Íþróttarabb HR
by Háskólinn í Reykjavík / Reykjavik University
Íþróttarabb HR er þáttasyrpa innan HR hlaðvarpsins. Það er íþróttafræðideild Háskólans í Reykjavík sem heldur syrpunni úti. Í þáttunum er spjallað um hreyfingu, íþróttir, keppni, kennslu og þjálfun við gesti og gangandi í faginu. Viðmælendur koma víða að; sérfræðingar og fræðifólk, kennarar og gestafyrirlesarar, núverandi og fyrrverandi nemendur. Íþróttaiðkendur, afreksfólk og þjálfarar munu sömuleiðis koma við sögu. The RU Sports Chat (Íþróttarabb HR) is an independent series within the RU podcast. The sports science department of the University of Reykjavík hosts the RU Sports Chat, which is produced by the studio and communications teams at RU. This podcast series covers subjects like exercise, sports, competition, teaching and training, and interviews guests such as experts, academics, teachers, athletes, coaches, professionals, other people in the field, and current and former students.
Episodes
-
Íþróttarabb HR // 29. þáttur – Dr. Lidon Lashley, forstöðumaður UG-ECCE öndvegisseturs í málefnum ungra barna.
Ingi Þór Einarsson fær til sín Dr. Lidon Lashley, einn helsta sérfræðing Guyana í sértækum stuðningi og skóla án aðgreiningar. Lidon er dósent við University of Guyana, forstöðumaður UG-ECCE öndvegisseturs í málefnum ungra barna og formaður starfshóps háskólans um inngildingu, fjölbreytileika og...
-
Íþróttarabb HR // 28. þáttur-Framúrskarandi námsmat í skólaíþróttum með Kristínu Guðmundsdóttur
Íþróttafræðideild Háskólans í Reykjavík veitti á dögunum viðurkenningar fyrir framúrskarandi námsmat í skólaíþróttum og sundi, þar sem sjónum var sérstaklega beint að yngsta stiginu og innleiðingu nýrra hæfniviðmiða. Kennarar úr Engjaskóla, Sjálandsskóla og Rimaskóla hlutu viðurkenninguna í ár. Í...
-
Íþróttarabb HR // 27. þáttur-Framúrskarandi námsmat í skólaíþróttum með Davíð Má Sigurðssyni
Gestur þáttarins að þessu sinni er Davíð Már Sigurðsson, íþrótta- og sundkennari í Rimaskóla. Hann, ásamt samstarfskonu sinni Sigrúnu Blomsterberg, hlaut viðurkenninguna fyrir einstaklega vel skipulagt verkefni í aukakennslu í sundi. Davíð segir okkur frá því hvernig þau styðja við nemendur sem...
-
Íþróttarabb HR// 26. þáttur - Afreksvæðing barna og unglinga í brennidepli
In this episode, Daði Rafnsson from Reykjavík University discusses the professionalization of children’s and youth sports with internationally renowned experts. It was recorded in connection with the Reykjavik International Games in January 2026. Guests are Mark O’Sullivan, Martin Camiré and...
-
Íþróttarabb HR// 25. þáttur - Framúrskarandi námsmat í skólaíþróttum með Tryggva Jóhanni Heimissyni
Vorið 2025 var stofnað til nýs framtaks hér við íþróttafræðideildina í HR sem hafði það að markmiði að lyfta upp starfi íþróttakennara og skapa umræðu um það sem vel er gert. Framtakið fólst í að veita viðurkenningu fyrir framúrskarandi námsmat í skólaíþróttum. Óskað var eftir tilnefningum og...
-
Íþróttarabb HR// 24. Þáttur - Framúrskarandi námsmat í skólaíþróttum með Sillu
Vorið 2025 var stofnað til nýs framtaks hér við íþróttafræðideildina í HR sem hafði það að markmiði að lyfta upp starfi íþróttakennara og skapa umræðu um það sem vel er gert. Framtakið fólst í að veita viðurkenningu fyrir framúrskarandi námsmat í skólaíþróttum. Óskað var eftir tilnefningum og...
-
Íþróttarabb HR// 23. Þáttur - Á toppinn með Kjartani Stefánssyni
Gestur þáttarins er Kjartan Stefánsson, margreyndur grunnskólakennari og knattspyrnuþjálfari með meiru. Kjartan hefur kennt skólaíþróttir við Árbæjarskóla við góðan orðstír og stundar meistaranám við íþróttafræðieild HR. Í þættinum ræðir Sveinn Þorgeirsson, umsjónarmaður meistaranáms til...
-
Íþróttarabb HR // 24. þáttur: Rick Howard
Í þessum þætti ræðir Ingi Þór Einarsson, lektor við íþróttafræðideild HR, við Dr. Rick Howard, sérfræðing í styrktarþjálfun, um styrktarþjálfun barna og mýtur tengdar henni. Howard hefur kennt í diplómanámi í styrk- og þrekþjálfun við íþróttafræðideild Háskólans í Reykjavík frá því að námið hófst...
-
Íþróttarabb HR // 23. þáttur Dr. Geir Jordet
In this episode, we welcome Dr. Geir Jordet, a leading international expert in the psychology of football, focusing on decision-making, leadership, and performance under pressure. He is a professor at the Norwegian School of Sport Sciences, where his research has explored topics such as...
-
RU Sport Psych Podcast: Dr. Peter Haberl and Dr. Göran Kenttä.
In this episode, we are joined by two internationally renowned sport psychology experts: Dr. Peter Haberl and Dr. Göran Kenttä. Dr. Peter Haberl, former senior sport psychologist with the U.S. Olympic & Paralympic Committee, shares his insights into attention, mindfulness, and performance under...
-
RU Sport Psych Podcast: Daði Rafnsson
Peter O’Donoghue talks to Daði Rafnsson about a newly published study that aimed to develop a method based on Chris Harwood’s 5Cs framework to help coaches articulate how football players should demonstrate psychological skills through behaviours on the field. Eight professional coaches and one...
-
Íþróttarabb HR // 22. þáttur: Dr. Magni Mohr forstöðumaður heilbrigðisvísindasviðis í Háskólanum í Færeyjum
Í þessum þætti ræðir Sveinn Þorgeirsson, kennari við íþróttafræðideild og umsjónarmaður MED-námsins, við Dr. Magna Mohr, sem fer fyrir heilbrigðisvísindasviði í Háskólanum í Færeyjum. Magni er með doktorsgráðu í íþróttasálfræði frá Kaupmannahafnarháskóla og meistaragráðu frá sama skóla í...
-
RU Sport Psych Podcast: Kristoffer Henriksen
Kristoffer Henriksen er íþróttasálfræðingur og prófessor við Háskólann í Suður-Danmörku (SDU). Hann er einnig yfirmaður rannsóknardeildar í íþróttavísindum og er jafnframt þróttasálfræðingur hjá Team Danmark, stofnuninni sem ber ábyrgð á afreksíþróttum í Danmörku. Áhugasvið hans snýr að...
-
RU Sport Psych Podcast: Chris Harwood
Í þessum þætti ræða Daði Rafnsson og Chris Harwood um áskoranir og tækifæri í markvissri sálrænni færniþjálfun. Chris Harwood er í fremstu röð meðal fræðimanna í íþróttasálfræði og starfar sem forstöðumaður rannsóknarmiðstöðvar íþrótta, heilsu og frammistöðuvísinda við Nottingham Trent háskólann…
more -
RU Sport Psych Podcast: Carsten Hvid Larsen and Christian Thue Bjørndal
Í þessum þætti ræðir Daði Rafnsson við tvo reynslumikla fræðimenn á sviði hæfileikamótunar og íþróttasálfræði um snemmbundna afreksþjálfun og hvernig umhverfið hefur áhrif á íþróttafólk. Carsten Hvid Larsen er yfirsálfræðingur hjá danska knattspyrnusambandinu (DBU) og dósent við Háskólann í...
-
RU Sport Psych Podcast: Katie Castle
Katie Castle is a Canadian psychologist who specializes in working with children and adolescents in sports. She has a background in gymnastics as an athlete and coach and uses it to help athletes find a balance between sports and private life. She presented her research on the negative...
-
Íþróttarabb HR // 21. þáttur: Sigurbjörn Árni Arngrímsson
Ingi Þór Einarsson, lektor við Íþróttafræðideild HR, ræðir við Sigurbjörn Árna Arngrímsson sem oftast er kallaður Bjössi. Bjössi hefur gengt starfi skólameistara við Framhaldsskólann á Laugum frá árinu 2015 og kennt bæði við HÍ og HR þar sem hann kennir þjálfunarlífeðlisfræði í meistaranámi í…
more -
Íþróttarabb HR // 20. þáttur: Rob Duffield
Professor Rob Duffield works in the School of Sport, Exercise & Rehabilitation at the University of Technology Sydney. He is also the Head of Research & Development at Football Australia. Today he discusses his research with Professor Hugh Fullagar of Reykjavik University. Rob talks about his…
more -
Íþróttarabb HR // 19. þáttur: Rick Howard
Rick Howard, gestaprófessor við Háskólann í Reykjavík, ræðir um rannsóknir sínar við Dr. Peter O'Donoghue. Rannsóknir Rick snúa að íþróttum barna og ungmenna, langtímaþróun íþróttamanna, styrktar- og þrekþjálfun í íþróttum barna og ungmenna, og líkamlegt læsi. Hann ræðir einnig um hvernig...
-
Íþróttarabb HR // 18. þáttur: William Low
Í íþróttarabbi HR að þessu sinni er rætt við William Low sem er aðstoðarprófessor í íþróttasálfræði í Herion Watts háskólanum í Skotlandi. William er gestafyrirlesari í mastersnámi íþróttafræðideildar HR og er sérfræðingur í álagsþjálfun (pressure training). Í álagsþjálfun vinna þjálfarar og...
-
Íþróttarabb HR // 17. þáttur: Egill Ingi Jónsson
Ingi Þór Einarsson lektor við íþróttafræðideild HR ræðir við Egil Inga Jónsson íþróttafræðing og skíðaþjálfara um skíðaþjálfun á Íslandi. Egill hefur þjálfað skíðafólk á öllum stigum allt frá byrjendum upp í Ólympíufara. Nýverið gerði Egill verkefni þar sem hann fjallar um hæfileikamótun…
more -
Íþróttarabb HR - Vöðvaslökun // styttri útgáfa
Í þessum sérþætti af Íþróttarabbi HR mun Hafrún Kristjánsdóttir leiða hlustendur í gegnum styttri útgáfuna af Jacobson-vöðvaslökunaræfingunni. Sýnt hefur verið fram á ágæti Jacobsen-vöðvaslökunaræfingarinnar í fjölmörgum rannsóknum. Æfingin felst í því að spenna og síðan slaka á mismunandi...
-
Íþróttarabb HR - Vöðvaslökun // lengri útgáfa
Í þessum sérþætti af Íþróttarabbi HR mun Hafrún Kristjánsdóttir leiða hlustendur í gegnum lengri útgáfuna af Jacobson-vöðvaslökunaræfingunni Sýnt hefur verið fram á ágæti Jacobsen-vöðvaslökunaræfingarinnar í fjölmörgum rannsóknum. Æfingin felst í því að spenna og síðan slaka á mismunandi…
more -
Íþróttarabb HR // 16. þáttur: Hjördís Ólafsdóttir
Við settumst niður með Hjördísi Ólafsdóttur sem útskrifaðist úr MEd í kennsluþjálfun og heilsu vorið 2022, og ræddum við hana um áhugavert lokaverkefni þar sem hún gerði fræðsluefni um blæðingar og svo um sýn hennar á íþróttakennsluna sérstaklega sundkennslu. UM ÍÞRÓTTAFRÆÐI Nám í íþróttafræði…
more -
Íþróttarabb HR // 15. þáttur: Endurheimt, svefn og næring íþróttafólks - Dr. Hugh Fullagar
Peter O´Donoghue prófessor við íþróttafræðideild HR ræðir við nýjan starfsmann íþróttafræðideildar Prófessor Hugh Fullagar. Hugh sérhæfir sig í rannsóknum á svefn, endurheimt og næringu íþróttafólks, allt mikilvægir þættir í frammistöðu íþróttafólks og fjalla þeir um þessi efni í samhengi við...
-
Íþróttarabb HR // 14. þáttur: Lífsferill íþróttafólks - Dr. Paul Wylleman
Í þessum þætti ræðum við um lífsferil íþróttafólks (athlete lifespan) frá því hvernig börn geta kynnst íþróttum á jákvæðan hátt, yfir í hvað einkennir góða hæfileikamótun, hvað þarf til að ná árangri, og að lokum hvaða áskoranir blasa við í lok ferils. Paul Wylleman er klínískur sálfræðingur og...
-
Íþróttarabb HR // 13. þáttur: Hvað er stjórnun í íþróttum?
Íþróttafræðideild býður upp á tvíþætta meistaragráður í íþróttavísindum og stjórnun í samvinnu við Háskólann í Molde í Noregi. Kristján Halldórsson átti samtal við Fannar Helga Rúnarssson sem tók tvö ár í íþróttastjórnun í Molde og starfar núna í KSÍ, og Hafþór Hauk Steinþórsson sem er að klára...
-
Íþróttarabb HR // 12. þáttur: Katrín Ýr Friðgeirsdóttir
Katrín Ýr Friðgeirsdóttir er doktorsnemi í íþróttavísindum og svefn, þar sem hún er að skoða áhrif hreyfingar á kæfisvefn. hún hef starfað sem styrktarþjálfari í meistaraflokk og undir 15 ára liði Íslands í knattspyrnu. Hefur mikinn áhuga á þjálfun kvenna með tilliti til tíðarhringsins, áhrif...
-
Íþróttarabb HR // 11. þáttur: Dr. Hafrún Kristjánsdóttir
Dr. Hafrún Kristjánsdóttir, Prófessor, er forseti íþróttafræðideildar. Rannsóknir hennar hafa meðal annars fjallað um geðheilsu íþróttafólks, sálfræðilega færni og andlegan styrk í íþróttum ásamt afleiðingum höfuðhögga.Hafrún hefur unnið mikið með öflugasta íþróttafólki landsins en hún var...
-
Íþróttarabb HR // 10. þáttur: Ian Jeffreys
Ian Jeffreys er nýr prófessor við íþróttafræðideild Háskólans í Reykjavík. Ian er þekktur á heimsvísu í sínu fagi en hann hefur hlotið viðurkenningar fyrir störf sín sem þjálfari, kennari og höfundur. Ian er fyrrum atvinnumaður í rúgbí og alþjóðlegur þjálfari en hann er meðal fremstu vísindamann…
more -
Íþróttarabb HR // 9. þáttur: Aron Gauti Laxdal
Gestur Íþróttarabbsins að þessu sinni er Aron Gauti Laxdal, dósent í íþróttafræði við Háskólann í Agder í Noregi. Aron Gauti er með doktorsgráðu í skólaíþróttum frá Háskólanum í Stavanger og höfundur greinarinnar Til umhugsunar um framtíð skólaíþrótta. Aron Gauti hefur sinnt viðamiklum rannsóknum…
more -
Íþróttarabb HR // 8. þáttur: Chris Harwood og 5C aðferðafræðin
Chris Harwood er gestur íþróttarabbs HR að þessu sinni. Hann er í fremstu röð meðal fræðimanna í íþróttasálfræði og starfar sem forstöðumaður rannsóknarmiðstöðvar íþrótta, heilsu og frammistöðuvísinda við Nottingham Trent háskólann í Bretlandi þar sem hann er jafnframt prófessor. Chris þróaði 5C...
-
Íþróttarabb HR // 7. þáttur: Daniel Gould og Robert Weinberg
Gestir íþróttarabbsins að þessu sinni eru prófessoranir Daniel Gould og Robert Weinberg. Weinberg og Gould eru vel þekktir fyrir störf sín á sviði íþróttasálfræði og líklega er á engan hallað þegar haldið er fram að þeir félagar séu með virtustu íþróttasálfræðingum allra tíma. Báðir hafa þeir…
more -
Íþróttarabb HR // 6. þáttur: Anton Sveinn Mckee
Gestur Íþróttarabbsins að þessu sinni er sundmaðurinn Anton Sveinn McKee. Hann náði í sumar Ólympíulágmarkinu í 200 metra bringusundi fyrir Ólympíuleikana í París á næsta ári. Anton bætist þá í fámennan hóp íslenskra íþróttamanna sem keppt hafa á fjórum Ólympíuleikum. Í þættinum er farið vítt og...
-
Íþróttarabb HR // 5. þáttur: Þórir Hergeirsson
Í þessum þætti af Íþróttarabbinu er rætt við Þóri Hergeirsson, þjálfara norska kvennalandsliðsins í handbolta. Gestaspyrill í þessum þætti er íþróttafréttakonan Edda Sif Pálsdóttir. Þórir hefur þjálfað norska kvennalandsliðið sem aðalþjálfari frá árinu 2009. Árangur hans með liðið hefur verið…
more -
Íþróttarabb HR // Hreyfivistkerfi: Sveinn Þorgeirsson, Snorri Örn Arnaldsson og Hafþór Aron Ragnarsson
Sveinn Þorgeirsson, kennari við íþróttafræðideild HR, fær til sín tvo góða gesti í Íþróttarabbið til að spjalla um nýja nálgun við þjálfun hreyfinga sem byggir á hugmyndum um hreyfivistkerfi, sem áður hafa verið teknar fyrir í Íþróttarabbinu (þætti 3). Þessar kenningar eru meðal kennsluefnis sem...
-
Íþróttarabb HR // 4. þáttur: Ingi Þór Einarsson og Gunnar Páll Jóakimsson
Ingi Þór Einarsson, lektor við íþróttafræðideild HR, og Gunnar Páll Jóakimsson, stundakennari við íþróttafræðideild HR, settust niður í Íþróttarabbi HR og ræddu þolþjálfun á breiðum grundvelli. Auk þess að vera fræðimenn með áratugareynslu í sínum fögum hafa báðir þjálfað sömuleiðis um...
-
Íþróttarabb HR // 3. þáttur: Sveinn Þorgeirsson
Í þessum þætti fræðumst við um hugmyndir sem Sveinn Þorgeirsson, kennari við íþróttafræðideild HR, er að kynna sér og gætu haft mikil áhrif á hvernig við nálgumst þjálfun hreyfingar í framtíðinni. Þetta eru hugmyndir hreyfivistkerfa og í þættinum eru þær bornar saman við þær hefðbundnu kenningar...
-
Íþróttarabb HR // 2. þáttur: Peter O´Donoghue
Gesturinn í þessum þætti af Íþróttarabbi HR er Peter O´Donoghue prófessor við Íþróttafræðideild HR. Peter er þekktur á alþjóðavettvangi fyrir vinnu sína, rannsóknir og kennslu á sviði frammistöðugreininga í íþróttum (sport performance analysis). Margir fyrrum nemenda hans hafa náð langt í...
-
Íþróttarabb HR // 1. þáttur: Clive Brewer
Í fyrsta þætti af Íþróttarabbi HR á Spotify er rætt við Clive Brewer sem er einn þeirra erlendu sérfræðinga sem kemur reglulega hingað til lands að kenna nemendum meistaranáms íþróttafræðinnar í HR. Sérsvið Clive er styrk- og þrekþjálfun og afreksþjálfun. Hann hefur víðtæka reynslu af líkamlegri...
About this show
Íþróttarabb HR er þáttasyrpa innan HR hlaðvarpsins. Það er íþróttafræðideild Háskólans í Reykjavík sem heldur syrpunni úti. Í þáttunum er spjallað um hreyfingu, íþróttir, keppni, kennslu og þjálfun við gesti og gangandi í faginu. Viðmælendur koma víða að; sérfræðingar og fræðifólk, kennarar og gestafyrirlesarar, núverandi og fyrrverandi nemendur. Íþróttaiðkendur, afreksfólk og þjálfarar munu sömuleiðis koma við sögu.
The RU Sports Chat (Íþróttarabb HR) is an independent series within the RU podcast. The sports science department of the University of Reykjavík hosts the RU Sports Chat, which is produced by the studio and communications teams at RU. This podcast series covers subjects like exercise, sports, competition, teaching and training, and interviews guests such as experts, academics, teachers, athletes, coaches, professionals, other people in the field, and current and former students.
Hosted by
Háskólinn í Reykjavík / Reykjavik University
Categories