Bíófíklar

PODCAST · tv

Bíófíklar

Hlaðvarp um bíódellu.Umsjónarmenn eru Kjartan Rúnarsson og Tómas Valgeirsson.

  1. 123

    Mortal Kombat II (2026)

    Mortal Kombat vörumerkið hefur haldist býsna stöðugt og notið ágætra vinsælda síðustu 30+ árin. Fyrir utan heimsfræga tölvuleikinn og öll þau mismunandi form sem hann hefur fengist í, má nefna teiknimyndir, sjónvarpsþætti, vefþætti, myndasögur og - að sjálfsögðu - bíómyndir sem sveiflast hafa heiftarlega til í gæðum.Þeir Atli Freyr, Tommi og Kjartan skelltu sér á ‘fjórðu’ Mortal Kombat-myndina, sem er þó í raun númer tvö í glænýrri endurræsingu. Um er að ræða beint framhald myndarinnar frá 2021 sem lenti með litlum hvelli í miðjum heimsfaraldri en varpaði engu að síður fram stórum loforðum um áframhaldið.Nú fer Karl Urban á kostum ásamt fleiri slagsmálaóðum góðkunningjum í þeysireið þar sem ýmsu subbulegu er tjaldað til. Kjartan kemst þó ekki hjá því að spyrja hvaða kröfur er sanngjarnt að áhorfendur geri til svona myndar. Er Mortal Kombat II lítið annað en skítþunn hasarsteypa sem eingöngu er ætluð aðdáendum tölvuleikjanna eða leynist meira á bakvið þessa ljómandi flippuðu bardagaveislu?Skoðanir munu stangast á og þá er ekkert annað hægt en að kanna hver þremenningana hefur vinninginn. Efnisyfirlit:00:00 - Lamið yfir víðan völl12:49 -Mortal Kombat (2021)21:23 -Mortal Kombat II27:18 - Spillar blæða…30:11 -Nýjar áherslur34:15 -Svindl og flipphljóð42:12 - Fortnite-leiðin…46:12 - Helvíti og blævængir53:31 - Karakterar út um allt57:26 -Samantekt

  2. 122

    Áfram Latibær (1996) & Glanni glæpur í Latabæ (1999)

    Hér kemur smá sprell með skondna sögu að baki. Kvöld eitt, fyrir fimm árum síðan (veturinn 2021 nánar til tekið…), settust þeir Tommi og Óli Bjarki Austfjörð niður við míkrafóna til að ræða stóru málin í tengslum við tvær af þekktari leiksýningum íslenskrar menningar. Bæði leikritin voru gefin út á VHS/DVD og hafa lifað ágætu ‘költ’ lífi síðan, einna helst hjá hópum sem eiga sér nostalgíurætur að tengja við þetta skrípóflipp úr smiðju Magnúsar Scheving.Tommi og Óli, eins og má kannski heyra, eru vel galsaðir þegar upptökur stóðu en halda engu að síður efnistökunum hnitmiðuðum og krufningunni innan velsæmis- og skynsemismarka. Upp rísa spurningar á borð við þessar: Hvar er allt fullorðna fólkið í Latabæ? Hvers vegna er bæjarstjórinn svona niðurlútur? Af hverju eru krakkarnir með bílpróf? Hversu úthugsað er lykiláætlunin hjá Glanna glæp og af hverju í ósköpunum beitir Íþróttaálfurinn handrukkara-töktum á hrekkjusvíninu Höllu?Þáttur þessi hefur lengi safnað ryki í geymslu og þótti bíófíklunum að nú væri sá tími kominn til að gefa þetta út. Hví ekki?Efnisyfirlit:00:00 - Nostalgían kvödd07:34 - Áfram Latibær11:59 - Karakterkynningar25:00 - Hentugar lausnir39:52 - Bær sem heitir ‘Frábær’…42:11 - Glanni glæpur…48:12 - Ýktar breytingar51:21 - Stóra planið58:35 - Samantekt(ish)

  3. 121

    Topp 5: Ridley Scott

    Einn sá virkasti í bransanum og að öllum líkindum methafi þegar kemur að 'leikstjóraköttum' eða almennt lengri útgáfum af kvikmyndum. Þar að auki hefur Ridley Scott sýnt fram á gríðarlega fjölbreytni í gegnum áraraðirnar og gælt við alla mögulegu flokka; frá vísindaskáldsögum eða hryllingsmyndum til epískra períódumynda, sannsögulegra glæpamynda og meira að segja furðulegra gamanmynda.Fjölbreytnin er meira að segja orðin svo mikil að lengi má spyrja sig; Hver eru einkenni kvikmyndar frá Ridley Scott? Hver eru mynstrin? Hvar liggja gildin? Hverjir eru styrkleikarnir? Og... (vitaskuld!) hvaða fimm myndir frá manninum þykja mest framúrskarandi og hvers vegna?Þeir Kjartan, Tommi og Birgir Snær tækla þessar spurningar og ýmsar fleiri, til að betur skilja þennan kvikmyndagerðarmann sem lætur fátt stoppa sig og virðist fara létt með það að dæla út hverri risamyndinni á eftir annarri. Stundum árlega!Efnisyfirlit:00:00 - Sjónvarp og stöff11:51 - Boromír og Faramír30:44 - Blade Runner37:47 - Matchstick Men40:34 - Black Hawk Down44:22 - The Counselor47:28 - Kingdom of Heaven: DC52:50 - The Martian59:47 - Thelma & Louise01:02:26 - Gladiator01:08:22 - Alien01:21:26 - InfinityVision...?

  4. 120

    Samtal við Greg Sestero

    Oft hefur heitið ‘Íslandsvinur’ verið innistæðulaust þegar kemur að frægu fólki. Hins vegar er leikarinn, bókahöfundurinn og framleiðandinn Greg Sestero sannur Íslandsvinur í orðsins fyllstu merkingu. Hann hefur komið til landsins í ófáu skiptiin, hvort sem það hefur verið til að kynna nýjar bíómyndir eða vera viðstaddur á partísýningum hinnar ómetanlegu ruslmyndar The Room.Íris Árnadóttir, góðvinur og fastagestur hlaðvarpsins, hitti Greg nú á dögunum í Bíó Paradís og átti hressilegt spjall við kauða á vegum Bíófíkla. Í þessu stutta en sérstaka innslagi er farið yfir ýmist í tengslum við feril leikarans, almennan kvikmyndasmekk og verkefni í gegnum árin og á næstunni.Þá er gráupplagt að sperra upp eyrun og hlera samtal Írisar við nýja vin sinn. Efnisyfirlit:00:00 - Inngangur01:45 - Big Shark7:03 - Leikstíll Gregs9:45 - Hvað ef...11:00 - The Disaster Artist12:45 - Bíónördið í 'Mark'

  5. 119

    'Topp 5': Gervigreindarmyndir

    Er það A.I. eða 'Æ, æ', eða stöndum við einhvers staðar þarna á milli? Í þessum sérstaka samstarfsþætti leiða Gervigreindarklúbburinn og Bíófíklar hesta sína saman á Podcaststöðinni. Strákarnir kafa djúpt ofan í heim gervigreindar í kvikmyndum — allt frá klassískum hrollvekjum til hjartnæmra framtíðarsýna.Stefán Atli, Tómas og Kjartan ræða helstu stórvirkin sem hafa mótað hugmyndir okkar um vélar, meðvitund og framtíð mannkyns. Þátturinn fer út fyrir hvíta tjaldið og spyr spurninganna sem brenna á mörgum í dag:Mun gervigreind taka störfin okkar? Getur tækni öðlast sjálfstæðan vilja? Hvað verður um tilgang mannsins ef vélar geta gert allt betur en við? Er framtíðin meira í ætt við Wall-E, Her eða The Matrix?Efnisyfirlit:00:00 - Hið jákvæða og neikvæða08:03 - Samtal við ChatGPT20:56 - Uppreisn vélanna29:57 - HAL ofl.37:02 - Þróun og framtíð46:54 - "Gullsins virði"

  6. 118

    Súrt og svarað: Gervigreind í bíómyndum

    Hver væri versta kvikmyndin til að talsetja á íslensku? Hvaða bíósería veitir ekki af því að vera tekin í gegn með ‘Evil Dead’-vinkli? Hvaða eintak í þekktum myndabálki væri ásættanlegt að gera ef hún væri skrifuð af gervigreind? Hvaða titlar eru endanlega ónýtir út af ofbeldisfólki? Tommi, Atli Freyr og Vilmundur Örn skoða þessar sturluðu og helvíti súru spurningar ásamt fleirum í þessu tiltekna innslagi af spurningarleik Bíófíkla þar sem hvorki eru til rétt eða röng svör; aðeins gamanið sem gert er til að veita innsýn inn í smekk þeirra sem við mækana sitja.Hlustandi er hvattur til að hlera þessa steik og svara í eigin kolli.Efnisyfirlit:00:00 - ‘Leikreglur’ og vangaveltur14:13 - “Pop-up” aðlögun20:19 - Frægir Íslendingar í myndum25:41 - Leikstjóraegó á næsta stigi46:08 - AI skrifar bíómynd…51:50 - Talsetningar á íslensku01:02:45 - Evil Dead-vinkillinn01:12:17 - Af tvennu ömurlegu…01:20:56 - Óæskileg röðun01:28:03 - Leynigestur…!

  7. 117

    I Swear (2025)

    Einstaka sinnum koma út bíómyndir sem óhætt er að mæla með fyrir alla. Þá bókstaflega alla; óháð aldurshópi, stétt, pólitískum gildum, lífsreynslu og fleira þess háttar. Svona myndir sem hitta einfaldlega bara vel í mannsálina, auka skilning á átökum náungans og skilja ýmist eftir sig. I Swear er ein slíkra mynda. Eða svo segir allavega annar þáttastjórnenda Bíófíkla.Myndin er byggð á sannri sögu og fjallar um hinn ljúfhjartaða John Davidson, sem hefur frá unglingsaldri glímt við Tourette heilkenni. Útkoman er ljúfsár og einstaklega yljandi þar sem varpað er sterku ljósi á umræðuefni sem ber að fræða margan manninn um (ekki síður í ljósi umtalaða atviksins á BAFTA verðlaununum…). Þá má jafnframt fullyrða að atburðarás þessarar kvikmyndar kann að vera lyginni líkust, enda er veruleikinn gjarnan furðulegri en skáldskapur.Kjartan og Tommi fara ítarlega í frásögnina, ‘biopic’-formúlur, mýtur og vangaveltur um Tourette, kosti myndarinnar og galla. Gætu hugsanlega líka dúkkað upp leynigestir í miðjum tökum.Hendum okkur í þetta helvíti!…Efnisyfirlit:00:00 - BAFTA-skandallinn…05:38 - “Of mikil biopic-mynd”?09:05 - Skilningur og umburðarlyndi 15:37 - Baylen Out Loud20:44 - Of gott til að vera… (spillar!)29:28 - Flæði tilfinninga37:19 - Nei sko, leynigestir…!43:03 - Erfiðu samtölin49:17 - Listin að tilheyra

  8. 116

    The Super Mario Galaxy Movie (2026)

    Mario-bræður og vinir möluðu gjörsamlega gull í aðsókn á heimsvísu þegar fyrsta bíómyndin mætti með látum árið 2023. Þá kom að sjálfsögðu ekki annað til greina en að halda samstarfinu áfram hjá Nintendo og Illumination. Hvar endar þetta?Skipta gæðin einu sinni máli þegar um ræðir svona þekkt vörumerki og skilyrðislausar vinsældir? Er kannski bara nóg að krakkarnir gangi alsælir og sáttir út úr bíóinu? (og ekki er það beinlínis neikvætt að börn flykkist í kvikmyndahús til að byrja með…). Laumast kannski meira undir yfirborði Super Mario myndanna en eingöngu sykurvíma, tilvísanir og ‘páskaegg’?Svör þessi reyna á mat sérfræðings og Kjartan og Tommi fengu Arnór Stein Ívarsson úr Tölvuleikjaspjallinu til að greiða úr gúmmelaðinu. Tengsl hvers og eins við tölvuleikina eru einnig krufin, almenn nostalgía og hlutleysi.Skellum í okkur sveppina og kýlum á þetta.Efnisyfirlit:00:00 - Nintendo mafían09:00 - Mario-legasían18:01 - Super Mario ’64…26:38 - Fyrri myndin29:27 - Hegðun í bíósal36:28 - Illumination-lógík40:01 - Super Mario Galaxy43:41 - Star Fox og cast’ið…48:56 - Lagstuldur…52:48 - Samantekt og krítík

  9. 115

    Topp 10: Svavar Máni

    Svavar Máni Geislason brunaði beinustu leið frá Akureyri til að skella sér í stúdíó Podcast-stöðvarinnar til að setjast niður með Bíófíklum, enda mikill slíkur sjálfur að eigin sögn. Þegar upp kom spurningin um umfjöllunarefni þá varð vissulega svonefndur 'kósí-þáttur' fyrir valinu; kósí fyrir þáttastjórnendur, krefjandi fyrir gestinn. Eins og það á að vera...Smekkur Svavars fer yfir víðan völl og leiðir hann Kjartan og Tomma í gegnum sínar topp 10 uppáhalds kvikmyndir, með viðeigandi sem og furðulegum útúrdúrum annað slagið. Þess að auki myndast merkilega skondnar umræður um vægi og gildi Óskarsverðlauna.Efnisyfirlit:00:00 - Bíóið á Akureyri09:21 - Aftersun16:09 - In Bruges22:11 - Beautiful Boy33:23 - Better Man43:43 - The Holdovers53:14 - Scott Pilgrim Vs. The World01:01:34 - Pulp Fiction01:09:27 - All of Us Strangers01:13:16 - One Flew Over the Cuckoo’s Nest01:19:00 - The Green Mile01:31:07 - Magnolia01:38:16 - One Battle After Another

  10. 114

    Meet the Feebles (1989)

    Ef það er til eitthvað steiktara frá leikstjóra The Lord of Rings-myndanna heldur en Braindead eða jafnvel Bad Taste, þá er það klárlega Meet the Feebles! Hér er enginn afsláttur veittur og öll velsæmismörk eru svo gott sem ósýnileg. Það er að minnsta kosti öruggt að aldrei hefur áður eða síðan sést eitthvað í líkingu við hana. Við viljum vita hvers vegna….Tommi og Frikki settu upp prakkaralegt glott og völdu þessa kvikmynd með séróskir um að Kjartan fengi ekkert að kynna sér né lesa sig til um hana fyrirfram, að hann þurfti sumsé að horfa á hana algjörlega blindandi. Þekkjandi Kjartan eru viðbrögðin klárlega skrautleg og umræðan verður svoleiðis sprellfjörug að Atli Freyr Bjarnason stóðst heldur ekki mátið að vera með í öllu glensinu. Þetta er Meet the Feebles frá Peter Jackson, og hún er vægast sagt ein spes bíómynd. Hlustandi er vitaskuld hvattur til að taka þátt í smekkleysunni.Efnisyfirlit:00:00 - “Fokkaðu þér, Frikki”07:15 - Stoltur viðbjóður14:48 - Metnaður?26:23 - Söguþráðurinn…34:43 - Samantekt(ish)

  11. 113

    Project Hail Mary (2026)

    Er þetta með betri sci-fi skáldverkum undanfarinna ára, spurning? Bókin eftir Andy Weir virðist allavege eiga stóran hóp aðdáenda og þá er bara að skoða hvernig til tekist hefur með kvikmyndaaðlögunina. Nöfnin eru allavega ekki af slakari endanum; Leikstjórateymið Lord & Miller, handrit eftir Drew Goddard, Ryan Gosling í burðarrullunni og ein stjarnfræðilega krúttleg geimvera að nafni Rocky. Svo fáein dæmi séu nefnd.Kjartan, Tommi og Birgir Snær skella sér í þessi sendiför og meta hvort allt hæperbólið standist, ásamt mögulega einum leynigesti.En ekki hvað?Efnisyfirlit:00:00 - Tuð, nostalgía og hasar09:51 - Weir, Goddard og Lord/Miller28:54 - Samantekt án spilla47:13 - Dýpra kaf (þ.e. spillar)01:00:05 - Fíllinn í aspect ratio’inu…01:07:46 - Leynigestur01:12:01 - Brúða en ekki brella01:17:10 - Í hvaða sal?01:26:00 - “Æðisleg. Fullyrðing”

  12. 112

    The Commitments (1991)

    Dögg Mósesdóttir er leikstjóri, naglharður múltítaskari og með heldur betur heilmikla reynslu af kvikmyndahátíðum á Íslandi. Undanfarin ár hefur hún verið dagskrástýra Stockfish en að hennar eigin sögn er þemað ákaflega fjörugt í ár. Írsk menning er allsráðandi þetta árið en Dögg settist niður með Kjartani og Tomma til að ræða Sprettfiskinn næstkomandi, feril sinn, áhugasvið, íslenska kvikmyndabransann og eina af sínum uppáhaldsmyndum. Það mun vera stuðmyndin The Commitments, sem á sér skemmtilega sögu og legasíu. Myndin naut mikilla vinsælda á sínum tíma og fylgir henni hafsjór af bæði hressilegum tónlistaratriðum og fjörugum fróðleiksmolum.Efnisyfirlit:00:00 - Írskur fókus14:31 - Íslandstenging19:30 - Hagkerfi kvikmyndagerðar36:47 - The Commitments40:50 - Fjölbreyttur soul-hópur50:36 - Óreyndir naglar58:31 - Súrrealisminn heillar

  13. 111

    The Bride! (2026)

    Maggie Gyllenhaal veitir engan afslátt með nýstárlegri túlkun sinni á Brúður Frankenstein. Þessi pönkaða útrásarmynd með Jesse Buckley og Christian Bale í aðalhlutverkum hefur skipt gagnrýnendum í fylkingar og tapað heilmiklum stúdíópeningum. Án þess að skafa af því er sennilega um að ræða eitt stærsta flopp þessa árs.Vinsældir og gæði haldast þó ekkert alltaf í hendur og þau Kjartan, Tommi og Steingerður Friðriksdóttir rýna í öll rugluðu efnistökin sem tröllríður öllu.Er þetta misskilinn geimsteinn, tilvonandi költari, hálfbökuð hugmyndasúpa eða ein stór óreiðuklessa?  Eða kannski bara þetta allt saman?Hendum okkur á dansgólfið og finnum öll svörin í sameiningu.Efnisyfirlit:00:00 - Menningarsjokk16:46 - IMAX upplifunin27:11 - Óreiða brúðarinnar33:48 - Útúrdúr um ‘Menn’…36:41 - Pönk og andsetning39:41 - Leynigestur og spillar…43:36 - “Röngu skilaboðin”47:47 - Neitunarvaldið51:45 - Hliðstæða “parið”56:42 - Draugurinn Shelley01:00:41 - Markhópur og samantekt

  14. 110

    Birdman... (2014)

    Tómas Geir Howser er leikari á uppleið í lífinu og hefur marga fjöruna sopið á stuttum tíma á ferli sínum. Undanfarin ár hefur hann verið búsettur í London en Bíófíklar vildu ólmir grípa í hann á meðan hann heimsótti litla Ísland og leyfa honum að velja mynd til umfjöllunar. Tómas ákvað þá að velja líflegu Óskarsmyndina sem heitir að fullu nafni ‘Birdman or (The Unexpected Virtue of Ignorance)’ þar sem Michael nokkur Keaton sýnir stjörnuleik ásamt fleirum kunnuglegum.Kjartan, Tommi og Tómas ræða þessa ‘fever-dream’legu’ kvikmynd og marga hverja kosti hennar, orðspor, einkenni, stílbrögð og þá ekki síður Óskarinn almennt og þá bransapólitík sem fylgir þeim verðlaunum. Komið ykkur á loft og hlustið á herlegheitin.Efnisyfirlit:00:00 - Cabaret og leiklist12:21 - Óskarsverðlaunin27:31 - Birdman…38:43 - Vald gagnrýnandans51:03 - Gimmick eða geggjun57:14 - Aftur að Óskarnum

  15. 109

    The Truman Show (1998)

    Hér er mynd sem var heldur betur á undan sinni samtíð og var gefin út áður en raunveruleikasjónvarp fór að yfirtaka heiminn. The Truman Show er alveg einstaklega hressandi sci-fi “hryllingur” þar sem allt angar af tilgerð í umræddum þætti nema aðalpersónan. Þetta markaði í raun fyrsta dramatíska hlutverk gúmmíkarlsins Jim Carrey og er býsna athyglisvert hvað þessi kvikmynd hefur náð að eldast vel.Gestur þáttarins er Vilmundur Örn Gunnarsson, forfallinn bíófíkill og einn af óteljandi aðdáendum þessarar myndar. Saman fara þeir Kjartan og Tommi yfir mannlega þáttinn í Truman-þættinum, undirliggjandi óhugnaðinn, sjarmann og makalaust frumlegu framvinduna. Ætli einhver sé að fylgjast með? Hvað gerist ef einhver í stúdíóinu veit of mikið? Verður sá einstaklingur kannski numinn á brott?Svörin fást í hlustuninni, svo lykilatriði er að koma sér vel fyrir í baðkarinu.Efnisyfirlit:00:00 - Allir í sínum Truman-þætti03:43 - Mainstream Peter Weir08:47 - Prísund í beinni14:17 - Truman á YouTube18:21 - Rútína og flótti22:57 - Implantaðar fóbíur25:34 - Getnaður… í beinni?!31:35 - Allt í plati36:12 - Fiji…!38:46 - “Halló…?”41:13 - Ímynd gúmmíkallsins

  16. 108

    Scream (1996-2026)

    Fyrir þrjátíu árum síðan gerði Scream allt vitlaust og áhorfendur voru hiklaust ólmir í meira og enn meira. Þessi sería úr smiðju hrollvekjumeistarans Wes Craven hóf þarna langlífu göngu sína og síðan þá farið í gegnum alla flóruna af gæðum í höndum mismunandi teyma og leikstjóra. Þessi ádeilukennda blanda af slasher og ‘whodunnit’ ráðgátu hefur taumlaust leikið sér að formúlum og handritsreglum og má segja að það sé bæði óvænt og magnað að þetta sé enn í fullum gangi. En hvert áframhaldið leiðir og hver legasían verður á komandi árum er miklu stærri ráðgáta. Í tilefni sjöundu myndarinnar, þar sem Kevin Williamson hefur formlega tekið við keflinu og sett allt fútt í nostalgíuna, ákváðu Bíófíklar að taka létta yfirferð á öllum eintökunum auk þess að hlaða í uppröðun á hverju þeirra. Kjartan, Tommi og Atli Freyr koma sér í gírinn og bera saman b(r)ækur um hvort Ghostface-morðinginn eigi enn nóg afl eftir í sér eða hvort betra sé að hengja upp grímuna og kalla þetta gott. Að þessu ógleymdu má eiga von á einum eða tveimur leynigestum, að hætti Scream-myndanna.Þá er betra að setja upp gerviröddina og grípa í símann. Nú skal ræða uppáhalds hrollvekjur. Efnisyfirlit:00:00 - Scream 18:41 - Scream 227:06 - Scream 3 37:57 - Scream 4 43:54 - Scream ’22 46:32 - Scream VI 50:29 Scream 7 án spilla57:44 - Leynigestur og SPILLAR 01:09:22 - Gæðaröðun 01:14:32 - Annar leynigestur…

  17. 107

    Topp 10: Arnór Steinn

    Ef það er til stærri aðdáandi kvikmyndarinnar Magnolia heldur en annar þáttastjórnenda Bíófíkla, þá er það Arnór Steinn Ívarsson. Eins og sumir kannski vita þá er Arnór annar heilinn á bak við hlaðvarpið Tölvuleikjaspjallið og stóðst kauði ekki mátið að kíkja til nágranna sinna í Podcaststöðinni og telja upp sínar uppáhaldsmyndir… í kexruglaðri númeraröð!Hlustandi má gera fastlega ráð fyrir ólgandi skoðunum og óséðum hneykslissvipum Bíófíkla, en ástríðan er að sjálfsögðu yfirráðandi hjá þremenningunum. Ef satt er það sem sagt er um að hláturinn lengi lífið, þá ætti þetta innslag Bíófíkla að bæta nokkrum mánuðum við æviskeið hvers og eins í stiknandi stúdíóinu.Fjölbreyttum titlum er lofað en film-bró-bræðurnir Nolan og Tarantino yrðu líka trúlega hæstánægðir með strúktúrinn á topplistanum að þessu sinni.Efnisyfirlit:00:00 - Matartips06:52 - Arnórslistinn11:30 - Scary Movie21:32 - Not Another Teen Movie31:41 - No Country for Old Men42:00 - Toy Story 247:30 - The Bourne Supremacy55:33 - Once Upon a Time in America01:05:00 - The Princess Bride01:07:30 - The Departed01:10:59 - Magnolia01:14:25 - Hilmir snýr heim

  18. 106

    The Nice Guys (2016)

    Oft er betra að veðja á Black. Þegar kemur að kjaftforum karakterum, kostulegum hasar og ruglaðri framvindu sem spila með væntingar áhorfenda, er yfirleitt hægt að reiða á hinn þrælskemmtilega Shane Black. The Nice Guys er (ó)umdeilanlega á meðal hans betri mynda en þarna fara þeir Ryan Gosling og Russell Crowe tvímælalaust á kostum og sýna jafnvel sínar bestu hliðar. Kómík og kaos er að minnsta kosti allsráðandi ásamt fjölda frasa og uppákoma sem endalaust er hægt að vitna í… allavega að mati þeirra sárafáu sem hafa séð myndina.The Nice Guys lenti ekki beinlínis með miklum vinsældarhvelli á sínum tíma - þvert á móti endaði hún í töluverðu tapi - en hefur seglað til sín dygga aðdáendur á undanförnum áratug. Þau Kjartan, Tommi, Frikki fastagestur og Guðbjörg Marín (e. betri helmingur Frikka, réttara sagt) rifja upp þessa ómótstæðilegu veislu af vitleysu þar sem harðsoðnar klisjur eru teknar í gegn með stöðugu sprelli í ólgandi ‘70s stíl. Sannkölluð “frasa-hasarmynd.” Um að gera að leggja í hlustunina, hafa það næs og vera memm!Efnisyfirlit:00:00 - Grín með meiru…06:25 - Shane Black’isminn12:03 - Ryan Gosling og öskrið21:51 - Harðsoðnir stælgæjar27:06 - Fyndnir aukaleikarar32:04 - Drykkja og mannúð39:03 - Aðsókn/“Dumping ground”50:16 - Play Dirty og bolir!

  19. 105

    Pillion (2025)

    Einhver umtalaðasta mynd síðasta árs, jafnvel af mörgum talin ein sú heitasta ef ekki bitastæðasta. ‘Dom-com’ kvikmyndin Pillion virðist hafa heillað og heltekið gagnrýnendur og áhorfendur víða um heim og því er kjörið að komast til botns á því hvað einkennir þessa fyrstu kvikmynd leikstjórans Harrys Lighton. Hérna sameinast tveir gerólíkir karlmenn í umræðuvert og geysilega eftirminnilegt samband og það tekur ekki langan tíma fyrir áhorfandann til að laðast að öðrum þeirra, eða báðum.Kjartan og Tommi tóku á móti Írisi Árnadóttur og Steingerði Friðriksdóttur þar sem hver við sinn míkrafón lýsir upplifun sinni á myndinni. Að sjálfsögðu fylgir þessu líka að fara yfir hæðir og lægðir lykilsambandsins í myndinni. Hlustandi er því hvattur til að smella sér í leðrið og skella sér á fjórar fætur, vegna þess að nú hitnar í stúdíóinu!Efnisyfirlit:00:00 - Hvað er ‘Pillion’?04:02 - Samantekt á undan spillum09:20 - Nördinn Colin (ath. spillar!)14:31 - Samþykki ofar öllu 21:26 - Mýtur um BDSM37:19 - Ást eða ekki ást43:23 - Draumadagurinn50:42 - Þróun Colins (og Secretary)

  20. 104

    Wuthering Heights (2026)

    Aldrei er góð vísa of oft kveðin, ekki satt? Hin goðsagnarkennda skáldsaga Wuthering Heights eftir Emily Brontë frá 1847 hefur nú verið reglulega kvikmynduð á nánast hverjum áratug síðan á þriðja áratug síðustu aldar.Þessi tímamótasaga um erfiðar (lesist: eitraðar) ástir, þráhyggju, hefndir, stéttaójafnvægi, örlög og kynslóðaskipti hefur farið í gegnum öll mögulegu form til að höfða til nýrra kynslóða, frá einfölduðum bíómyndum til mini-sería og afbakaðra hroða (helst ber þar að nefna rokkuðu unglingamyndina frá 2002 eða Lifetime-mynda viðbjóðinn Wuthering High School frá 2015…). Hver flutningur hefur átt sitt sérsnið þegar kemur að áherslum en hörðustu aðdáendur bókarinnar hafa margir hverjir fært rök fyrir því að sögunni hefur aldrei fyllilega náð að komast til skila. Steingerður Friðriksdóttir, mannfræðingur og einlægur aðdáandi skáldsögunnar, er mætt í stúdíóið til Kjartans og Tomma til að meta þessa hjólgröðu aðlögun hinnar efnilegu Emeralds Fennell (sem færði okkur áður Promising Young Woman og Saltburn). Hverjar eru áherslurnar að sinni (fyrir utan gredduna) og hvað meira aðskilur þessa tilteknu nálgun á sögu Brontës sem áður hefur ekki sést? Stóru málin eru öll könnuð með spillum.Efnisyfirlit:00:00 - Wuthering Heights í heila öld09:14 - Titillinn í gæsalöppum13:52 - Þrjóska, grimmd og frekjuskapur22:53 - Meira lagt í Cathy en vanalega28:44 - Heathcliff eða Edgar?34:35 - Næsta kynslóðin38:37 - Isabella og Nelly46:19 - Um kemistríuna…50:57 - Nútíma taktar01:01:05 - Samantekt

  21. 103

    The Dark Crystal (1982)

    Jim Henson var sannkallaður galdrakarl í tengslum við sköpunargleði sína með brúðum; alveg frá Sesame Street til Prúðuleikaranna og fleira sem löngu er orðið tímalaust eða sígilt. Það er að minnsta kosti klárt mál að Henson eigi stóran hlut í nostalgíu ákveðinna kynslóða.Friðrik Önfjörð fastagestur er mættur aftur í stúdíóið til Kjartans og Tomma en að þessu sinni mætti hann ásamt maka sínum, Guðbjörgu Marín Guðmundsdóttur. Það var hugmyndin hennar Guggu að kafa aðeins ofan í þetta furðuverk Hensons og kollega hans, Frank Oz, og hvetja drengina í senn til að endurnýja kynnin við þetta léttmyrka ævintýri. Myndin er óneitanlega glæsileg í sjónarspili, hönnun og leikmyndum og einkennist af masterklassa ‘80s svip. Hvernig ræman eldist og hvað býr á bak við hennar költaða orðspor er hins vegar skemmtilegra til umræðu.Hljómar þetta ekki Prúðulega? **Talandi um hljóð, þá var tæknin í Podcaststöðinni eitthvað að stríða Bíófíklum heiftarlega að sinni. Reynt var eftir bestu getu að minnka rafsuðið úr míkrafónunum, en það laumast enn í gegn á köflum. Afsakið þetta innilega.Efnisyfirlit:00:00 - Gagnslausi Jen05:13 - Henson feðgin á hóteli11:11 - Latex og gervihár17:39 - Nostalgíutenging26:35 - Erfiðin á settinu34:25 - Umgjörð vs. handrit42:55 - Að djamma með “kartöfludúddum”46:05 - ‘80s ‘Tráma-myndir’

  22. 102

    Topp 5: Danny Boyle

    Viti menn, þá er komið að hundraðasta þætti Bíófíkla þar sem tilefnið er að halda upp á einn stórlega vanmetinn og fjölhæfan listamann. Ef þú vilt orku, dúndurgóða tónlist, skemmtilega leikara í essinu sínu og stílíseraða fjölbreytni, þá ætti breski dugnaðarforkurinn Danny Boyle að geta glatt þig á margs konar vegu - allavega oftar en ekki. Margt kvikmyndaáhugafólk þekkir til mannsins en stærri sarpinn í allri sinni dýrð ber að ræða.Kjartan og Tommi eru eldhressir að sinni (og Óli Bjarki Austfjörð enn fremur en hann settist einnig þarna niður með dúóinu) með það að markmiði að fræða hlustandann betur um alla þann Boyle’isma sem ber að ræða yfir vænan og tilraunakenndan feril.Opnum nú þennan maníska konfektkassa og skoðum hvar styrkleikarnir liggja.Athugið að þátturinn hefur verið klipptur aðeins til - af ástæðum sem kunna að skýrast þegar líður á hlustunina… en það er líka bara vel í anda Boyle mynda!Efnisyfirlit: 00:00 - Þáttur 100! 02:19 - Hvers vegna Boyle?12:54 - Shallow Grave18:49 - ‘Runner up’ myndir25:18 - Yesterday31:18 - Slumdog Millionaire37:07 - Sunshine41:11 - Steve Jobs50:44 - Trance01:00:30 - 28 Days Later…

  23. 101

    Hackers (1995)

    Það er ekkert rétt eða rangt, bara skemmtilegt og leiðinlegt. Svo er mælt í spennu- og unglingamyndinni Hackers. Um er að ræða gífurlegt barn síns tíma frá Iain nokkrum Softley með stórskotaliði minnisstæðra leikara og fullt af fríkuðum karakterum, ef ekki ógleymanlegum.Myndin varð fyrir valinu hjá Atla Sigurjónssyni kvikmyndagerðarmanni og skoða þeir Tommi ræmuna út í gegn, þar sem ein mikilvæg spurning er meðal annars vörpuð fram;‘Er þetta mesta* ‘90s mynd allra tíma?*Ath. Hvorki besta né vinsælasta, heldur ‘mesta’ ...Efnisyfirlit:00:00 - Iain svo Softley07:17 - ‘Cyberpunk’ ræmur13:31 - Í leit að einkenni20:41 - Eldri ungmenni og Íslandsvinur25:19 - Gibson’inn29:17 - Tónlistin35:38 - Mömmu-komplexar41:21 - Kjarnahópurinn49:18 - Hvar eru allir í dag?01:00:26 - Skondnir dómar

  24. 100

    28 Years Later: The Bone Temple (2026)

    Fílar þú 28 Days Later en ert óviss með álit þitt á seinni myndunum? Finnst þér Ralph Fiennes vera frábær leikari en óskaðir þess að hann fengi stærra vægi í 28 Years Later? Ef svo, þá er aldeilis lukkan með þér í liði því nú fær Fiennes fókusinn til að leika meira lausum hala í framhaldinu á einni umdeildustu kvikmynd síðasta árs.Kjartan, Tommi og Atli Freyr renna yfir legasíu og bragðtegundir þessara '28 x Later' kvikmynda og hvað gæti verið næst í vændum eftir þennan ruglaða miðkafla sem hér er til umræðu, með og án spilla. Upp með öfugu krossana, hendum einhverju geggjuðu á fóninn og dönsum eins og hálfvitar, því nú skal ræða eina stöppugeðveika ræmu...Spoiler-umræða hefst á klukkutíma-og-korters markinu...Efnisyfirlit:00:00 - Forsýning og eðli mannsins11:15 - Upprifjun á seríunni25:15 - Boyle vs. Nia DaCosta37:32 - Part 1 og Part 244:38 - The Bone Temple án spilla01:15:01 - SPILLAR hefjast...!01:24:06 - Heljarinnar Kelson01:34:06 - Lokamínúturnar01:42:01 - Part 3?...

  25. 99

    Bíóárið 2025: Seinni hluti

    Nú þegar topplistarnir eru að mestu leyti að baki er um að gera að demba sér í *hinn* pólinn á liðnu bíóári.Kjartan og Tommi fara nú yfir mestu vonbrigði ársins 2025 ásamt slökustu myndunum með tilheyrandi útúrdúrum. En til að gefa aðeins breiðari mynd af þessu þéttpakkaða ári er upprennandi kvikmyndagerðarmaður sestur með þeim í stúdíóið. Það er hann Páll Kristinn Jakobsson sem leiðir með þeim ýmsu hverju mynstrin sem er vert að ræða. Þess að auki var hvergi komist hjá því að biðja Pál um að mæta með sína lista af því versta (og reyndar besta) frá umræddu tímabili.Yfir í fjöreríið!Efnisyfirlit:00:00 - Rýnt betur í heildarárið06:04 - Companion08:12 - Bring Her Back og Bloodlines12:31 - Elio og Pixar18:55 - Mickey 1726:50 - Frankenstein/Snyder umræða... (?)37:45 - Bugonia47:44 - Keeper51:50 - K-Pop Demon Hunters56:11 - Skiptum um gír...01:00:38 - Tíu verstu (Kjartan)01:09:55 - Tíu verstu (Tommi)01:21:15 - Fimm slökustu (Páll)01:28:01 - Vonbrigði ársins01:40:21 - Sjónvarpsefni ársins01:44:38 - Mynstur á árinu

  26. 98

    Topp 10: Heimir Bjarnason

    Atvinnunördið Heimir Bjarnason hefur verið að gera frábæra hluti í íslenskum kvikmyndabransanum og gegnir ófáum rullum í þeim iðnaði. Fram að þessu hefur hann verið framleiðandi, handritshöfundur, tökumaður, leikstjóri auk þess að vera einn færasti ef ekki virkasti klippari landsins. Árið 2022 gaf hann út kvikmyndina Þrot, sína fyrstu (af fleirum, vonandi) í fullri lengd en leiðin að þeim draumi hófst fyrst og fremst með brennandi ástríðu fyrir kvikmyndaforminu og fjölbreytileika þess.Þeir Kjartan og Tommi tóku á móti Heimi þar sem hann leiðir hlustandann í gegnum tíu kvikmyndir sem skipta honum gífurlegu máli og hvers vegna. Áheyrnin er sögu fríkaðri. Efnisyfirlit:00:00 - Hlé/ekki hlé?08:19 - Listasmíði Heimis16:38 - Betri Mamma Mia myndin19:10 - It's a Wonderful Life24:20 - The Life Aquatic with Steve Zissou29:50 - All About Eve36:07 - Chicago42:37 - Billy Elliot46:54 - Once Upon a Time in Hollywood54:31 - Ocean's Twelve01:01:08 - Beautiful Thing01:04:49 - The Worst Person in the World01:11:29 - Before Sunset01:22:42 - Aftur að Mamma Mia...

  27. 97

    Bíóárið 2025

    Jæja, hið mikla uppgjör á liðnu kvikmyndaári blasir nú við og þá í tvímælalaust stærsta þætti Bíófíkla til þessa (eins og lengdin kann að gefa til kynna…). Gestirnir að sinni eru ekki af óskemmtilegri endanum en það eru þau Ragnar Aðalsteinn Guðjónsson og Hildur Evlalía Unnarsdóttir úr bíóhlaðvarpinu Video rekkinn. Bækur eru allverulega bornar saman - tímunum saman - um hvað stóð upp úr á þessu viðburðaríka og umræðuverða kvikmyndaári. Hér mætast við mækana ansi hreint ólíkir persónuleikar og smekkir, en það er vissulega bara ávísun á hressilegri hlustun. Lofað er líflegri dýnamík… og nokkrum svindlum.Dembum okkur í þetta.Efnisyfirlit: 00:00 - Video rekkinn á samfélagsmiðlum10:05 - Hvernig var árið?27:46 - 'Runner-up' listarnir01:08:51 - Predator: Killer of Killers01:12:05 - Eldarnir01:16:17 - Bugonia01:21:50 - Companion01:24:11 - Black Phone 201:28:10 - Ballerina01:32:23 - K-Pop Demon Hunters01:35:45 - Die My Love01:38:12 - Superman01:45:32 - Caught Stealing01:48:22 - A Real Pain01:54:04 - Sisu: Road to Revenge01:57:56 - The Phonecian Scheme02:07:11 - Sinners02:15:02 - Frankenstein02:24:07 - Avatar: Fire and Ash02:48:00 - Nosferatu02:53:48 - One Battle After Another03:07:03 - 28 Years Later03:18:03 - Sentimental Value03:20:36 - Weapons03:27:51 - Samantekt03:32:32 - Bíóárið 2026...

  28. 96

    Súrt og svarað: Babu Frik eða Bond?

    Þá skal halda áfram með spurningaleikinn þar sem fást engin ‘rétt’ svör og stigin skipta nákvæmlega engu máli. Á meðal pælinga er skoðað hver er versta Stjörnustríðsmyndin til að sýna einhverjum í fyrsta sinn, hvaða Bond-mynd ætti aldrei að vera fyrst fyrir valinu og hver eru stærstu feilsporin hjá virtum leikstjórum.Kjartan og Tommi bjóða kvikmyndaáhugamanninum Þorstein Valdimarsson hjartanlegaa velkomnum í stúdíó Podcaststöðvarinnar þar sem markmiðið er að kynnast smekk Þorsteins örlítið betur í gegnum gallsúrar en (vitaskuld) há-nördalegar spurningar.Hlustandi er að sjálfsögðu hvattur til að hlera þetta húllumhæ þar sem aldrei er of langt í algjöra steypu.Efnisyfirlit:00:00 - Nördismi og 'physical media'17:19 - Besta myndin frá lélegum leikstjóra25:57 - 'Gateway'-Stjörnustríð30:22 - "Versta tillagan að Bond-mynd..."39:42 - Eyðieyjuhörmungin43:18 - Óþolandi bíóupplifun49:41 - Hugleiðing um fræg vélmenni01:03:04 - Michael, Freddy eða Hannibal?

  29. 95

    Planet of the Apes (2011-2024)

    Apaplánetan hefur verið ófáu kvikmyndaáhugafólki kunnug síðan á sjöunda áratug síðustu aldar. Þessi umræðuverði kvikmyndabálkur hefur verið títt þekktur fyrir að þræða saman samfélagsádeilu við sci-fi og einstaka sinnum tímaflakk. Þegar þetta er (hljóð-)ritað eru myndirnar orðnar tíu og endurræsingar tvær að talsins. Kjartan, Tommi og Frikki fastagestur taka létta yfirferð í gegnum þessar merku myndir en hafa ákveðið að einbeita sér að mestu að nýjustu núllstillingunni sem hófst árið 2011. Frikki hafði ekki séð neina af þeim myndum og verður þá stórt spurt um hvernig útkoman reynist, og á hvaða Apaplánetu er best að vera.Þremenningarnir virðast ekki alveg vera samhljóma um hvaða eining þessa fjórleiks ber hvað mest af. En hlustunin er klárlega þess virði að gæða sér á banana yfir og lát duglega heyra,00:00 - 10 myndir tótal24:29 - Rise of the Planet of the Apes43:11 - Dawn of the Planet of the Apes01:19:20 - War for the Planet of the Apes01:57:57 - Kingdom of the Planet of the Apes

  30. 94

    Wake Up Dead Man (2025)

    Þriðja myndin í Knives Out-seríunni  frá Rian Johnson um eitursnjalla einkaspæjarann Benoit Blanc hefur verið á vörum margra síðustu vikur. Að þessu sinni er kirkja og trú tekin fyrir þar sem Blanc snýr bökum saman við ólukkulegan prest til að komast til botns á stórfurðulegu morðmáli.Líkt og hefur áður fylgt þessari seríu leiðir Daniel Craig stórskotalið leikara í líflegum bræðingi af glensi og alvöru. Viðsnúningar finnast reglulega handan við hornið í leitinni að svörunum við eftirfarandi spurningum; Hver framdi morðið? Hvernig og hvers vegna?Þeir Kjartan, Tommi og Birgir Snær skoða framvinduna og meta hvernig allt kemur heim og saman hjá Blanc og félögum að þessu sinni. Spillar verða tilgreindir og má finna skilmörkin í tímakóðunum hér að neðan.Efnisyfirlit:00:00 - Byrjum á Clue12:29 - Undir áhrifum Christie17:18 - Knives Out (með spillum)24:32 - Glass Onion (með spillum)32:36 - Wake Up Dead Man (*án* spilla)47:26 - Spillar hefjast hér!52:13 - "Fullur af Krist"59:26 - Johnson djókar með Star Wars01:02:09 - Vald yfir öðrum

  31. 93

    Avatar: Fire and Ash (2025)

    Hér er hún; stærsta mynd ársins 2025, umdeilanlega stærsta myndin til þessa frá stórmyndakóngnum James Cameron og í senn ábyggilega umdeildasta Avatar-myndin. Nú er Cameron er kominn í logandi hágír með hæðir og lægðir Sulley fjölskyldunnar, vini þeirra, óvini og þær ófáu orrustur sem þar fylgja. Karaktersúpan er orðin meiri en áður og siglir allt í húrrandi sjónarspil þar sem peningurinn sést svo sannarlega á skjánum. Hvort að rassinn hjá áhorfandanum verði orðinn fullaumur eftir þriggja (plús) tíma setu er annað mál. Myndin er að sjálfsögðu rædd í þaula, með og án spilla (sem hefjast á circa 40 mínútna markinu). Hvort að Fire and Ash marki gígantískan endi á risa þríleik eða sé enn ein upphitunin að einhverju stærra er í brennidepli hjá Kjartani og Tomma. Auk þess er farið grimmt út í þær umræður um hvort að þetta sé meira af því sama eða djúsí stigmögnun og stækkun á þeim þrívíða bíóheimi sem yfirgnæfir Pandoru. Eitt er þó allavega víst; Þetta er KLÁRLEGA graðasta Avatar-myndin…Efnisyfirlit:00:00 - Ástríðan í heimi Camerons11:24 - "Rosalega mikil mynd"20:47 - Meira af því sama?35:01 - Samantekt á undan spoilerum44:44 - HFR eða ekki HFR?49:30 - Spoiler-umræða hefst!58:06 - Litlu stóru augnablikin01:02:17 - Á gráa svæðinu...01:08:16 - Um aðra karaktera01:16:26 - Með einfaldleikann að vopni01:27:30 - "Að ná betri tengingu"01:40:00 - Hafsjór af stöffi....

  32. 92

    Avatar (2009) & Avatar: The Way of Water (2022)

    Ofurþjarkurinn James Cameron hefur skipað sér í allsvakalegan sérflokk með að eiga þrjá titla á listanum yfir fimm tekjuhæstu kvikmyndir allra tíma. Það eru að sjálfsögðu Titanic og fyrstu tvær Avatar myndirnar, en þegar sú fyrri leit fyrst dagsins ljós hafði Cameron ekki gefið út bíómynd í heil 12 ár og liðu síðan 13 ár á milli Avatar myndanna sem nú skal aðeins kryfja áður en þriðja eintakið fær sitt sviðsljós.Kjartan og Tommi rýna í efnistök þessara gígantísku sci-fi fantasíuæintýramynda og skoða hvort meira leynist þarna sem nær út fyrir óumdeilanlegt sjónarspil. Netverjar hafa oft fullyrt að Avatar (e. "Strumpa-")myndirnar hafi ekki skilið eftir sig neitt svakalegt ‘kúltúrs-fótspor’ ef svo má segja, en Bíófíklatvíeykið kanna slík ummæli í þaula og ýmist annað sem þessum ævintýrum fylgir… þangað til þeir verða bláir í framan…Þá er bara að skottast yfir til Pandoru og gæðatesta viðveruna þar.Efnisyfirlit:00:00 - "Baby's First Cameron"06:56 - 'Anti-Netflix' upplifunin14:37 - Avatar 20:05 - Styttri eða lengri útgáfan?35:27 - Avatar: The Way of Water47:41 - 'Mo-Cap' ferlið og smáatriðin58:01 - Samantekt og framtíð

  33. 91

    Spurt og spilað: Bak við tjöldin, Bíóblaður eða Bíótöfrar?

    Einn þáttur. Tveir fastagestir. Þrjú spil. Fjórir við míkrafónana og hefst þá gæðaprófið um besta kvikmyndaspil þessa árs. Nýverið voru gefin út þrjú ólík spurningaspil þar sem áherslur hvers þeirra eru nokkuð mismunandi. Spilin heita Bak við tjöldin, Bíóblaður og Bíótöfrar.Kjartan og Tommi eru sestir niður með Atla Sigurjónssyni og Fannari Trausta til að (svo það sé pent orðað…) gæðatesta skítinn úr þessu.Hvaða spil mun bera höfuð og herðar yfir hin tvö? Hvert þeirra er síst? og hvaða lið mun sigra; A.K.A. (Kjartan & Atli) eða Travolta's Demons (Tommi & Fannar)?Hlustunin er sögunni ríkari, enda lengir hláturinn lífið. **Spyrjið bara Mel Brooks...Efnisyfirlit: 00:00: - A.K.A. vs. Travolta's Demons03:29 - Bak við tjöldin37:42 - Bíóblaður01:12:41 - Bíótöfrar02:16:25 - Samantekt

  34. 90

    Topp 5: Yorgos Lanthimos

    Yorgos Lanthimos, grískur furðufugl og mannfræðingur í anda, er kominn á skurðarborð Bíófíkla þar sem markmiðið er að skoða hvaða fimm titlar frá kauða bera mest af. Lanthimos hefur farið yfir víðan völl, frá búningadrama til vísindaskáldskaps og alls þess á milli; sennilega hvað þekktastur fyrir titlana Dogtooth, The Favourite og Poor Things. Íris er sest með þeim Kjartani og Tomma og bera allir saman sínar (fræðilega…) ólíku bækur. Þau skoða í senn hvað það er sem einkennir þennan grísk ættaða ‘auteur’ sem á rætur sínar að rekja til leikhússins og hefur gegnumgangandi gífurlegan áhuga að kreista fram krefjandi frammistöðu úr leikurum sínum, sér í lagi Emmu Stone. Þess ber líka að geta að Tommi ákvað að leggja í galna áskorun, sem lýsir sér í refsistilgangi til að reyna minnka enskusletturnar sínar.Eins og mannaparnir segja: Þetta verður eitthvað.Efnisyfirlit:00:00 - Af hverju Yorgos?23:27 - Dogtooth33:01 - Kinds of Kindness46:26 - The Killing of a Sacred Deer52:42 - Alps01:00:28 - The Favourite01:11:46 - Bugonia01:39:11 - The Lobster01:52:51 - Poor Things

  35. 89

    Eyes Wide Shut (1999)

    Svanasöngur leikstjórans Stanley Kubrick og í senn hans ‘bjartasta’ kvikmynd, í þeim skilningi að hún er uppfull af von um betri tíma. Þetta þykir sérlega umræðuvert af sögu sem dílar við hjónabandsbresti, tryggð, myrku öfl elítunnar og býður upp á eitt drungalegasta kynsvall fyrr eða síðar á hvíta tjaldinu.Tom Cruise leggur í eitt stórfurðulegt og draumakennt ferðalag um “Oz” (eða réttar sagt martraðarkenndu útgáfuna af New York) þar sem hann mætir hverri viðreynslunni á eftir annarri og ógrynni af furðufuglum. Á meðan þessu stendur liggur hugur hans á því hvort hjónaband hans við Nicole Kidman sé raunverulega að gliðna í sundur eða hvort hægt verði að stíga yfir þennan erfiða hjalla.Útkoman er vægast sagt lágstemmd en stórspennandi (en það er smekksatriði, vissulega…), eins og þeir Kjartan, Tommi og Atli Sigurjóns diskútera í þættinum að sinni. Þá ákvað Atli einnig að gefa hlustendum smá innsýn inn í sleggjudómana og volgu viðbrögðin sem myndin fékk um sumarið 1999 á meðan stærri málin koma líka til tals; eins og hvort Eyes Wide Shut teljist virkilega til jólamyndar… Lokið augunum fast og sperrið upp eyrun. Aðgangsorðið er ‘Fidelio’…. Efnisyfirlit:00:00 - 199906:41 - Tom Cruise 14:30 - Aðferðafræði Kubricks25:51 - Ekki allra…34:05 - “Traumnovelle”38:40 - Viðreynslurnar í “Oz”47:17 - Týndu tækifærin57:47 - “Fyrirlestur um einkvæni”

  36. 88

    Wicked (2024) & Wicked: For Good (2025)

    Aðdáendur söngleiksins Wicked biðu óþreyjufullir eftir því í tuttugu ár að bíómyndaútgáfa sögunnar komi út. Fyrri myndin var frumsýnd við gríðarlegar vinsældir í nóvember 2024 og sópaði meira að segja til sín hlass af Óskarsverðlaunum. Seinni hlutinn var tekinn upp á sama tíma og virðast viðbrögð vera misjöfn um hvor helmingurinn beri meira af, þó adáendur virðast heilt yfir vera massasáttir.Kjartan og Tommi tóku á móti Wicked-aðdáendunum Hönnu Töru og Eyrúnu Sif (ásamt leynigesti) til að skoða ævintýraheiminn Oz í margs konar formum; hvernig bíóaðlögunin á Wicked - í allri sinni fimm klukkustunda dýrð - breytir, bætir og kætir, auk þess að meta hápunktana, lægðirnar og helstu slagarana. Upp með kústinn, galdrahattinn og töfrasprotann og njótið heil, en ekki gleyma að pússa glerskóna.Efnisyfirlit:00:00 - Broadway og með’ví06:04 - Wicked: Part 115:41 - Wicked: For Good 23:03 - Höskuldarviðvörun32:02 - “Skrilljón vísbendingar”40:13 - Samantekt

  37. 87

    Topp 10: Atli Freyr

    Hayao Miyazaki, Paul Verhoeven, Michael Crichton, Mel Brooks, Sam Raimi, Ridley Scott, Vangelis og (vitaskuld!) John Carpenter. Þetta er aðeins brot af þeim snillingum sem koma til umræðu í þætti þessum, þar sem Atli Freyr - hinn tíði fastagestur og óformlegur þriðji þáttastjórnandi Bíófíkla - fær sviðsljósið og kynnir betur smekk sinn af mikilli innlifun. Atli leiðir Kjartan og Tomma í gegnum sinn lista yfir tíu uppáhalds kvikmyndir… þó megi gera ráð fyrir smávægilegu svindli.Efnisyfirlit:00:00 - Heimavinnuleysið05:02 - “Honorable mentions” 08:14 - Spaceballs 11:43 - Starship Troopers19:33 - Transformers: The Movie20:45 - Congo32:25 - Friday the 13th… 36:44 - In the Mouth of Madness40:22 - Army of Darkness50:17- Kiki’s Delivery Service56:15 - Blade Runner 01:06:09 - The Thing

  38. 86

    Moulin Rouge! (2001)

    Rauða myllan úr smiðju stílistans Baz Luhrmann hefur heillað og fælt frá margan einstaklinginn í gegnum tæpan fjórðung af öld. Sumir syngja, klappa, stappa og frussugrenja yfir rómantíkinni hjá bóhemanum Christian og gleðikonunni Satine á meðan aðrir fussa og sveia líkt og grautfúli Hertoginn sjálfur. Sigga Clausen er aftur snúin í stúdíóið til Kjartans og Tomma til að ræða þennan einstaka og geysivinsæla “glymskrattasöngleik”. Það var hennar frumkvæði að Bíófíklar myndu gægjast í þetta partý og svipast á bakvið rauðu tjöldin. Þá er hlustandi hvattur til að staupa í sig Absinthe-skotið og sækja klútana.  Þetta er hin eina sanna Moulin Rouge!Efnisyfirlit:00:00 - Dómsdagur Hefnenda07:10 - Opnunarmynd Smárabíós16:37 - Þessi galni strúktúr…26:08 - Eina ‘frumsamda’ lagið34:17 - “Rauða tjalds-þríleikurinn”41:06 - Hvað vilja allir? 51:03 - Hatur á söngleikjum57:26 - ‘Pan og scan’ hugleiðingar01:10:38 - Einelti í Hollywood

  39. 85

    The Running Man (2025)

    Glen Powell bregður sér í ’Tom Cruise gírinn’ í nýjustu myndinni eftir breska nördagullið Edgar Wright. Þá fetar Powell líka lauslega í fótspor Arnolds Schwarzenegger í þessari uppfærsluaðlögun á samnefndri skáldsögu eftir Stephen King… sem gerist einmitt árið 2025.Stórskotalið leikara skýtur hérna upp kollinum um allar trissur til að umkringja Powell með alls konar gúmmelaði og orku. Mætti jafnvel segja að Wright sé sjálfur kominn í allt annan gír en venjulega. En hefur hann enn Wright-stöffið?Hingað til hefur það sennilega ekki leynt sér að Bíófíklar eru ágætir aðdáendur leikstjórans, en þeir Kjartan, Tommi og Atli Freyr skelltu sér á The Running Man og (en ekki hvað?…) hlupu beint í stúdíó Podcast stöðvarinnar til að hljóðrita upplifun sína.  Efnisyfirlit:00:00 - Bilanir í Álfabakka08:43 - The Punning Man16:48 - Filmógrafía Wrights25:34 - The Running Man ’2531:41 - Reglurnar eru…40:15 - Colman Domingo!47:02 - Léttspillar hér54:21 - Samantekt

  40. 84

    Frankenstein (2025)

    Frankenstein hefur í margra ára raðir verið draumaverkefni leikstjórans Guillermo Del Toro og - þökk sé Netflix - hefur aðlögun hans loks orðið að veruleika.Með þessari einlægu og fallegu aðlögun sem og persónulegri túlkun leikstjórans hefur öllu verið tjaldað til, með breytingum sem kunna að falla í kramið hjá áhorfendum eða jafnvel bara alls ekki. Kjartan, Tommi og Atli Freyr koma sér í gotneskar stellingar og rýna í það sem óhætt er að kalla eina umtöluðustu stórmynd þessa árs - og hvers vegna hún er svona mikil gullkista af meme’um (e. “mímum”).Efnisyfirlit:00:00 - Sexý gotneskir hönkar…06:02 - Mátturinn hjá Del Toro14:23 - Cameron kom til bjargar…24:25 - Nálgun á klassískri skepnu31:49 - Rauðvín og víðlinsur41:31 - Praktíska hönnunin48:07 - Ofbeldi milli kynslóða59:54 - Samantekt

  41. 83

    Predator: Badlands (2025)

    Predator myndirnar eru orðnar eins margar og þær eru ólíkar í gæðum, þó oft vilji margur einstaklingurinn meina að flestar þeirra séu ekkert sérstakar. Hins vegar er víða viðurkennt að fyrrum bíórýnirinn Dan Trachtenberg hafi fundið hina langþráðu orku- og gæðasprautu sem serían þurfti eftir að hann fékk taumana á henni með Prey og Killer of Killers. En þá er Badlands næsta skrefið í þeirri vegferð hjá leikstjóranum sem siglir trúlega í eitthvað enn metnaðarfyllra.Kjartan, Tommi, Atli Freyr og Birgir Snær skoða hvort Badlands sé annað kærkomna eintakið í myndabálkinn eða enn eitt feilsporið - og hvort ræman komist hjá svokallaða Disney-stimplinum.Efnisyfirlit:00:00 - Um Portal Trachtenbergs03:37 - Predator og The Predator12:46 - AvP og Predators20:26 - Prey26:52 - Predator: Killer of Killers34:24 - Badlands án spilla47:17 - Leggir og léttir spillar54:15 - Samantekt (og óvæntur gestur)

  42. 82

    Topp 10: Auður Svavars

    Hvað er langt síðan þú horfðir síðast á The Princess Bride? Er Reservoir Dogs kannski besta Tarantino-myndin? Hvers vegna ákvað Michael Heneke að endurgera Funny Games fyrir vestrænan markað?Auður Svavarsdóttir er aftur sest í stúdíóið til Kjartans, Tomma og Atla og leiðir hún þá í gegnum sínar Topp 10 uppáhalds ‘repeat viewing’ kvikmyndir. Við tökurnar veit megnið af strákunum ekki neitt hverju skal búast við, en kostulegar umræður spinnast út frá fjölbreyttum lista Auðar, og hvað gerir þessa tíu titla svona persónulega fyrir henni.Efnisyfirlit:00:00 - Saló í Bíó Paradís06:55 - Festen 11:12 - Yellow Submarine16:06 - The Craft21:40 - Reservoir Dogs34:53 - Funny Games44:51 - Cry Baby51:52 - The Rocky Horror Picture Show58:50 - The Princess Bride01:05:42 - Zodiac01:10:32 - Harold and Maude

  43. 81

    Mortal Kombat (1995) & Mortal Kombat: Annihilation (1997)

    Flestir þekkja til tölvuleikjaseríunnar, jafnvel fólk sem hefur aldrei spilað stakan Mortal Kombat leik. Í áratugaraðir hefur hann þótt einn sá vinsælasti og vantar alls ekki úrvalið af bíómyndum og teiknimyndum. Vörumerkið hefur haldist gífurlega sterkt en á miðjum tíunda áratugnum var lítið um kvikmyndaðar aðlaganir á tölvuleikjum en ljóst er að Paul W.S. Anderson myndin frá 1995 hafi malað gull í miða- og myndbandssölu víða um heim. Ekki er þó hægt að segja það sama um framhaldið sem lenti með vandræðalegum skelli tveimur árum eftir útgáfu forverans. Án þess að skafa neitt frekar af því er framhaldsmyndin af mörgum talin ein versta kvikmynd fyrr eða síðar og hafa áhorfendur lengi deilt um hvort það spili inn í skemmtanagildi hennar eða hvort hún sé hreinlega bara algjör viðbjóður.Bíófíklarnir Bjarni Gautur og Sindri Gretars setja sig í ýktar stellingar með Tomma til að ræða hæðirnar, lægðirnar, trollið hjá senuþjófinum Christopher Lambert, hinn óneitanlega kraft tónlistarinnar í myndunum báðum og hvort sé eitthvað sé viðbjargandi í slakari ræmunni - eða jafnvel endurræsingunni frá 2021 (því, jú, það er víst önnur ‘Mortal Kombat II’ á leiðinni…).Upp með hnefana og eyrun. Þetta verður (undarlega) blóðlaust…Efnisyfirlit:00:00 - “Ekkert blóð…”05:12 - Engin lógík, bara gaman10:05 - Íkoníska þemað og Kano hreimurinn15:44 - Lore’ið í tölvuleiknum22:10 - Paul W.S. Anderson heilkennið25:22 - Mortal Kombat: Annihilation…32:00 - “Hvað er að gerast í þessari mynd!?”40:55 - “Checkov’s Animality”47:07 - Þróun slagsmálasena53:01 - Hvað varð um John R. Leonetti? 58:24 - Stærsta gæðahrapið?

  44. 80

    Spurt og spilað: Reynt við skepnur

    Ótrúlega handahófskenndir og tilgangslausir spurningaleikir eru oft hrikalega skemmtilegir og nú skal hefja nýjan slíkan lið. Annað en á við um ‘Súrt og svarað’ er þó hægt að vinna eitthvað með nú umræddum leik og eru einnig rétt svör sem leitast er eftir.Kjartan hlóð í þennan frussuskemmtilega leik sem skiptist í þrjá flokka og nýtur hann þess óneitanlega í botn að fylgjast með Tomma og Atla Frey klóra sér í sitthvorum hausnum yfir flippinu öllu.Hlustandi er hvattur til að taka þátt og vera með í dauðu þögnunum… Efnisyfirlit:00:00 - “Orð þeirra eru lög”04:13 - Hemsworth og geimverurnar09:14 - Þrýstingur væntinga13:11 - “Með stutt, ljóst hár…”21:27 - Betri en Avatar?25:38 - Gervigreind og Musk’ismi30:06 - F-bombur…35:27 - Úr gríni í heimildarmynd41:26 - Næstu sex… (leikarar)55:52 - Um Jurassic Park…01:08:49 - Um The Thing01:16:00 - Um Cloud Atlas01:29:55 - Niðurstaða

  45. 79

    The Fly (1986)

    Bíófíklar setja sig í Hrekkjavökustellingar og ræða eina af betri myndum Davids Cronenberg í þaula. Hryllingsmyndin The Fly með Jeff Goldblum og Geenu Davis er allmörgum kunnug en mögulega gæti annað átt við um þá mörgu staðreyndarmola sem henni fylgja. Kjartan, Tommi, Atli Freyr og Frikki búa sig undir ógeðið og skiptast á að lofsyngja þessa vönduðu en sögulega ógeðsllegu bíómynd. Hlustandi er í klessu hvattur til að njóta með og fræðast meira um þennan fræga harmleik, sem er í senn fullkomlega gilt dæmi um að endurgerðir þurfi ekki að vera alltaf af hinu slæma.Út með vængina og niður með kjálkana, þetta verður tryllt…Efnisyfirlit:00:00 - Undirbúningur og uppruni09:06 - Afbrýðissemi Goldblums14:15 - Myndlíkingar með brellum22:37 - Seinni bavíaninn…29:41 - Um body-horror’inn…38:35 - Þegar skepnan tekur yfir47:07 - The Fly II (1989)58:20 - “Þessi fer í safnið!”01:04:47 - Samantekt

  46. 78

    Fight Club (1999)

    Þrátt fyrir að fyrsta regla Slagsmálaklúbbs David Fincher sé sú að það megi ekkert ræða hann, er nærri ómögulegt að ræða ekki þessa kvikmynd sem víða er talin ein sú áhrifamesta frá seinni hluta tíunda áratugarins.Myndin fjallar um skrifstofumann sem þjáist af svefnleysi sem leitar allra leiða til þess að breyta lífi sínu. Þegar hann kemst í kynni við sápugerðarmann sem undirbýr slagsmálaklúbb tekur hversdagurinn á sig aðra mynd og hlutirnir eru alls ekki eins og þeir virðast í fyrstu. Það þarf ekki að leita langt til að sjá að ekki var tekið vel í Fight Club á sínum tíma.Myndin hlaut dræma aðsókn og voru gagnrýnendur annaðhvort á því að hér væri um að ræða meistaraverk eða hrokafulla þvælu. Margir sáu hana sem kvikmynd sem væri að hvetja til slagsmála, hryðjuverka og tja… extreme karlmennsku, á meðan aðrir ræddu um myndina í þaular þar sem hún er akkúrat krítík á karlmennsku, neytendur, hjarðarhegðun o.fl.Til langs tíma litið er „költ“ staða myndarinnar ótvíræð og eru fáar myndir frá leikstjóranum Fincher sem hefur verið jafn oft vitnað í. Þau Kjartan, Tommi og Auður Svavarsdóttir brjóta nú fyrstu tvær reglur klúbbsins og ræða þessa merkilega misskildu ræmu og ýmsar merkilegar staðreyndir um hana.Undir lok þáttar birtist jafnframt óvæntur fastagestur (hví ekki?) Mögulega er hann ímyndun.Efnisyfirlit:00:00 - Að ræða myndina “pólitískt”05:32 - Fullkomin uppskrift að geðrofi10:03 - Leyfið til að gráta15:59 - Það má ekki spyrja spurninga24:13 - “Er í lagi?”27:16 - Kínverski endirinn32:09 - “Fight Club er Disney mynd”39:17 - “Engir stólar á setti”43:06 - Staðreyndir sturlaðar54:14 - Upphaf og endir58:38 - Óvæntur gestur mætir

  47. 77

    Súrt og svarað: Skrímslin í kjallaranum

    Hvernig ætli það sé að vera maki Pearl? Hvaða bíóskrímsli væri ömurlegast að þurfa að búa með sem nágranna? Hvaða franchise-framlengingar mega endanlega deyja út? Frikki fastagestur er sestur með Kjartani og Tomma til að svara og viðra þessar og miklu fleiri snarsteiktar pælingar. Sumar hverjar spurningarnar eru innsendar og endurnýttar, en þó skal einu lofa; þessar eru hressar. Sérstaklega þá í ljósi þess að inn í þetta blandast alls konar fjölbreytni í svörum og svölum útúrdúrum.Sjáum hvernig Frikka gengur.Beint í ruglið.Efnisyfirlit:00:00 - Frikki og Borderlands01:20 - “The Thing í kjallaranum”07:07 - Pearl eða Misery?09:04 - Franchise-framlengingar19:05 - Að vera fastur í senu…25:21 - Slither eða Brundlefly?29:24 - Gæðahrap og sokkabrúður (aftur…)35:41 - Söngleikurinn Saló39:06 - Framhaldsmyndir eður ei43:26 - Að kljást við…46:00 - Hvaða ‘final girl’ vinnur í slag?47:46 - “Einni senu of löng”…55:47 - Neo, Morpheus eða Trinity?58:28 - Versta rímeikið… (klassískt)01:02:52 - Stúdíó Rogens01:07:30 - ‘Kicking & Screaming’

  48. 76

    Topp 5: Paul Thomas Anderson

    Leikstjórinn og handritshöfundurinn Paul Thomas Anderson (P.T.A.) hefur aldrei gert sömu myndina tvisvar. Langt í frá. Filmógrafía þessa manns hefur sjaldan talist til mikilla stórvinsælda hjá meginstraumnum (ekki nema Boogie Nights teljist þar með) en óneitanlega hefur hann átt sér dygga aðdáendur á meðal kvikmyndaáhugafólks - og ekki síður Óskarsakademíunni... Bíófíklarnir Kjartan, Tommi og Óli Bjarki tóku nýverið ‘P.T. Ander-þon’ og eru mættir til að bera saman topplista sína, auk þess að taka létta krufningu á því hvað það er sem einkennir ‘P.T.A.-mynd’ og hans umræðuverðu fjölbreytni. 

Efnisyfirlit:00:00 - *hvað* er P.T.A-mynd?11:40 - The Master21:20 - Magnolia34:00 - Boogie Nights46:06 - There Will Be Blood54:32 - Punch-Drunk Love01:02:12 - Phantom Thread01:13:00 - Hvað með hinar?

  49. 75

    One Battle After Another (2025)

    Þeir Leonardo DiCaprio og Paul Thomas Anderson snúa saman bökum sínum ásamt stórskotaliði þekktra leikara og öflugra nýliða. One Battle After Another hefur verið mikið í umræðunni og ástæðurnar kunna að vera tvær; Hún er mjög vel tímasett pólitísk ádeila og er af ófáum talin með betri myndum ársins. Þess að auki er um að ræða langdýrustu mynd Andersons til þessa.Við mækinn er sestur Óli Bjarki Austfjörð með Kjartani, Atla Frey og Tomma til að stúdera meintu gæðin og umrædda hæp þessarar myndar. Og vissulega eru tengsl hvers og eins við PTA metin í samhengi þess hvar hún raðast upp við aðrar gæðamyndir frá þessum ágæta leikstjóra.Samantektin er spoiler-laus fyrsta hálftímann. Nánar í yfirlitinu að neðan.Efnisyfirlit:00:00 - Jól hjá P.T.Aðdáendum08:48 - Hvergi fengið að slaka16:08 - Fjármagnið á skjánum21:57 - Pólitík og eltingarleikir29:09 - “Svo blatant satíra”33:33 - Spoiler umræða hefst...39:55 - Ævintýri Willu46:45 - “Svo lítill í sér”51:10 - Að leika með hárinu54:13 - Samantekt

  50. 74

    Topp 5: Tölvuleikjamyndir

    Arnór Steinn Ívarsson, úr hlaðvarpinu Tölvuleikjaspjallið, er mættur stálhress í stúdíóið til Bíófíkla (sem kaldhæðnislega er sama stúdíó og hýsir fyrrnefnda hlaðvarpið) til að ungan en furðulegan undirflokk: Tölvuleikjakvikmyndir, eða réttar sagt, aðlaganir á tölvuleikjum í bíóformi.En hver er metríkin eða kríterían fyrir slíkar myndir? Snýst þetta um hversu trú myndin er þeim tölvuleik (eða seríu) sem hún er byggð á eða einfaldlega hvort myndin standi sjálfstæð sem kvikmyndaupplifun?Arnór, Kjartan og Tommi reyna að svara eitthvað af þessum spurningum og mætti hver þeirra með sinn eigin stórfurðulega lista. Því ekki var beinlínis úr haug af gæðaefni að velja…Efnisyfirlit:00:00 - Meðmæli Arnórs02:05 - Borderlands eða Mein Kraft?06:43 - Að grípa í strá…16:03 - Warcraft (2016)19:22 - Need for Speed (2014)23:23 - The Angry Birds Movie (2016)25:27 - The Super Mario Bros. Movie (2023)31:42 - The Super Mario Bros. (1993)37:31 - Sonic/Sonic 2/Sonic 343:04 - Ratchet & Clank (2016)46:01 - Mortal Kombat (1995)55:55 - Street Fighter (1994)01:02:22 - Pokémon: The First Movie (1999)01:09:00 - Samantekt

Type above to search every episode's transcript for a word or phrase. Matches are scoped to this podcast.

Searching…

We're indexing this podcast's transcripts for the first time — this can take a minute or two. We'll show results as soon as they're ready.

No matches for "" in this podcast's transcripts.

Showing of matches

No topics indexed yet for this podcast.

Loading reviews...

ABOUT THIS SHOW

Hlaðvarp um bíódellu.Umsjónarmenn eru Kjartan Rúnarsson og Tómas Valgeirsson.

HOSTED BY

Bíófíklar Hlaðvarp

CATEGORIES

URL copied to clipboard!