EPISODE · Sep 17, 2025 · 23 MIN
Hvers vegna er mikilvægt að rannsaka heimalestur?
from Menntavísindavarpið
Karen Rut Gísladóttir, prófessor við Menntavísindasvið og Anna Kristina Regina Söderström, doktorsnemi í þjóðfræði rannsaka um þessar mundir heimalestur. Þær telja að tryggja þurfi jafnrétti í kringum lestrarþjálfun barna, og ef lestur er settur alfarið á hendur foreldra og fjölskyldna þá er hætta á því að börn fái mismikla þjálfun. Niðurstöður síðustu PISA rannsóknar benda til þess að það eru tengsl milli félags- og efnahagslegra aðstæðna fjölskyldna og lesskilnings. Að þeirra mati er mikilvægt að rýna í það og skoða nánar. Tilgangur rannsóknar þeirra er að stuðla að samtali um samstarf milli skóla og fjölskyldna í tengslum við lestrarnám og skoða reynslu foreldra af heimalestri og hvernig ólíkar aðstæður fjölskyldna endurspeglast í framkvæmd heimalesturs. Hægt er að lesa meira um rannsóknina á rannsóknarsíðu Menntavísindasviðs: https://mvsrannsoknir.hi.is/rannsokn/heimalestur/
Embed this episode
Ready to play
Hvers vegna er mikilvægt að rannsaka heimalestur?
No transcript for this episode yet
Similar Episodes
No similar episodes found.
Similar Podcasts
No similar podcasts found.