Skip to content
Gullkastið – Algjört þrot á Anfield episode artwork

Mar 16, 2026 47 min

Gullkastið – Algjört þrot á Anfield

from Gullkastið Hosted by Kop.is

iverpool afrekaði það bara að vinna ekki þetta Tottenham lið sem kom inn í leikinn með eitt minnsta sjálfstraust sem nokkuð lið hefur verið með í sögu ensku úrvalsdeildarinnar og þar að auki með 13 leikmenn fjarverandi. Þeir hlupu 9 km meira en Liverpool í þessum leik þrátt fyrir þetta og höfðu næga orku í lokin til að kvitta fyrir mark Liverpool sem auðvitað kom úr föstu leikatriði því liðið tengir varla saman venjulega sókn núorðið. Þetta var næsti deildarleikur á eftir tapinu gegn Wolves um daginn, einu versta liði í sögu ensku úrvalsdeildarinnar fram að þeim leik. Viðbrögð fjölmiðla og ekki síst stuðningsmanna Liverpool hafa verið í takti við þetta sem eðlilegt er. Félagið virkar fast í handbremsu innan sem utan vallar! Næsta verkefni er seinni leikurinn gegn Galatasaray en Liverpool afrekaði að sjálfsögðu að tapa fyrri leiknum gegn þeim í síðustu viku, það var í annað skipti í vetur sem Liverpool tapaði á þeirra heimavelli. Takist Liverpool ekki að vinna Galatasaray í þremur tilraunum hefur liðið nákvæmlega ekkert að gera í Meistaradeild Evrópu. Minnum annars áfram á Árshátíð Liverpool klúbbsins í 21.mars í Kaplakrika sem við hvetjum alla til að tryggja sér miða á. Miðasala fer fram í gegnum abler Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: SSteinn Þökkum að vanda samstarfsaðilum þáttarins fyrir að hjálpa okkur að halda síðunni úti: Gull Áfengislaus / Verdi Travel / Ögurverk ehf

Episode details come from the podcast's RSS feed.

Embed this episode

Ready to play

Gullkastið – Algjört þrot á Anfield

0:00 47:57

No transcript yet.

Requests help us decide what to transcribe next.

Frequently asked questions

How long is this episode of Gullkastið?

This episode is 47 minutes long.

When was this Gullkastið episode published?

This episode was published on March 16, 2026.

Can I download this Gullkastið episode?

Yes. Use the download control on the episode player to save the publisher-provided media file.