EPISODE · Jun 1, 2021 · 1H 43M
Hvernig verð ég betri samningamaður? - Aðalsteinn Leifsson
from Leitin að peningunum · host Umboðsmaður skuldara
Aðalsteinn Leifsson starfar í dag sem ríkissáttasemjari og lektor við Háskólann í Reykjavík. Hann skrifaði bókina Samningatækni með það að markmiði að bókin gæti orðið hagnýtt tæki við samninga og í daglegu lífi. Við ræðum í þessu viðtali:Hvað gerir ríkissáttasemjari? Hvaða þættir skipta máli svo aðilar séu sáttir við samninga? Samningar er eitthvað sem við fáumst við alla daga og eitt mikilvægasta form ákvörðunartöku.Af hverju við erum ekki eins góðir samningamenn og við teljum okkur vera. Af hverju stærsta hindrunin sem við mætum í samningum er innra með okkur. Hvers vegna undirbúningur er sá þáttur sem mestu máli skiptir. Við ræðum ólíka samninga og samningatækni þegar kemur að íbúðakaupum, kaupum bíl eða þegar við ráðum okkur í vinnu. Hættan þegar við verðum ástfanginn af einni lausn og mikilvægi þess að hafa fleiri valmöguleika. Þar skaðast samningsstaða okkar. Af hverju fleiri valmöguleikar skipta svo miklu máli þegar við semjum og af hverju við eigum alltaf fleiri valmöguleika. Hvernig eigum við að undirbúa okkur fyrir laun? Af hverju okkur þykir erfiðara að semja fyrir okkur sjálf en aðra. Af hverju það skiptir lykilmáli á að við skiljum gagnaðilann í samningum. Þetta og margt fleira í þessu áhugaverða viðtali. Bók Aðalsteins Samningatækni er hægt að fá hér.Umsjón: Gunnar Dofri Ólafsson Framleitt af Umboðsmanni skuldara með stuðningi frá félagsmálaráðuneytinu.
Embed this episode
What this episode covers
Aðalsteinn Leifsson starfar í dag sem ríkissáttasemjari og lektor við Háskólann í Reykjavík. Hann skrifaði bókina Samningatækni með það að markmiði að bókin gæti orðið hagnýtt tæki við samninga og í daglegu lífi. Við ræðum í þessu viðtali: Hvað gerir ríkissáttasemjari? Hvaða þættir skipta máli svo aðilar séu sáttir við samninga? Samningar er eitthvað sem við fáumst við alla daga og eitt mikilvægasta form ákvörðunartöku.Af hverju við erum ekki eins góðir samningamenn og v...
NOW PLAYING
Hvernig verð ég betri samningamaður? - Aðalsteinn Leifsson
No transcript for this episode yet
Similar Episodes
No similar episodes found.