Hann dó eins og hann lifði... episode artwork

EPISODE · Jan 24, 2016 · 54 MIN

Hann dó eins og hann lifði...

from Rokkland

....eins og listaverk í sjálfu sér. Við erum auðvitað að tala um David Bowie sem lést tveimur dögum eftir að varð 69 ára og sendi frá sér nýjustu plötuna sína - Black Star. Tónlist hefur svo mikil áhrif á okkur á allan mögulegan hátt, og þó svo David Bowie hafi ekki þekkt mig og þig ? þá þekktum við hann. Hann söng okkur í svefn og í stuð. Við höfum dansað með honum ? við sáum hann í bíó, sáum hann í Skonrokki og á MTV, heyrðum í honum í útvarpinu, sáum hann á tónleikum. Við fylgdumst með hans sí-kviku hreyfingum og dáðumst að honum í BRAVO og límdum myndir af honum upp á vegg á Akranesi, Akureyri og í Keflavík. Hann var vinur okkar....þó svo hann hafi ekki þekkt okkur...þannig. Í þessum fyrri þætti af tveimur skauta ég yfir síðustu 10 árin í lífi Bowie og síðan fyrstu árin. Bowie segir sjálfur frá einu og öðru, Tony Visconti upptökustjóri og vinur kemur við sögu, en hann er einn nánasti samstarfsmaður Bowie frá upphafi og allt til enda. Hann var með honum á "fyrstu" plötunni - Space Oddity 1969 og líka á Black Star. Svana Gísladóttir sem býr í London og gerði myndböndin við lögin Black Star og Lazarus með Bowie stuttu áður en hann lést kemur líka við sögu, og eins Ragnheiður Hanson sem féll 13 ára gömul fyrir manninum og söngvaranum og stóð síðar að hans einu heimsókn til Íslands - tónleikunum í Laugardalshöll 1996. Og svo er það auðvitað tónlistin - maður lifandi!

NOW PLAYING

Hann dó eins og hann lifði...

0:00 54:17

No transcript for this episode yet

We transcribe on demand. Request one and we'll notify you when it's ready — usually under 10 minutes.

No similar episodes found.

No similar podcasts found.

Frequently Asked Questions

How long is this episode of Rokkland?

This episode is 54 minutes long.

When was this Rokkland episode published?

This episode was published on January 24, 2016.

What is this episode about?

....eins og listaverk í sjálfu sér. Við erum auðvitað að tala um David Bowie sem lést tveimur dögum eftir að varð 69 ára og sendi frá sér nýjustu plötuna sína - Black Star. Tónlist hefur svo mikil áhrif á okkur á allan mögulegan hátt, og þó svo...

Can I download this Rokkland episode?

Yes, you can download this episode by clicking the download button on the episode player, or subscribe to the podcast in your preferred podcast app for automatic downloads.
URL copied to clipboard!