Íþróttarabb HR // 3. þáttur: Sveinn Þorgeirsson episode artwork

EPISODE · Sep 21, 2023 · 53 MIN

Íþróttarabb HR // 3. þáttur: Sveinn Þorgeirsson

from Íþróttarabb HR · host Háskólinn í Reykjavík / Reykjavik University

Í þessum þætti fræðumst við um hugmyndir sem Sveinn Þorgeirsson, kennari við íþróttafræðideild HR, er að kynna sér og gætu haft mikil áhrif á hvernig við nálgumst þjálfun hreyfingar í framtíðinni. Þetta eru hugmyndir hreyfivistkerfa og í þættinum eru þær bornar saman við þær hefðbundnu kenningar sem við höfum flest alist upp við og hafa mótað nálgun okkar við þjálfun og kennslu hreyfinga til þessa. Það er Ása Guðný Ásgeirsdóttir, verkefnastjóri við íþróttafræðideild, sem spjallar við Svein.Íþróttarabb HR er þáttasyrpa innan HR hlaðvarpsins. Það er íþróttafræðideild Háskólans í Reykjavík sem heldur syrpunni úti. Í þáttunum er spjallað um hreyfingu, íþróttir, keppni, kennslu og þjálfun við gesti og gangandi í faginu. Viðmælendur koma víða að; sérfræðingar og fræðifólk, kennarar og gestafyrirlesarar, núverandi og fyrrverandi nemendur. Íþróttaiðkendur, afreksfólk og þjálfarar munu sömuleiðis koma við sögu. Nám í íþróttafræði við HR er fjölbreytt og krefjandi og undirbýr nemendur fyrir störf á fjölmörgum sviðum íþrótta, líkams- og heilsuræktar er lúta að kennslu, þjálfun og stjórnun. Í grunnnámi í íþróttafræði kynnast nemendur undirstöðuatriðum í þjálfun og kennslu og ljúka einingum í verknámi. Þeir kynnast því jafnframt hvernig nota má niðurstöður rannsókna og nýjustu tækni til að efla þjálfun, afreksíþróttir og heilsu almennings. Í meistaranáminu er lögð áhersla á rannsóknir og tengsl við samfélag og atvinnulíf.HR hlaðvarpið er aðgengilegt á helstu samfélagsmiðlum háskólans og streymisveitunum Spotify og Apple iTunes, ásamt hlaðvarpsveitum á borð við Simplecast, Pocket Casts og Podcast Addict. Það er samskiptateymi HR sem hefur umsjón með HR hlaðvarpinu ([email protected]). Framleiðendur hlaðvarpsins eru þeir Skúli Andrésson og Vilhjálmur Siggeirsson.________________________________________________________________________________________Þessi grein er frábær lesning til að kynna sér hugmyndirnar:https://www.researchgate.net/publication/351061205_Understanding_How_Athletes_Learn_Integrating_Skill_Training_Concepts_Theory_and_Practice_from_an_Ecological_PerspectiveHér er efni á íslensku eftir Svein og meira á leiðinni: https://sveinnthorgeirsson.com/2023/03/17/a-auto-pilot-eda-adlogunarhaef-tvo-olik-sjonarhorn-a-thjalfun-hreyfinga/https://sveinnthorgeirsson.com/2023/04/11/einstaklingsmidud-hopthjalfun-morg-verkefni-eda-margar-lausnir/https://sveinnthorgeirsson.com/2023/04/24/eru-10-000-endurtekningar-thversogn-i-thjalfun-hreyfinga/Hér er frábær þáttur á góðri rás á youtube eftir dr. Rob Gray sem tekur saman þessar helstu pælingar:https://www.youtube.com/watch?v=cCsezh7ijzs&t=450s&ab_channel=RobGrayHérna er verkefnið Handbolti á heimavelli eftir Svein Þorgeirsson og Kristján Halldórsson sem vísað er til í þættinum:https://handboltiaheimavelli.com/ 

Í þessum þætti fræðumst við um hugmyndir sem Sveinn Þorgeirsson, kennari við íþróttafræðideild HR, er að kynna sér og gætu haft mikil áhrif á hvernig við nálgumst þjálfun hreyfingar í framtíðinni. Þetta eru hugmyndir hreyfivistkerfa og í þættinum eru þær bornar saman við þær hefðbundnu kenningar sem við höfum flest alist upp við og hafa mótað nálgun okkar við þjálfun og kennslu hreyfinga til þessa. Það er Ása Guðný Ásgeirsdóttir, verkefnastjóri við íþróttafræðideild, sem spjallar við Svein. ...

NOW PLAYING

Íþróttarabb HR // 3. þáttur: Sveinn Þorgeirsson

0:00 53:55

No transcript for this episode yet

We transcribe on demand. Request one and we'll notify you when it's ready — usually under 10 minutes.

No similar episodes found.

Frequently Asked Questions

How long is this episode of Íþróttarabb HR?

This episode is 53 minutes long.

When was this Íþróttarabb HR episode published?

This episode was published on September 21, 2023.

What is this episode about?

Í þessum þætti fræðumst við um hugmyndir sem Sveinn Þorgeirsson, kennari við íþróttafræðideild HR, er að kynna sér og gætu haft mikil áhrif á hvernig við nálgumst þjálfun hreyfingar í framtíðinni. Þetta eru hugmyndir hreyfivistkerfa og í þættinum...

Can I download this Íþróttarabb HR episode?

Yes, you can download this episode by clicking the download button on the episode player, or subscribe to the podcast in your preferred podcast app for automatic downloads.
URL copied to clipboard!