EPISODE · Feb 1, 2026 · 1H 51M
Kiddi Hjálmur - Baggalútur og Hljóðriti
from Rokkland
Undanfarna fjóra sunnudaga hefur Sjónvarpið sýnt okkur bráðskemmtilega þætti um HlJóðrita – hljóðverið í Hafnarfirði sem er elsta starfandi hljóðver landsins - stofnað árið 1975 af nokkrum kraftmiklum ungum mönnum af miklum metnaði. Þættirnir segja sögu Hljóðrita – hvernig það skipti sköpum varðandi íslenska tónlist og útgáfu á sínum tíma en þar voru teknar upp allar vinsælustu plöturnar sem komu út á íslandi í áratug eða meira – Mannakorn – Spilverkið- Grýlunar – Villi Vill – Gunni Þórðar – Magnús Þór – Bubbi – Megas – Þeyr – Tappi Tíkarrass – Brunaliðið - Grafík – jólaplötur og svo framvegis. En tíminn leið og tímarnir breyttust – hljóðverum fjölgaði í borginni og um allt land og Hljóðriti missti flugið af ýmsum ástæðum. Það stóð til um tíma að loka alveg, rífa hljóðverið og breyta húsnæðinu í skrifstofur. En sem betur fer gerðist það ekki og það má segja að bjargvættur Hljóðrita sé rauðhærður eldhugi frá Keflavík sem heitir Guðmundur Kristinn Jónsson. Hann er búinn að ráða ríkjum í Hljóðrita í um 20 ár og Hljóðriti hefur verið hans heimavöllur meira en helming þess tíma sem Hljóðriti hefur verið aktífur. Í fjórða og síðasta Hljóðritaþættinum kemur vel fram hvað Kiddi – eins og hann er kallaður - Kiddi Hjálmur – Kiddi í Hljóðrita – Kiddi Baggalútur – Kiddi í Hljómskálanum – hefur haft mikil áhrif á íslenskt tónlistarlíf síðasta aldarfjórðunginn amk, en hann er lykilmaður í Hjálmum – Baggalúti – Hljómskálanum – Hljóðrita – Sigurði Guðmundssyni – Megasi og Senuþjófunum – Memfismafínunni - Ásgeiri Trausta – Árnýju Margréti og svo framvegis. Kiddi er gestur Rokklands þessa vikuna. Rokkland heimsótti hann í Hljóðrita.
What this episode covers

NOW PLAYING
Kiddi Hjálmur - Baggalútur og Hljóðriti
No transcript for this episode yet
Similar Episodes
No similar episodes found.
Similar Podcasts
No similar podcasts found.