EPISODE · Feb 15, 2026 · 1H 49M
Hver er Bad Bunny og hver er Ívar Ben?
from Rokkland
Í Rokklandi vikunnar kynnumst við Jarðfræðiprófessornum Ívari Ben sem var að senda frá sér sína fyrstu plötu – og á vinyl. Hann er búinn að vera að búa til lög árum saman en svo vatt þetta upp á sig og nú er komin út plata. En í fyrri hluta þáttarins kynnumst við Bad Bunny sem vakti mikla athygli fyrir skemmtiprógrammið sem boðið var upp á í hálfleik á Superbowl í bandaríska fótboltanum síðasta sunnudag – Ofurskálinni. Þetta 13 mínútna skemmtiatriði Bad Bunny frá Puerto Rico hefur skipt fólki í fylkingar og einn af þeim sem er óánægður er foringinn í hvíta-húsinu í Bandaríkjunum sem sagði á samfélagsmiðlinum sínum að þetta atriði hafi verið eitt það versta frá upphafi skemmtiatriða á Superbowl og móðgun við mikilleika Bandaríkjanna. Þá hafi dansatriðin verið ógeðsleg, sérstaklega fyrir börnin sem horfðu á. „það skilur enginn orð af því sem þessi gaur segir“ sagði hann líka – en hann söng á spænsku sem er hans tungumál og móðurmál eins og c.a. 45 milljóna bandaríkjamanna – c.a. 13% bandarísku þjóðarinnar.
What this episode covers

NOW PLAYING
Hver er Bad Bunny og hver er Ívar Ben?
No transcript for this episode yet
Similar Episodes
No similar episodes found.
Similar Podcasts
No similar podcasts found.