EPISODE · Aug 10, 2026 · 1H 28M
Heilandi garðar við sjúkrahús – lúxus eða nauðsynlegir innviðir? Hvernig er staðan við nýja Landspítalann? Guðfinna Mjöll Magnúsdóttir og Svanhildur 'Sasa' Sigurðardóttir
from Heilsuhlaðvarp Lukku & Jóhönnu Vilhjálms · host heilsuhladvarp
Heilandi garðar við sjúkrahús – lúxus eða nauðsynlegir innviðir? Hvernig er staðan við nýja Landspítalann? Í þessum þætti ræðum við við Guðfinnu Mjöll Magnúsdóttur og Svanhildi „Sösu“ Sigurðardóttur um heilandi garða og mikilvægi náttúrunnar í og við sjúkrahús. Guðfinna skrifaði á sínum tíma lokaritgerð um heilandi garða og möguleika þeirra á Íslandi og hefur lengi haft sérstakan áhuga á því hvernig græn svæði, dagsbirta og tenging við náttúruna geta stutt við líðan og bata sjúklinga – en einnig aðstandenda og heilbrigðisstarfsfólks. Sasa kemur að málinu frá öðru sjónarhorni. Hún er sjálf að glíma við krabbamein og fundið á eigin skinni hversu mikil þörf getur verið fyrir að komast út úr klínísku umhverfi spítalans, fá ferskt loft og vera í grænu og róandi umhverfi. Facebook-færsla sem hún skrifaði um málið vakti mikil viðbrögð – ekki síst frá heilbrigðisstarfsfólki. Leiðir Guðfinnu og Sösu lágu saman í baráttunni fyrir því að heilandi garðar verði teknir alvarlega í skipulagi nýja Landspítalans. 🌿 Hvað eru heilandi garðar og hvað skilur þá frá venjulegum útisvæðum? 🏥 Af hverju eru slík svæði í auknum mæli talin hluti af grunninnviðum nútímasjúkrahúsa en ekki bara falleg viðbót? 🧠 Hvaða áhrif geta náttúra, dagsbirta og gróður haft á streitu, taugakerfið og líðan fólks í veikindum? ❤️ Hvernig upplifði Sasa sjálf þörfina fyrir náttúru og græn svæði á meðan hún gekk í gegnum krabbameinsmeðferð? 🌱 Hvernig þarf að hanna heilandi garða svo þeir nýtist raunverulega sjúklingum – líka fólki með skerta hreyfigetu eða mjög veikum einstaklingum? 🏗️ Og stóra spurningin: Hvernig er staðan við nýja Landspítalann? Hefur verið gert nægilegt ráð fyrir heilandi görðum og grænum svæðum – og er hætta á að tækifærið glatist ef ekki er brugðist við áður en uppbyggingin gengur lengra? Við ræðum hvort við þurfum að endurhugsa sjálfa hugmyndina um sjúkrahús – frá því að vera eingöngu staður þar sem sjúkdómar eru meðhöndlaðir yfir í umhverfi sem í heild sinni styður við bata, vellíðan og mannlega reisn. 🙏 Samstarfsaðilar Heilsuhlaðvarpsins Við þökkum kærlega samstarfsaðilum okkar fyrir samstarfið og stuðninginn: 🌱 Bíóbú — lífrænar íslenskar mjólkurvörur úr íslenskri mjólk með betri fitusýrum en hefðbundnar mjólkurvörur. Heimasíða: www.biobu.is (biobu.is) Elskum lífrænu jógúrtina og einnig lífræna ísinn hjá Skúbb. 🏋️ Hreyfing — heilsurækt, þjálfun, spa og þjónusta fyrir fólk sem vill hlúa að líkama og vellíðan. Spa-ið þar er einstök upplifun - og svo er hægt að skrá sig í sérstakt heilsuprógramm og versla heilsuvörur á vefsíðunni. www.hreyfing.is (Hreyfing - Finndu muninn) 🌱 Greenfit – Heilsan þín á ekki að vera ráðgáta! Heilsumælingar Greenfit eykur aðgengi almennings á mælingum og upplýsingum sem gefa þér innsýn í heilsuna og upplýsingar um hvernig má bæta stöðuna. www.greenfit.is 🛒 Nettó — frábært úrval lífrænna afurða, matvæla, vítamína og hreinlætisvara sem styðja við heilsu á góðu verði í verslunum um allt land. Vekjum athygli á hydroxyapatite tannkremi og frábæru úrvali af lífrænum vörum og vítamínum. Heimasíða: www.netto.is (netto.is) 💧 GeoSilica — íslensk steinefni úr jarðhitavatni, með áherslu á náttúrulegar og hreinar vörur. Vörur á heimsmælikvarða! Kísillinn styður hár, húð, neglur, bein og liðamót á sjálfbæran og hreinan hátt – án aukaefna. Heimasíða: www.geosilica.is (GeoSilica Iceland) ⚡ Happy Hydrate — steinefnadrykkir með natríum, kalíum og magnesíum sem styðja við vökvajafnvægi og vöðvastarfsemi. Minnum sérstaklega á happy hydrate með creatini sem styður einnig við heilaheilsu. Heimasíða: www.happyhydrate.is (Happy Hydrate IS) 🎯 Markmið okkar í Heilsuhlaðvarpinu hefur alltaf verið að fræða, vekja áhuga og kynna leiðir sem geta stutt fólk á sinni heilsuvegferð. Því er sérstaklega ánægjulegt að eiga samstarf við fyrirtæki sem eru einnig á þeirri braut.
Embed this episode
Ready to play
Heilandi garðar við sjúkrahús – lúxus eða nauðsynlegir innviðir? Hvernig er staðan við nýja Landspítalann? Guðfinna Mjöll Magnúsdóttir og Svanhildur 'Sasa' Sigurðardóttir
No transcript for this episode yet
Similar Episodes
No similar episodes found.
Similar Podcasts
No similar podcasts found.