EPISODE · Mar 6, 2023 · 1H 15M
Gullkastið - 7up
from Gullkastið · host Kop.is
Af öllum Liverpool liðumm sögunnar vann þetta lið stærsta sigur sögunnar gegn þeim! Ekki bara var þetta Man Utd heldur var þetta Man Utd á bullandi siglingu með tilheyrandi moldviðri í allan vetur. Stærsta tap United í Úrvalsdeildinni og raunar frá því vel fyrir heimsstyrjöldina kom á Anfield Road í gær. Þetta tímabil hættir ekki að vera skrítið og fullt af öfgum í báða enda. Þetta er ekki einu sinni stærsti sigur tímabilsins, klárlega sá sætasti samt. Fyrir helgina vann Liverpool góðan 2-0 sigur og fékk jafn mörg stig fyrir það, eins asnalegt og það nú er. Tvö mörk í seinni hálfleik og það bara seint í hálfleiknum. Já og Liverpool skoraði sex mörk í seinni hálfleik gegn United, það var einu sinni vesen. Næst er það Bournemouth, Liverpool vann þá 9-0 síðast… Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: SSteinn og Maggi Þökkum að vanda samstarfsaðilum þáttarins fyrir að hjálpa okkur að halda síðunni úti. Egils Gull / Húsasmiðjan / Miðbar / Jói Útherji / Ögurverk ehf
Embed this episode
Ready to play
Gullkastið - 7up
No transcript for this episode yet
Similar Episodes
No similar episodes found.
Similar Podcasts
No similar podcasts found.