EPISODE · Apr 14, 2025 · 1H 48M
Elín Ebba Ásmundsdóttir iðjuþjálfi og framkvæmdastjóri Hlutverkaseturs um geðheilbrigði, geðrækt, geðlyf, lyfseðla, hreyfiseðla og menningarseðla.
from Heilsuhlaðvarp Lukku & Jóhönnu Vilhjálms · host heilsuhladvarp
„Geðheilbrigði, valdefling og nýjar leiðir – viðtal við Elínu Ebbu Ásmundsdóttur“ Elín Ebba Ásmundsdóttir, er iðjuþjálfa með yfir 40 ára reynslu í geðheilbrigðisþjónustu. Hún er framkvæmdastjóri Hlutverkaseturs og hefur barist ötullega fyrir réttindum og valdeflingu notenda geðheilbrigðisþjónustunnar – þar sem rödd þeirra og þátttaka í eigin bata stendur í forgrunni. Elín Ebba, fyrrverandi yfiriðjuþjálfi á geðdeild Landspítalans og núverandi varaformaður Geðhjálpar, talar opinskátt um þróunina í geðheilbrigðismálum – hvað hefur breyst og hvert við stefnum. Hún gagnrýnir ofnotkun geðlyfja, sérstaklega SSRI-lyfja, og leggur áherslu á að fólk fái raunverulega valkosti í meðferð: hreyfiseðla, menningarseðla, stuðning við jafningjaþjónustu og þátttöku fjölskyldu í bataferlinu, líkt og gert er í Open Dialogue nálguninni. Elín Ebba deilir ekki aðeins faglegri sýn heldur einnig djúpri sannfæringu um að hlustun, nærvera og virðing geti umbreytt geðheilbrigðisþjónustunni okkar. Heilsuherinn styður útgáfu Heilsuhlaðvarps Lukku og Jóhönnu Vilhjálms og eftirfarandi fyrirtæki eru meðlimir heilsuhersins - til heilsueflingar! Bíóbú framleiðir lífrænar mjólkurvörur sem innihalda meira af góðum fitusýrum en hefðbundnar mjólkurvörur Brauð&Co - nota lífrænt korn í ekta súrdeigsbrauð - ekkert ger og engin aukaefni - allt búið til á staðnum Greenfit - býður upp á heilsumælingar og meðferðir - styður fólk til betri heilsu Happy Hydrate - Þinn besti æfingafélagi - einstök blanda af steinefnum og söltum sem hraðar endurheimt og bætir vökvajafnvægi. Hagkaup - býður upp á úrval hreinna ferskra matvæla, lífrænna matvara og bætiefna Húsaskjól - umhverfisvæn fasteignasala sem býður upp á meiri upplýsingar í rauntíma en gengur og gerist Hreyfing - í forystu heilsueflingar í áratugi og valin besta stöðin sl. fjögur ár samkvæmt Maskínu Kaja Organic - býður upp á lífrænar vörur, íslensk framleiðsla - kajaorganic.com
Embed this episode
Ready to play
Elín Ebba Ásmundsdóttir iðjuþjálfi og framkvæmdastjóri Hlutverkaseturs um geðheilbrigði, geðrækt, geðlyf, lyfseðla, hreyfiseðla og menningarseðla.
No transcript for this episode yet
Similar Episodes
No similar episodes found.
Similar Podcasts
No similar podcasts found.