tekjumöguleika tónlistarmanna í dag miðað við áður ofl. Eiður er tónlistarmaður (bassaleikari Todmobile), tónleikahaldari, framkvæmdastjóri Félags hljómplötuframleiðenda og starfar einnig við stafræna dreifingu tónlistar. Í greininni segir hann ma: "Tónlistin er líklega sú listgrein sem við getum fæst lifað án. Hún er alltumlykjandi. Hún er hljóðrás lífs okkar flestra. Framtíð íslenskrar tónlistar er best tryggð með því að neyta hennar og njóta löglega, á þann hátt sem tryggir réttlátt endurgjald til handa þeim sem skapa hana". Eiður heimsækir Rokkland. Svo heyrum við undir lok þáttarins í afmælisbarni vikunnar ? STÓR-afmælis-kalli vikunnar ? Neil Young sem, varð sjötugur í vikunni.

NOW PLAYING

Don Henley og aðrir eldri menn...

0:00 1:55:00

No transcript for this episode yet

We transcribe on demand. Request one and we'll notify you when it's ready — usually under 10 minutes.

No similar episodes found.

No similar podcasts found.

Frequently Asked Questions

How long is this episode of Rokkland?

This episode is 1 hour and 55 minutes long.

When was this Rokkland episode published?

This episode was published on November 15, 2015.

What is this episode about?

Rokkland vikunnar er helgað nokkrum náungum sem eiga það sameiginlegt að hafa slitið barnsskónum fyrir margt löngu. Einn í Winnipeg í Kanada, Einn í Cass County í Texas, einn í Vestmannaeyjum, einn í Sheffield og einn á Norður-Englandi nálægt...

Can I download this Rokkland episode?

Yes, you can download this episode by clicking the download button on the episode player, or subscribe to the podcast in your preferred podcast app for automatic downloads.
URL copied to clipboard!