EPISODE · Apr 10, 2026 · 30 MIN
Íþróttarabb HR// 25. þáttur - Framúrskarandi námsmat í skólaíþróttum með Tryggva Jóhanni Heimissyni
from Íþróttarabb HR · host Háskólinn í Reykjavík / Reykjavik University
Vorið 2025 var stofnað til nýs framtaks hér við íþróttafræðideildina í HR sem hafði það að markmiði að lyfta upp starfi íþróttakennara og skapa umræðu um það sem vel er gert. Framtakið fólst í að veita viðurkenningu fyrir framúrskarandi námsmat í skólaíþróttum. Óskað var eftir tilnefningum og umsóknum. Nefnd var skipuð og valdi hún tvö verkefni til viðurkenningar árið 2025. Tryggvi Jóhann Heimisson fékk viðurkenningu fyrir sína umsókn vorið 2025 og hann er gestur þáttarins. Í viðtalinu fóru þeir Tryggvi og Sveinn Þorgeirsson, lektor við íþróttafræðideild HR, vítt og breitt en skólaíþróttir, áskoranir og tækifæri eru rauði þráðurinn.UM ÍÞRÓTTAFRÆÐINám í íþróttafræði við HR er fjölbreytt og krefjandi og undirbýr nemendur fyrir störf á fjölmörgum sviðum íþrótta, líkams- og heilsuræktar er lúta að kennslu, þjálfun og stjórnun. Í grunnnámi í íþróttafræði kynnast nemendur undirstöðuatriðum í þjálfun og kennslu og ljúka einingum í verknámi. Þeir kynnast því jafnframt hvernig nota má niðurstöður rannsókna og nýjustu tækni til að efla þjálfun, afreksíþróttir og heilsu almennings. Í meistaranáminu er lögð áhersla á rannsóknir og tengsl við samfélag og atvinnulíf.UM ÍÞRÓTTARABBIÐÍþróttarabb HR er þáttasyrpa innan HR hlaðvarpsins. Það er íþróttafræðideild Háskólans í Reykjavík sem heldur syrpunni úti. Í þáttunum er spjallað um hreyfingu, íþróttir, keppni, kennslu og þjálfun við gesti og gangandi í faginu. Viðmælendur koma víða að; sérfræðingar og fræðifólk, kennarar og gestafyrirlesarar, núverandi og fyrrverandi nemendur. Íþróttaiðkendur, afreksfólk og þjálfarar munu sömuleiðis koma við sögu.Samskiptateymi HR hefur umsjón með HR hlaðvarpinu ([email protected]). HR hlaðvarpið er aðgengilegt á öllum helstu streymisveitum.
What this episode covers
Vorið 2025 var stofnað til nýs framtaks hér við íþróttafræðideildina í HR sem hafði það að markmiði að lyfta upp starfi íþróttakennara og skapa umræðu um það sem vel er gert. Framtakið fólst í að veita viðurkenningu fyrir framúrskarandi námsmat í skólaíþróttum. Óskað var eftir tilnefningum og umsóknum. Nefnd var skipuð og valdi hún tvö verkefni til viðurkenningar árið 2025. Tryggvi Jóhann Heimisson fékk viðurkenningu fyrir sína umsókn vorið 2025 og hann er gestur þáttarins. Í viðtalinu...
NOW PLAYING
Íþróttarabb HR// 25. þáttur - Framúrskarandi námsmat í skólaíþróttum með Tryggva Jóhanni Heimissyni
No transcript for this episode yet
Similar Episodes
No similar episodes found.
Similar Podcasts
No similar podcasts found.