E.L.O.R.G.Í.A. episode artwork

EPISODE · Nov 22, 2015 · 1H 55M

E.L.O.R.G.Í.A.

from Rokkland

Jeff Lynne úr E.L.O er maður vikunnar í Rokklandi og þátturinn er næstum allur helgaður honum. Ein stærsta tónlistarfrétt vikunnar og kannski ársins er að það var að koma út ný plata með E.L.O. ? Electric Light Orchestra. Platan kemur út undir nafninu Jeff Lynne´s E.L.O. en Jeff Lynne hefur frá upphafi, frá árinu 1971 verið forsprkakki E.L.O. Hann er E.L.O. og E.L.O. er hann. Hann semur öll lögin, hann útsetur, spilar allt, syngur allt og allt sem E.L.O. stendur fyrir hefur orðið til í höfðinu á honum. E.L.O. er ein af stærstu og þekktustu og vinsælustu hljómsveitum popp og rokksögunnar, hefur selt meira en 50 milljónir platna, topp-40 lögin í Bretlandi eru 25 og nýja platan er 14. stúdíó-platan. Síðasta E.L.O. plata kom út 2001, heitir Zoom og vakti enga sérstaka athygli, náði 94. sæti Bandaríska vinsældalistans og það þrátt fyrir að þar voru tveir Bítlar gestir, George og Ringo. Síðasta plata E.L.O. þar á undan kom út 1986, 15 árum fyrr, og nú eru 14 ár frá 2001, tvær plötur á 30 árum og það er nú ekkert sérlega mikið. Jeff Lynne hefur aldrri verið mikið fyrir það að spila á tónleikum og það eru ýmsar ástæður fyrir því sem farið er í í þættinum. En nú er þetta allt að breytast, það er mikill spenningur fyrir plötunni sem heitir Alone in the Universe. Hún stökk beinustu leið í 4. sæti breska vinsældalistans og í 1. sæti vinyl-sölu listans. Og svo ætlar E.L.O að fara að túra líka en það hefur sveitin ekki gert líklega síðan 1986. Jeff segir sjálfur frá samstarfinu við Bítlana í þættinum, talar um vini sína Bob Dylan, Royu Orbison. Tom Petty, George Harrison, Roy Wood ofl. Talar um vinnuna og E.L.O. og allt mögulegt auk þess sem ég skauta yfir ferilinn - líka það sem Jeff hefur gert með öðrum tónlistarmönnum en hann er einn eftirsóttasti upptökustjóri heims og hefur gert plötur með mörgum af þeim bestu. Bítlarnir eru líklega toppurinn en það var einmitt Jeff sem var fenginn til að gera Bítlalögin Free as a bird og Real love uppúr gömlum kassettu upptökum sem Lennon gerði, þegar Beatles Anthology kom út 1995. David Bowie sendi svo frá sér nýtt lag í vikunni og það setti músíkpressuna næstum á hliðina. Lagið er fyrsta smáskífa væntanlegrar plötu sem kemur út á afmælisdaginn hans næsta (8. janúar) en þá verður Bowie 69 ára gamall. Og hann er ennþá með ? og miklu meira en það. Hann fékk hjartaáfall í miðri tónleikaferð árið 2004 og hefur síðan þá haft frekar hægt um sig. Hefur þó komið fram sem gestur á nokkrum plötum og stigið á svið einstaka sinnum sem gestur. Hann sendi síðast frá sér plötu fyrir tveimur árum

NOW PLAYING

E.L.O.R.G.Í.A.

0:00 1:55:00

No transcript for this episode yet

We transcribe on demand. Request one and we'll notify you when it's ready — usually under 10 minutes.

No similar episodes found.

No similar podcasts found.

Frequently Asked Questions

How long is this episode of Rokkland?

This episode is 1 hour and 55 minutes long.

When was this Rokkland episode published?

This episode was published on November 22, 2015.

What is this episode about?

Jeff Lynne úr E.L.O er maður vikunnar í Rokklandi og þátturinn er næstum allur helgaður honum. Ein stærsta tónlistarfrétt vikunnar og kannski ársins er að það var að koma út ný plata með E.L.O. ? Electric Light Orchestra. Platan kemur út undir...

Can I download this Rokkland episode?

Yes, you can download this episode by clicking the download button on the episode player, or subscribe to the podcast in your preferred podcast app for automatic downloads.
URL copied to clipboard!