Fight Club (1999) episode artwork

EPISODE · Oct 19, 2025 · 1H 7M

Fight Club (1999)

from Bíófíklar · host Bíófíklar Hlaðvarp

Þrátt fyrir að fyrsta regla Slagsmálaklúbbs David Fincher sé sú að það megi ekkert ræða hann, er nærri ómögulegt að ræða ekki þessa kvikmynd sem víða er talin ein sú áhrifamesta frá seinni hluta tíunda áratugarins.Myndin fjallar um skrifstofumann sem þjáist af svefnleysi sem leitar allra leiða til þess að breyta lífi sínu. Þegar hann kemst í kynni við sápugerðarmann sem undirbýr slagsmálaklúbb tekur hversdagurinn á sig aðra mynd og hlutirnir eru alls ekki eins og þeir virðast í fyrstu. Það þarf ekki að leita langt til að sjá að ekki var tekið vel í Fight Club á sínum tíma.Myndin hlaut dræma aðsókn og voru gagnrýnendur annaðhvort á því að hér væri um að ræða meistaraverk eða hrokafulla þvælu. Margir sáu hana sem kvikmynd sem væri að hvetja til slagsmála, hryðjuverka og tja… extreme karlmennsku, á meðan aðrir ræddu um myndina í þaular þar sem hún er akkúrat krítík á karlmennsku, neytendur, hjarðarhegðun o.fl.Til langs tíma litið er „költ“ staða myndarinnar ótvíræð og eru fáar myndir frá leikstjóranum Fincher sem hefur verið jafn oft vitnað í. Þau Kjartan, Tommi og Auður Svavarsdóttir brjóta nú fyrstu tvær reglur klúbbsins og ræða þessa merkilega misskildu ræmu og ýmsar merkilegar staðreyndir um hana.Undir lok þáttar birtist jafnframt óvæntur fastagestur (hví ekki?) Mögulega er hann ímyndun.Efnisyfirlit:00:00 - Að ræða myndina “pólitískt”05:32 - Fullkomin uppskrift að geðrofi10:03 - Leyfið til að gráta15:59 - Það má ekki spyrja spurninga24:13 - “Er í lagi?”27:16 - Kínverski endirinn32:09 - “Fight Club er Disney mynd”39:17 - “Engir stólar á setti”43:06 - Staðreyndir sturlaðar54:14 - Upphaf og endir58:38 - Óvæntur gestur mætir

NOW PLAYING

Fight Club (1999)

0:00 1:07:44

No transcript for this episode yet

We transcribe on demand. Request one and we'll notify you when it's ready — usually under 10 minutes.

No similar episodes found.

No similar podcasts found.

Frequently Asked Questions

How long is this episode of Bíófíklar?

This episode is 1 hour and 7 minutes long.

When was this Bíófíklar episode published?

This episode was published on October 19, 2025.

What is this episode about?

Þrátt fyrir að fyrsta regla Slagsmálaklúbbs David Fincher sé sú að það megi ekkert ræða hann, er nærri ómögulegt að ræða ekki þessa kvikmynd sem víða er talin ein sú áhrifamesta frá seinni hluta tíunda áratugarins.Myndin fjallar um skrifstofumann...

Can I download this Bíófíklar episode?

Yes, you can download this episode by clicking the download button on the episode player, or subscribe to the podcast in your preferred podcast app for automatic downloads.
URL copied to clipboard!