EPISODE · Jan 5, 2021 · 1H 11M
Frá fjárhagserfiðleikum til fjárhagslegs sjálfstæðis. Milljónamæringurinn í næsta húsi - Kolbeinn Marteinsson
from Leitin að peningunum · host Umboðsmaður skuldara
Kolbeinn Marteinsson er einn eiganda almannatengsla- og kynningarfyrirtæksins Athygli. Hann er jafnframt einn stofnenda og eigenda Útilegukortsins og fleiri fyrirtækja í ferðaþjónustu. Kolbeinn ræðir í þessum þætti um sín fjármál en hann er í dag mikill áhugamaður um fjármál. Þessi áhugi kviknaði samt í kjölfar mjög erfiðra aðstæðna. Á árunum eftir hrun urðu fjármál Kolbeins rústir einar eftir að fyrirtæki sem hann átti fór í gjaldþrot og skuldir hans jukust mjög mikið. Á sama tíma hrundu tekjur samhliða minni umsvifum í hagkerfinu eftir hrun. Í kjölfarið þurfti hann að horfast í augu við eigin fjárhagsvanda og leggja í vinnu í að skipuleggja fjármál sín og vinna sig úr skuldavandanum. Hægt og rólega fór hann að sjá til sólar. Samtímis fór hann að leggja fyrir sparnað og fá raunverulegan áhuga á fjármálum og má því segja að fjárhagserifðleikarnir hafi verið honum og fjölskyldu hans mikil gæfa. Í dag stefna Kolbeinn og kona hans að skuldleysi innan skamms og fjárhagslegu sjálfstæði. Í síðari hluta þessa þáttar ræðir Kolbeinn um bókina ,,The Millionaire Next Door." Í þeirri bók sem kom út árið 1996 og var endurútgefin 2010 voru fjöldi milljónamæringa í Bandaríkjunum rannsakaðir með það að markmiði að skoða hvað í hegðun þeirra og færni varð til þess að þeir efnuðust. Þar kemur margt á óvart og margir hlutir þar sem við hér á Íslandi getum tileinkað okkur. Kolbeinn heldur úti hlaðvarpinu Firmað ritar ásamt Kjartani Erni Sigurðssyni þar sem þeir ræða um bækur sem tengjast viðskiptum, árangri og markmiðum.Kolbeinn ræddi um áhugaverð blogg aðila sem hafa náð langt í FIRE lífsstílnum:https://www.mrmoneymustache.com/https://rootofgood.com/Umsjón: Gunnar Dofri Ólafsson Þessi þáttur er framleiddur af umboðsmanni skuldara með stuðningi frá félagsmálaráðuneytinu.
Embed this episode
What this episode covers
Kolbeinn Marteinsson er einn eiganda almannatengsla- og kynningarfyrirtæksins Athygli. Hann er jafnframt einn stofnenda og eigenda Útilegukortsins og fleiri fyrirtækja í ferðaþjónustu. Kolbeinn ræðir í þessum þætti um sín fjármál en hann er í dag mikill áhugamaður um fjármál. Þessi áhugi kviknaði samt í kjölfar mjög erfiðra aðstæðna. Á árunum eftir hrun urðu fjármál Kolbeins rústir einar eftir að fyrirtæki sem hann átti fór í gjaldþrot og skuldir hans jukust mjög miki...
Ready to play
Frá fjárhagserfiðleikum til fjárhagslegs sjálfstæðis. Milljónamæringurinn í næsta húsi - Kolbeinn Marteinsson
No transcript for this episode yet
Similar Episodes
No similar episodes found.