EPISODE · Sep 2, 2024 · 46 MIN
Íþróttarabb HR // 17. þáttur: Egill Ingi Jónsson
from Íþróttarabb HR · host Háskólinn í Reykjavík / Reykjavik University
Ingi Þór Einarsson lektor við íþróttafræðideild HR ræðir við Egil Inga Jónsson íþróttafræðing og skíðaþjálfara um skíðaþjálfun á Íslandi. Egill hefur þjálfað skíðafólk á öllum stigum allt frá byrjendum upp í Ólympíufara. Nýverið gerði Egill verkefni þar sem hann fjallar um hæfileikamótun skíðafólks og mikilvægi þess að hafa heildræna stefnu í skíðaþjálfun á ÍslandiUM ÍÞRÓTTAFRÆÐINám í íþróttafræði við HR er fjölbreytt og krefjandi og undirbýr nemendur fyrir störf á fjölmörgum sviðum íþrótta, líkams- og heilsuræktar er lúta að kennslu, þjálfun og stjórnun. Í grunnnámi í íþróttafræði kynnast nemendur undirstöðuatriðum í þjálfun og kennslu og ljúka einingum í verknámi. Þeir kynnast því jafnframt hvernig nota má niðurstöður rannsókna og nýjustu tækni til að efla þjálfun, afreksíþróttir og heilsu almennings. Í meistaranáminu er lögð áhersla á rannsóknir og tengsl við samfélag og atvinnulíf.UM ÍÞRÓTTARABBIÐÍþróttarabb HR er þáttasyrpa innan HR hlaðvarpsins. Það er íþróttafræðideild Háskólans í Reykjavík sem heldur syrpunni úti. Í þáttunum er spjallað um hreyfingu, íþróttir, keppni, kennslu og þjálfun við gesti og gangandi í faginu. Viðmælendur koma víða að; sérfræðingar og fræðifólk, kennarar og gestafyrirlesarar, núverandi og fyrrverandi nemendur. Íþróttaiðkendur, afreksfólk og þjálfarar munu sömuleiðis koma við sögu.UM HR HLAÐVARPIÐHR hlaðvarpið er aðgengilegt á helstu samfélagsmiðlum háskólans og streymisveitunum Spotify og Apple iTunes, ásamt hlaðvarpsveitum á borð við Simplecast, Pocket Casts og Podcast Addict. Það er samskiptateymi HR sem hefur umsjón með HR hlaðvarpinu ([email protected])
NOW PLAYING
Íþróttarabb HR // 17. þáttur: Egill Ingi Jónsson
No transcript for this episode yet
Similar Episodes
Sep 4, 2024 ·9m
Aug 28, 2024 ·10m