EPISODE · Sep 26, 2023 · 52 MIN
Íþróttarabb HR // 7. þáttur: Daniel Gould og Robert Weinberg
from Íþróttarabb HR · host Háskólinn í Reykjavík / Reykjavik University
Gestir íþróttarabbsins að þessu sinni eru prófessoranir Daniel Gould og Robert Weinberg. Weinberg og Gould eru vel þekktir fyrir störf sín á sviði íþróttasálfræði og líklega er á engan hallað þegar haldið er fram að þeir félagar séu með virtustu íþróttasálfræðingum allra tíma. Báðir hafa þeir verið tilnefndir á topp 10 lista yfir áhrifamestu íþróttasálfræðinga Bandaríkjana. Þeir hafa þeir birt ótal fræðigreinar á sviði íþróttasálfræði og skrifað fjölmargar bækur. Weinberg og Gould eru líklega hvað þekkastir fyrir að vera höfundar af kennslubókinni Foundation of Sport and Exercise Psychologysem er langmest notaða kennslubók á sviði íþróttasálfræði. Báðir hafa þeir yfirgripsmikla reynslu af því að vinna með íþróttamönnum, þjálfurum og íþróttasamböndum. Í þættinum er farið vítt og breytt yfir feril þeirra og þeir miðla af reynslu sinni. Meðal annars er rabbað um hvað sálfæðilegu hæfni þeir sem ætla sér langt í íþróttum þurfa að tileinka sér, hvaða sálfræðilega hæfni dómarar þurfa að hafa, hvað skiptir máli þegar starfað er með íþróttafólki og hvernig íþróttasálfræði getur komið að gangi í atvinnulífinu og lífinu sjálfu.. Það er Peter O´Donoghue prófessor við íþróttafræðideild sem rabbar við Weinberg og Gould.Íþróttarabb HR er þáttasyrpa innan HR hlaðvarpsins. Það er íþróttafræðideild Háskólans í Reykjavík sem heldur syrpunni úti. Í þáttunum er spjallað um hreyfingu, íþróttir, keppni, kennslu og þjálfun við gesti og gangandi í faginu. Viðmælendur koma víða að; sérfræðingar og fræðifólk, kennarar og gestafyrirlesarar, núverandi og fyrrverandi nemendur. Íþróttaiðkendur, afreksfólk og þjálfarar munu sömuleiðis koma við sögu.Nám í íþróttafræði við HR er fjölbreytt og krefjandi og undirbýr nemendur fyrir störf á fjölmörgum sviðum íþrótta, líkams- og heilsuræktar er lúta að kennslu, þjálfun og stjórnun. Í grunnnámi í íþróttafræði kynnast nemendur undirstöðuatriðum í þjálfun og kennslu og ljúka einingum í verknámi. Þeir kynnast því jafnframt hvernig nota má niðurstöður rannsókna og nýjustu tækni til að efla þjálfun, afreksíþróttir og heilsu almennings. Í meistaranáminu er lögð áhersla á rannsóknir og tengsl við samfélag og atvinnulíf.HR hlaðvarpið er aðgengilegt á helstu samfélagsmiðlum háskólans og streymisveitunum Spotify og Apple iTunes, ásamt hlaðvarpsveitum á borð við Simplecast, Pocket Casts og Podcast Addict. Það er samskiptateymi HR sem hefur umsjón með HR hlaðvarpinu ([email protected]). Framleiðendur hlaðvarpsins eru þeir Skúli Andrésson og Vilhjálmur Siggeirsson.
What this episode covers
Gestir íþróttarabbsins að þessu sinni eru prófessoranir Daniel Gould og Robert Weinberg. Weinberg og Gould eru vel þekktir fyrir störf sín á sviði íþróttasálfræði og líklega er á engan hallað þegar haldið er fram að þeir félagar séu með virtustu íþróttasálfræðingum allra tíma. Báðir hafa þeir verið tilnefndir á topp 10 lista yfir áhrifamestu íþróttasálfræðinga Bandaríkjana. Þeir hafa þeir birt ótal fræðigreinar á sviði íþróttasálfræði og skrifað fjölmargar bækur. Weinberg og Gould...
NOW PLAYING
Íþróttarabb HR // 7. þáttur: Daniel Gould og Robert Weinberg
No transcript for this episode yet
Similar Episodes
No similar episodes found.