EPISODE · Apr 22, 2024 · 1H 3M
Íþróttarabb HR // 14. þáttur: Lífsferill íþróttafólks - Dr. Paul Wylleman
from Íþróttarabb HR · host Háskólinn í Reykjavík / Reykjavik University
Í þessum þætti ræðum við um lífsferil íþróttafólks (athlete lifespan) frá því hvernig börn geta kynnst íþróttum á jákvæðan hátt, yfir í hvað einkennir góða hæfileikamótun, hvað þarf til að ná árangri, og að lokum hvaða áskoranir blasa við í lok ferils. Paul Wylleman er klínískur sálfræðingur og prófessor við Vrije háskólann í Brussel. Hann er meðal fremstu fræðimanna í heimi hvað varðar rannsóknir á lífsferli íþróttafólks og heildrænni nálgun í þjálfun og uppeldi þess. Dr. Wylleman hefur birt fræðigreinar um sálfræðilega færni, andlega heilsu og vellíðan, og þverfaglegan stuðning við afreksíþróttafólk og ólymlíufara. Hann hefur starfað sem sérfræðingur fyrir hollensku og belgísku ólympíusamböndin, meðal annars sem leiðandi íþróttasálfræðingur á ólympíuleikum og veitt ótal öðrum þjóðum ráðgjöf um hvernig eigi að byggja upp stuðningsnet fyrir ólympíuhópa. Paul er fyrrum forseti samtaka evrópskra íþróttasálfræðinga og hefur unnið að ýmsum rannsóknum fyrir alþjóða ólympíunefndina. Viðtalið við Paul var tekið upp þegar hann kom og flutti erindi á málþingi Fimleikasambands Íslands um verndun og velferð barna, unglinga og afreksmanna í íþróttum. Það fer fram á ensku.UM ÍÞRÓTTAFRÆÐINám í íþróttafræði við HR er fjölbreytt og krefjandi og undirbýr nemendur fyrir störf á fjölmörgum sviðum íþrótta, líkams- og heilsuræktar er lúta að kennslu, þjálfun og stjórnun. Í grunnnámi í íþróttafræði kynnast nemendur undirstöðuatriðum í þjálfun og kennslu og ljúka einingum í verknámi. Þeir kynnast því jafnframt hvernig nota má niðurstöður rannsókna og nýjustu tækni til að efla þjálfun, afreksíþróttir og heilsu almennings. Í meistaranáminu er lögð áhersla á rannsóknir og tengsl við samfélag og atvinnulíf.UM ÍÞRÓTTARABBIÐÍþróttarabb HR er þáttasyrpa innan HR hlaðvarpsins. Það er íþróttafræðideild Háskólans í Reykjavík sem heldur syrpunni úti. Í þáttunum er spjallað um hreyfingu, íþróttir, keppni, kennslu og þjálfun við gesti og gangandi í faginu. Viðmælendur koma víða að; sérfræðingar og fræðifólk, kennarar og gestafyrirlesarar, núverandi og fyrrverandi nemendur. Íþróttaiðkendur, afreksfólk og þjálfarar munu sömuleiðis koma við sögu.UM HR HLAÐVARPIÐHR hlaðvarpið er aðgengilegt á helstu samfélagsmiðlum háskólans og streymisveitunum Spotify og Apple iTunes, ásamt hlaðvarpsveitum á borð við Simplecast, Pocket Casts og Podcast Addict. Það er samskiptateymi HR sem hefur umsjón með HR hlaðvarpinu ([email protected]).
NOW PLAYING
Íþróttarabb HR // 14. þáttur: Lífsferill íþróttafólks - Dr. Paul Wylleman
No transcript for this episode yet
Similar Episodes
Sep 4, 2024 ·9m
Aug 28, 2024 ·10m